Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 09.04.1932, Qupperneq 1

Skólablaðið - 09.04.1932, Qupperneq 1
Utgefend.ur: Nemendur Menntaskólans í Reykjavík. 5. fbl. ■ 9. apríl SAGAN UM LITLA MANNINN, . SEM VILDI VERÐA STGR. Til er gamalt æfintýri, sem hefur sömu fyrirsögn og Þetta greinarkom. Sjálf fyrir- sögnin segir ekki svo litið iam efnið. Sögu- hetjan er mjög lítill maður, sem á Þá ósk eina, að verða stór. Venjulegast er Þetta heilbrigð löngun, en Þama stóð svo á, að engir hæfileikar fylgdu. Hugur vesalings mannsins gat ekkert framleitt, nema Þessa einu ósk. Þrátt fyrir Það tókst honum,sökum heimsku mannanna, að komast í ýms embætti, og við hvert spor upp á við belgdi hann sig út, og spurði með Þjósti: "Er ég nú ekki orðihn stór?". En Þá. komu ýmsar verur, svo sem skynsemin, manngæzkan og heiðarleikinn, og mældu hann, en aldrei náði hann máli. Hann varð altaf lítill. Mér Þótti litið til Þessarar sögu koma, Þegar ég las hana sem bam. En síðustu vet- uma hef ég séð hana leikna í aðalatriðum, Þessvegna viðurkenni ég nú Þá mannÞekkingu, sem bak við hana liggur. Betri persónugerf- ing litla mannsins, en Birgir Einarsson, inspect. scholae, hygg ég að verði talsvert torfundin. Ég skal nú skýra Þetta nokkru nánar. Birgir hefur birt i Skólablaðinu nokkur kvæói, bæði s. 1. ár og i vetur. Yrkisefni hans er einkum draugar og bindindismenn á vín. Og undir kvæði, sem hann lét i Skóla- blaðið i vetur, setti hann nafn sitt, a.ð viðbættum titlinum: Inspect, scholaej Þaö er ekki ósvipað Þvx, Þegar litli maðurinn blés sig út við hvert embætti, og spurði; "Er ég nú ekki orðinn stór?" En kæmi nú bókmenntasagan og mældi Birgi sem skáld, efast ég um, að kvarða hennar væri skift svoí nákvaant niður, að Þetta irskáld" væri tækt á hann. 1932. f7. Arg. Þá er að athuga "trúnaðarstöðuna", sem Þessi maður situr i. En mér leikur grunur á Þvi, að hefði heiðarleiki komið og 'mælt Birgi Einarsson, Þegar hann lýsti sig sjálfan réttkjörinn inspect. scholae, eftir að marg- reynt var, að meirihluti nemanda fylgdi honum ekki, Þá hefði hann ekki verið stærri eftir en áður. I grein i siðasta nr. Skólablaðsins fer Þessi litli maður á stúfana. með grein sem nefnd er "Skólalifið". En hefði rökvisin eða sannsöglin lagt mælikvarða sinn á höfund hennar, Þykir mér ótrúlegt, að Þar hefði farið betur en áöur. Ástæóan til Þess að inspectorinn lét ljós sitt skina i Þessari grein, var tillaga, sem borin var upp á skólafundi 22. jan. s. 1. Kvöldinu áður fór hópur margra verkamanna i friðsamlegri kröfugöngu Þangað sem bæjar- stjóm Reykjavikur sat á rökstólum og krafð- ist Þess, að bærinn léti byrja á atvinnu- bótum. Ryrir Þessa fifldirfsku, að biðja um að lofa sér að Þiæla, var vopnaðri lögreglu sigað á Þá, og sumir barðir til óbóta.Sjón- arvottur úr hópi nemanda sagði frá Þessum atburöi á skólafundi, og á fundinum kom fram tillaga, undirrituð af 6 nemöndum úr 5 bekkj- ardeildum skólans, Þar á meðal scriba scholaris og fyrverandi og núverandi for- setum "Pramtiðarinnar". Þama var farið fram á Þa.ð, að almennur fundur Menntaskólanem- anda lýsti yfir samúö sinni með Þessum ungu verkamönnum, og óbeit á valdhöfiom Þeim, er Þannig beittu valdi sinu. 5 nemendur töluðu með tillögunni, en inspect. einn á móti. Eftir vafninga og undarlegar atkvæðagreiðslur, Þar sem inspect. misbeitti valdi sinu sem fundarstjóri, var tilla.gan felld, með ör- litlum atkvæðamun. - Um Þetta á greinin i siðasta nr. Skólablaðsins að fjalla. En sá er gallinn á, að ein stór hugsana- villa gengur i gegnum alla greinina. Það kem- ur fyrir hvað eftir annað, að ómögulegt er

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.