Alþýðublaðið - 14.10.1923, Side 1
1923
Sunnadaginn 14. október.
239. tólublaó.
BæjarstiórnarkosDingiQ 1 Hafnarfirði.
Kosning á einum manni í bæj-
arstjórn Hafnarf j arðar fer fram
á morgun; kosið í stað Stein-
gríms Torfasonar, sem úr hefir
gengið.
Verður kosið milli tveggja
iista, sem fram hafa komið:
A-lista, og er á honum Bjarni
Snæbjörnsson læknir.
B-lista, með Guðmundi Jónas-
syni verkstjóra.
Er B-listinn borinn fram af
verkamönnum, en A-listinn af
fáeinum burgeisum hér.
pessi kosning er ekki vanda-
söm fyrir Hafnfirðing’á, enda
eru úrslit hennar fyrir framviss.
B-listinn ' (Guðm. Jónasson) á
sem sé alveg eindregið fylgi alls
þorra bæjarmanna, og á hann
því vísa kosningu.
Hafnfirðingar þekkja vel
dugnað, einbeitni og festu Guð-
mundar, vita kunnugleik hans á
málum bæjarins og högum og
háttum almennings. þeir þekkja
líka áhuga hans, að hvaða starfi
sem hann gengur. Bezt vitni ber
honum þar starf hans í bindind-
ismálinu; rækt hans og einlægni
við það mál.
Skyldi alþýðu manna í Hafn-
arfirði ekki vera það líka holl-
ara, að kjósa mann úr sínum
hópi til þess að vinna að áhuga-
málum sínum, heldur en full-
trúaefni þeirra „borgara", sem
gera Óskar Sæmundsson að tals-
manni sínum?
því skal þó ekki neitað, að
maðurinn á A-listanum, Bjarni
læknir Snæbjörnsson, sé góður
og gegn maður. Og Hafnfirðing-
ar virða til fulls við Bjarna þá
lipurð, sem hann sýnir í læknis-
störfum sínum, þó þeir ekki
k 'ósi hann fyrir bæjarfulltrúa.
Og sannast að segja eru allir
undrandi yfir því, að Bjarni
skyldi leiðast út í það, að verða
í kjöri.
það er aðallega tvent, sem
fyrir fram gerir það að verkum,
að Bj arni verður ekki kosinn:
Hið fyrra er það, að bæjarbú-
ar vilja hafa hann óskiftan við
læknisstörfin. Sjúkdómar og
slys gera ekki boð á undan sér.
Hversu mikilsverð mál sem bíð.a
úrslita á bæjarstjórnarfundum
eða í nefndum, þá verða þau að
þo'ka, ef kallað er í lækninn. Og
við, sem þekkjum Bjarna, vit-
um,- að ekki mundi á honurri
standa að gegna sinni eiginlegu
köllun. En á sama tíma geta úr-
slit hinna mikilvægustu bæjar-
mála oltið á einu atkvæði. At-
kvæði þess mannsins, sem em-
bættis- og skyldustörfin kölluðu
burt. Og egginn kann tveim
herrum að þjóna.
Síðara átriðið er annars eðl-
is, en það gerir þó ef til vill enn
þá meira í þá átt, að fæla menn
frá því, að kjósa Bjarna. Og það
er það, hverjir standa að kosn-
ingu hans. En það er sú „klíka“
manna í Hafnarfirði, sem óholl-
ust hefir verið almenningi fyrr
og síðar. Og kórónan á þessu
öllu er þó það, að þessi klíka
skuli lúta svo lágt, að hafa ann-
að eins gerpi og „ritstjóra“
„Borgarans“, fyrir málssvara
sinn. Og það er leitt, að mætir
menn eins og Bj arni læknir skuli
fá á sig óorð af samneyti við
slíkan félagsskap.
það þýðir ekkert íyrir vélrit-
aða snepilinn að vera að telja
fram mál, sem B. S. muni beita
sér fyrir. í verklegum efnum,
eins og t. d. vatnsveitu og hafn-
argerð er Guðm. Jónasson ekki
JQOOtXXE]
g U
i LocaaaLíka bezts
fi r—Reyktítr mest |
ólíklegri til dáða og fram-
kvæmda. Og í spítalamálinu ef-
ast ég ekki um, að Bjarni lækn-
ir mundi veita bænum þá að-
stoð, sem hann gæti, þó ekki
verði hann kosinn bæjarfulltrúi.
Hann er þá ekki sá maður, sem
ég ætla.
J>að er hlálegt, þegar snepill-
inn fer að bera hina „miklu
vinnuþörf almennings“ fyrir
brjósti. Úr hans herbúðum hef-
ir aldrei verið lagt gott til þeirra
mála. En fyrir aðstandendur
snepilsins gæti það verið dálítið
óþægilegt, ef farið væri að rifja
upp afskifti „klíkunnar“ í þéss-
um efnum. Gæti þá svo farið,
að menn færu að rifja upp ís-
töku-vinnuna í fyrra og ,,Ýmis“-
hneykslið fr^ í sumar.
Nei; það þýða engar blekking-
ar við Hafnfirðinga í þessum
efnum. þeir vita vel, hvernig
þeir eiga að haga atkvæði sínu
á morgun. Og maðurinn á B-
listanum verður áreiðanlega
kosinn með yfirgnæfandi meiri
hluta.
Og þá gera Hafnfirðingar
skyldu sína, og fá góðan full-
trúa. Hafnfirðingur.
»Borgarinn< ætlar að berjast
á móti því, sem hann kallar
»stéttarfg<, en h^nn byrjar þó
á því, að skifta mönnum í tvo
flokka : borgara og kommúnista.
Skyldi hún ekki verða fámenn
sveitin sú, sem s’Bpar sér undir
merki gjaldþrota-<borgarans<
Ó<kars Sæmundssonar?
Hraunbúú