Norðurland


Norðurland - 18.03.1977, Blaðsíða 6

Norðurland - 18.03.1977, Blaðsíða 6
OAGBÓk VlkliNNAR ... • Umhelgina Hátíðamessa í lok kirkjuviku í Akureyrarkirkju sunnudag- inn 20. mars kl. 2 eh. Biskup- inn yfir íslandi, herra Sigur- björn Einarsson prédikar. Sunnudagaskóli Akureyrar- kirkju 20. mars kl. 11 fh. Sálarrannsóknafélagið: Fund- ur í litla salnum, Varðborg, kl. 9 sunnudagskvöld 20. þm. Kvenfélagið Framtíðin: Árleg merkjasala laugardaginn 19. mars. Ágóði rennur í Elliheim ilissjóð félagsins. IOGT-bingó á Hótel Varðborg föstudag 18. mars kl. 20.30. Sjálfsbjörg: Spilakvöld í Al- þýðuhúsinu sunnudag 20. mars kl. 8.30 eh. Köku- og munabasar kvenna- deildar Styrktarfélags vangef inna að Hótel Varðborg laug- ardag 19. mars kl. 15. Geðverndarfélag Akureyrar: Köku- og munabasar á Varð- borg sunnudag 20. mars kl. 3 eh. • Næsta vika Opið hús fyrir aldraða mið- vikudag kl. 3 á Hótel Varð- borg. IOGT St. Brynja nr. 99: Fund ur mánudag 21. mars kl. 9 sd. í Félagsheimili templara, Varðborg. Föstumessa í Akureyrarkirkju miðvikudagskvöld 23. mars kl. 8.30. • Ferðalög Ferðafélag Akureyrar: Gler- ár dalur -Kerling. Lagt upp laugardaginn 19. mars kl. 14. Gist í Lamlba, gengið á Kerl- ingu á sunnudag. Um næstu helgi, laugardag 26. mars, verður skíðagönguferð. Þátt- taka tilkynnist kvöldið fyrir ferðir í síma 23692 kl. 19—21. Ath. Þeir sem hafa hug á snjó bílsferðinni um páskana láti skrá sig sem fyrst. • Sýningar Gallery Háhóll: Grafiksýning ophuð kl. 15 laugardag. Opið virka daga kl. 18—22, helgar kl. 14—22. • Leikhús Leikfélag Akureyrar: „Sölu- maður deyr“ sýnt á föstudag og á sunnudag kl. 20.30. Leikfélag M.A. frumsýnir „Ó þetta er indælt stríð“ fimmtu- daginn 24. mars kl. 8.30 sd. í Samkomuhúsinu. • Kvikmyndir Sýningum fer senn að ljúka á myndinni „Logandi víti“ 1 Borgarbíó, en uppselt hefur verið á allar sýningar til þessa. Þess má geta, að í anddyri hússins sýnir Slökkvilið Ak- ureyrar slökkvidælu módel 1906 í tilefni kvikmyndsaýn- ingarinnar, en myndin fjallar, einsog áður hefur verið sagt frá, um ævintýralegan flótta undan eldsvoða í skýjakljúf. Næsta mynd Borgarbíós verður Marathon Man, sem ekki er síður spennandi þótt á annan veg sé, en hún var jóla mynd Háskólabíós og sýnd vikum saman. Leikstjóri er John Schlesinger og aðalhlut- verkin í höndum frábærra leikara, Dustin Hoffmans og Laurence Oliviers, sem fékk óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í þessari mynd. Á sunnudag kl. 3 er á dag- skrá fyrir börnin Lína lang- sokkur fer á flakk. Að lokum má geta þess, að mynd Reynis Oddssonar, Morðsaga, verður sýnd mjög bráðlega í Borgarbíói. • Nöfnin rugluðust Línubrengl varð til að rugla nöfnum stjórnarmanna í Sjó- mannafélagi Eyjafjarðar í frétt í síðasta tölublaði NORÐ URLANDS. Eru viðkomandi beðnir afsökunar á þessum mistökum, en rétt er stjórnin þannig skipuð: Formaður Guð jón Jónsson, varaformaður Ragnar Árnason, ritari Ár- mann Sveinsson, gjaldkeri Matthías Eiðsson og meðstjórn andi Jón Hjaltason. • Leiðrétting í „Pistli vikunnar“ 4. þm. féll niður ein lína, þannig að merking öll brenglaðist. Minnst var á þann mun sem er á afstöðu hinna tveggja meginfylkinga í alþj. verka- lýðshreyfingu til „leikreglna“ borgaralegs samfélags. Rétt hljóðar málsgreinin svona: „M. ö. o.: kratar vilja fylgja í einu og öllu leikreglum borg- aralegs þjóðfélags og stuðla þannig í raun og veru að því að viðhalda arðráni manns á manni um alla eilífð.“ Af setningunni eins og hún var mátti ráða, að höf. væri haldinn þeirri meinloku margra vinstri sirma að telja okkar góðviljuðu krata svo slæma, að þeir vildu bókstaf- lega „arðrán manns á manni um alla eilífð“. Svo er ekki. Það getur hinsvegar verið tals verður munur á því sem menn vilja og því sem þeir koma hlutlægt til leiðar. • Gerningar í útvarpi Fjenda stígur flokkurinn fram í ljósi skæru, til að sýna tófuskinn teygt í sauðargæru. S. Virðingarleysi eða hvað? t>annig hljóðar fyrirsögn for- -rstugreinar síðasta heftis tíma vitsins „Heimili og skóli“, sem blaðinu hefur nýlega borist, en það er gefið út af Kennara- sambandi Norðurlands eystra. í greininni er bent á hve lengi starf kennarans hafi ver ið lítils metið og nánast ætlast til, að hann fengi launað með himnaríkisyist að