Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 06.04.1929, Blaðsíða 10

Skólablaðið - 06.04.1929, Blaðsíða 10
-10- ímÖTTALÍFIÐ I SKÓLANUM. ■ Um langan aldur hefir litið borið á itrbtta- lífi innan skólans, nema hvað nemendur hafa að nokkru leyti fært sjer í nyt fimleikakenslu Þá, sem skólinn hefir látið Þeim i tje. Það virðist furðu einkennilegt, hve nemendur hafa látið sjer Það i Ijettu rúmi liggja,hvort Þeir æfðu íÞróttir eða ekki. Nú sem stendur virðist áhuginn fyrir iÞróttum eða likamlegri Þjálfun vera að færast i vöxt. Nú fyrst virðast nem- endur vera að vakna. Þeir eru farnir að kunna að meta gildi iÞrótfcanna og Þýðingu fyrir lik- amlega Þroskun. Það dylst víst fáum að best vasrij að hver maður iðkaði iÞróttir bæði ung- ur og gamall, og ekki síst Þeir, sem hafa mikl- ar kyrsetur, svo sem við nám eða aðra yinnu, sem ekki lætur mönnum i tje neina likamlega hreyfingu. A Þessu sjer maður, að Þaðeru ein- mitt við, sem eigum að stunda iÞróttir. Við, sem sitjxjm sex stundir á dag innan skólaveggj- anna hreyfingarlitiir og ekki i sem bestu and- rúmslofti. Við Islendingar erum langt á eftir nágrannaÞjóðum vorum á Þessii sviði eins og á svo mörgum öðrum. 1 mörgum erlendum skólum eru úti-iÞróttirnar iðkaðar með fram bóknáminu,en hjer veit jeg ekki til Þess, að rektor eða kennarar hafi nskkurntíma gert neinar ráðstaf- anir til Þess að gefa nemendum tækifæri til Þess að iðka annað en leikfimi. Þeir virðast hafa verið blindir fyrir gildi iÞróttanna ekki siður en nemendurnir. Nú í byrjun Þessa skóla- árs fengum við nýjan fimleikakennara, Valdi- mar Sveinbjörnsson. Vnldimar er áhugamaöur á sviði iÞróttanna, og hefir hvatt nemendur til iÞróttaiðkana og hefir orðið vel ágengt. Nú hafa nemendur gagnfræðadeildarinnar stigið stórt spor i áttina. Þe.ir hafa stofnað iÞrót.ta- fjelag innan Fjölnis, sem hefir Það markmið, að fá nemendur eftir skólatima til Þess að hrista af sjer deyfð og drunga dagsins, með i- Þróttaiðkunum, og geta. Þeir Þvi næst sest að bókum sinum, með meira fjöri en ella. Fim- leikakennarinn hefir heitið fjelaginu aðstoð sinni og lofað að standa fyrir æfingum. Erum við Valdimar mjög Þakklátir fyrir aðstoð hans og áhuga. Jeg vona að Það verði tekið vel i Þessa viðleitni okkBr i Þessa átt, og nemendur geri sjerÞað að skyldu a.ð ssekja vel æfingar. Þvi aðeins getur fjelagið starfað að samtökin sjeu sem mest og best. Fjelag Þetta er ein- göngu fyrir nemendur gagnfræðadeildarinnar,en >ess verður vonandi ekki langt að biða,að nem- endur lærdómsdeildar komi einnig frarn á sjón- arsviðið með slikan fjelagsskap .fyrir sig,svo ekki verði hægt að segja, að Þeir sjeu eft- irbátar okkar á Þessu sviði. Við höfum enn- Þá ekki neinn sjerstakan iÞrótavöll, en Þess verður vonandi ekki langt að bíða.Það hefir heyrst margt um Það mál, en engar framkvæmdir hafa komið fram ennÞá. Menta- skólanemendur hafa sem betur fer litið gert af Þvi að sýna listir sinar utan skólans,en ekki er samt lsust við Það. Öllum er i fersku minni hiö svo kallaða skólahlaup sið- astliðinn vetur, að minsta. kosti Þeim, sein tóku Þátt i Því. Knattspyrnufjelag Reykja- vikur ljet Það boð út ganga bæði i ræðu og riti, að öllum skólum skyldi heimil Þátttaka i Þessu svonefnda skólahlaupi,Þar sem eingöngu máttu keppa kennarar og nemend- ur. Mjer er vist óhætt að segja, að enginn af kennurum Mentaskólans ha.fi sótt um Þátt- töku i hlaupinu, en aftur á móti sendi skólinn Þangað fjóra nemendur, er skyldu koma Þar fram fyrir skólans hönd. Menta- skólinn varð sjer til skammar Þarna. En af hverju? Það var vegna Þess að Þátttakan var of litil. Hvaða. Þátttaka er Það frá skóla, sem hefir um 250 nemendur, að hann skuli ekki senda nema fjóra menn til keppn- innar? Margir haldá kanske að skömmin hafi verið mest af Þvi að við vorum siðastir.Nei, alls ekki. Þvi ekki geta allir verið fyrst- ir, og altaf verður einhver að vera siðast- ur. Nei, Það er eins og jeg sagði áðan,Þátt- takan var of litil. Jeg vona a.ð nemendur hins almenna Mentaskóla standi sig betur næst Þegar svo ber undir. Ahuginn er að aukast, og samtökin fara batnandi. Þá verð- ur vonandi ekki hægt að segja um Mentaskól- ann, að hann hafi verið siðastur sökum leti og áhugaleysis. Grim'ur G-rimsson. A K Y R R U M A F T N I . Eftir Jeppe Aakjær. A kyrrum aftni saman sátum við og svalur lækur rann við okkar hlið. Og dalalæða laumaðist um grund og ljett var gaukakvak um aftanstund. Aldrei jeg Þekti undurÞögn svo rika, aumingja gauksi Þagði núna likal

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.