Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 06.04.1929, Blaðsíða 11

Skólablaðið - 06.04.1929, Blaðsíða 11
-11- Þá fann jeg varmann vanga snerta minn hve var 'ún himnesk Þessi mjúka kinn. Heð Ijúfum armi að sjer hægt mig dró, svo cákveðin en blið og varkár Þó, og sagði orð, sem enn mitt hjar.ta bifa og æ jeg geymi: "Það er sælt að lifa"] Þýtt af Simba„ BÖKASKRl IÞÖKU. Ar hvert greiða memendur Þessa skóla all- álitlega fjárupphæð til bókasafnsins ÍÞöku. Safnið ver mestum hluta Þess fjár til bóka- kaupa og á nú-orðið hátt á Þriðja Þú-sund bindi. En notkun nemenda á safninu er yfir- leitt grátlega litil, Þó að til sjeu fáein- ar heiðarlegar undantekningar. Ekki er Þetta notkunarleysi nemöndum sjálfum einungis að kenna, heldur og Þvi, hve ókunnugir Þeir eru bókakosti sáfnsins. Nokkrar spjaldskrár á safnið um bækur sinar. En Þær geta nemendiir aðeins notað i útlánsstundum, og aúk Þess hafa fæstir Þeirra nokkurt gagn af slikum skrám. En til Þess að velja sjer bækur, Þurfa Þeir helzt að geta athugað skrárnar heima hjá sér í ró og næði, en ekki i troðn- ingi og timaleysi úti i iÞöku. Af Þessum orsökum hefir núverandi stjórn iÞöku ráðist i að.gefa út fjölritaða skrá um bækur safnsins. Þótt kostnaðurinn sé mikill við Það, álitur stjórnin Þó heppilegra að spara viö sig að einhverju leyti á öðrum svið um, heldur en cað láta Þúsundir bóka grotna niður og mygla ónotaðar i hillunum, sckum Þess að fáir vita, hvað til er„ Mun Þetta fyrirtæki vafalaust aiika notkun safnsins að miklum mun, og er Þá vel farið„ Prentun bókaskrárinnar var lokið fyrir nokkru, en sökum Þess, hve langt var liðið á veturinn og fáir útlánsdagar eftir, var ekki tiltækilegt að útbýta skránum i vetur. En Þeim mun útbýtt Þegar á næsta hausti, og er Þess að vænta, að Þær verði til verulegs gagns. Stjórn ÍÞöku. -----x----- Fjölritunarstofa Pjeturs G. Guðmundssonar. FRA NJALI. Eftir stórhriðarnar i vetur hefur bind- indis- og útiferðafélagið Njáll sótt i sig veðrió og starfað af kappi. Margir félagar hafa bætzt við og eru allir mjög áhugasam- ir fyrir vexti og viðgangi félagsins. Hafa fundir verið haldnir, og útiferðir farnar upp á Esjr. og suður á Reykjanes. Voru báð- ar ferðirnar hinar ánægjulegustu, enda var veður ákjósanlegt og- færðin góð. Hafa ter náð til fullnustu tilgangi sinum að gefa nemcndum Þessa skóla kost á að létta sér upp úr lestrarstritinu og endurnærast á likama og sál úti i guðsgrænni náttúrunni og tæru f jallaloftinu. Er i rá.ði að efna enn til ferðalags i páska-leyfinu og i reesta mánuði. - Hefur hagur félagsins færst mjög i betra horf i seinni tið og er Það að vonum um ja,fnheilbrigáan félagsskap. Gunn<ar Thoroddsen. IÞR ÖTTAS J ÖÐUR. Akveðið hefir verið að selja aðgang að knattspyrnu-kappleik Þeim, sem fram fer milli stúdenta og skólapilta. Ef ágóði ksnn að verða, verður honum jafnt skift milli beggja aðilja. Nefnd sú, sem sjer um leikinn af skólans hálfu, hefir, ásænt leikfimiskennaranum,orð- ið ásátt um, að verja fjenu, ef nokkru nem- ur, til sjóðsstofnunar. Tilgangur Þess sjóðs sje, að kaupa iÞróttaáhöld fyrir skólann. - Gerir nefndin Þetta i Þeirri von, að sjóðn- um vaxi fiskur hrygg og að nemendur hlynni að bonum á. allan hátt, Þannig að hann i framtiðinni verði sty°:ur og stoð iÞrótta- iðkana 1 skólanum. Peningar eru afl Þeirra hluta, sem gjöra skal. K.G. RITSTJÖRN: Arnljótur Guðmundsson, Bjarni Jónsson, Bjarni Pálsson, Gunnar Pálsson, Gunnar Thoroddsen, Guttormur Erlendsson, Halldór Kjartansson, Jón Gislason, Kjart- an Magnússon, Kristján Garðarsson, Sigur- björn Einarsson, Snorri ölafsson, Sölvi Blöndal, Þorvarður Þorvarðsson. Ábyrgðarmaðm’: Jakob Jóhannasson Smári.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.