loknu ævi- starfi, — „en þótt guðsbless- unin sé vissulega góð, er ekki víst að til lengdar verði lifað á henni einni,“ segir blaðið: „Kennarastéttin hefir sýnt það á liðnum árum að hún er seinþreytt til vandræða, en svo lengi má brýna deigt járn að bíti um síðir. Um nokkurt árabil mátti kennarastéttin horfa upp á það, að kennaramenntuninni væri beinlínis ýtt til hliðar af stjórnvöldum og Kennarahá- skólinn gerður að einum af menntaskólum landsins með þeim árangri að á undanförn- um árum hefir gengið afar illa að ráða kennaralært fólk að skyldunámsskólunum. Nú þegar byrjar að rofa til og nemendum við Kennarahá- skólann fjölgar, er aftur veist að stéttinni og á þann veg að kennaramenntunin er mis- jafnt metin til launa eftir því 'hvenær kennaraprófið er tek- ið. Hvenær hefur slíkt þekkst um embættispróf annarra starfsstétta þjóðfélagsins? Eða er það kannski virðingarleysi fyrir kennarastéttinni sem því veldur?“ Ráðist á samþættingu í tímaritinu er að venju margt áhugavert efni varð- andi uppeldis- og skólamál, ma. skrifar Jónas Pálsson 4. og síðustu grein sína um kenn aramenntun, Valgarður Har- aldsson skrifar um Hárjedal í Svíþjóð og ráðstefnu um skóla mál í dreifbýli sem þar var haldin og Bernharð Haralds- son B.A. fjallar um stöðu les- greinanna í skólakerfinu með hliðsjón af þeirri endurskoðun sem nú fer fram. Má ætla, að þar um eigi ýmsir eftir að láta heyra frá sér með og móti, því hann ræðst óvægilega að þeirri samþættingu náms- greina sem nú er boðuð og markmiðum endurskoðunar námsefnis í samfélagsfræði. Þá er birtur í ísl. þýðingu fyrirlestur sænska myndlist- arkennarans Theodors Pauck- stadts um listfræðslu, og grein frá UNESCO um Opna háskól ann svokallaða. Bridgefélag Akureyrar: Lokið firma- og einmermingskeppni Sparisjóður Glæsibæjarhrepps sigraði í firmakeppni Bridge félags Akureyrar, en fyrir hann spilaði Alfreð Pálsson. Sigurvegari í einmennings- keppninni, sem spiluð var jafnhliða, varð Soffía Guð- mundsdóttir. í firmakeppninni voru spil- uð alls 30 spil fyrir hvert fyrir tæki og var meðalárangur 90 stig. Röð fimm efstu fyrirtækj anna er þessi (nafn spilara innan sviga): 1. Sparisjóður Glæsibæjar- hrepps 124 stig, (Alfreð Páls- son). 2. Gufupressa Akureyrar 123 (Soffía Guðmundsdóttir). 3. Vör hf., skipasmíðastöð 121 stig (Ármann Helgason). 4. Læknamiðstöðin 117 stig (Guðmundur Svavarsson). 5. Útgerðarfélag KEA 116 stig (Gunnlaugur Guðmundsson). í einmenningskeppninni réði samanlagður árangur í þremur fyrstu umferðunum. Einmenningsmeistari Bridge félags Akureyrar 1977 varð Soffía Guðmundsdóttir, en hún var eina 'konan sem spil aði í keppni þessari. Meðalár angur var 270 stig. Röð estu manna var þessi: 1. Soffía Guðmundsd. 314 stig. 2. Alfreð Pálsson 313 stig. 3. -4. Ármann Helgason og Jó hann Gauti 308 stig. 5. Þcirmóður Einarsson 307 st. 6. Gunnl. Guðm.son 306 stig. 7. Guðm. Svavarsson 301 stig. 8. Ólafur Ágústsson 300 stig. 9. Stefán Ragnarsson 287 stig. 10. Sveinn Sigurgeirss. 286 st. 11. Hörður Steinbergss. 285 st. 12. Arnald Reykdal 282 stig. Keppnisstjóri var Albert- Sigurðsson. Stuðningsyfirlýsing; við Alþýðuleikhúsið Stjórn íslendingafélagsins í Lundi hefur beðið um birt- ingu eftirfarandi stuðnings- yfirlýsingar: „Alþýðuleikhúsið kom í heimsókn til Lundar 6. desem ber sl. og sýndi leikritið Krummagull við mjög góðar undirtektir. Hefur það vakið athygli hér í Svíþjóð, að ís- lenskur leikhópur treystir sér til að kynna á þennan hátt ís- lenska menningu, án þess að njóta nokkurra opinberra styrkja, en opinberir styrkir til hliðstæðra leikhúsa hafa nýlega verið hækkaðir mikið í Svíþjóð. Bæði í þakklætisskyni fyxir heimsóknina og til þess að styðja hið gagnmerka framtak Alþýðuleikhússins samþykkti aðalfundur íslendingafélags- ins í Lundi 20. febrúar sl. að kaupa tvö styrktarkort Al- þýðuleikhússins. Einnig býðst félagið til að greiða götu leik hússins eftir bestu getu, ef það á nýjan leik vill ferðast um Norðurlönd og kynna þannig íslenska leiklist.“ Leikfélag Akureyrar Sölumaður deyr eftir Arthur Miller Sýning föstud. kl. 20.30 Sýning sunnud. kl. 20.30 Miðasala kl. 5 —7 daginn fyrir sýningardag og kl. 5 — 8.30 sýningardaginn Sími11073 6 — NORÐURLAND

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.