Norðurland - 29.09.1977, Blaðsíða 2
Hilmar
Indriðason
F. 4. júní 1931, d. 16. sept. 1977
Nokkur kveðjuorð
„swing“-músík líður ekki úr
minni, né gleðistundir þeirra
ára, þegar teygað var stærst af
bikar lífsgleðinnar. Þá unnum
við í síldarverksmiðjunni á
Raufarhöfn og þágum margan
greiðann á heimili hans og
Birnu. Þar var alltaf glatt á
hjalla, ekki síst fyrir kímni,
spaugsemi og smitandi hlátur
Hilmars. Æ síðan hélt hann við
okkur vináttu og tryggð, meiri
en við flesta óvandabundna.
Hilmari var margt vel gefið,
aflasæld og hreysti, félagslyndi
og hjálpfýsi, en þó var honum
varnað að njóta gengis í lífinu,
sem efni stóðu til, vegna ofur-
valds þess konungs sem leikur
hirðmenn sína harðar en aðrir
konnngar. Þar átti Hilmar við
stóran vanda að stríða og stóð
ekki réttur eftir. Því eru örlög
hans og ævilok dapurleg. Frá-
fall hans hlýtur að vera fjöl-
skyldunni sársaukafullt. Hilm-
ar var þannig í samskiptum við
sína nánustu að margar og
sterkar tilfinningar hlutu að
vakna. Sárastur er missirinn
kannski fyrir Helga litla, sem nú
saknar hlýrrar föðurhandar,
enda var Hilmar meö atbngð-
um barngóður.
Við vottum Birnu, börnun-
um og öðrum ástvinum dýpstu
samúð. f okkar huga ber hans
bestu hliðar hæst. Ánægju-
stund við bridgeborðið, sum-
arnótt á handfærum og seiðandi
harmonikkutónar rista djúpt í
hafi endurminninganna við end
uróm af gamansemi og glað-
værð. Og aldan frá kjölfarinu
hnígur ekki á stuttri mannsævi.
Þökkum samfylgdina.
Vertu sæll félagi.
Angantýr og Óttar.
AKUREYRARBÆR
Heimilis-
þjónusta
Starfsfólk óskast til heimilisþjónustu frá 15. okt.
eða 1. nóv. nk. Skriflegar umsóknir sendist fyrir
5. október.
Upplýsingar veitir Edda Bolladóttir í síma 21377.
Á fögru haustkvöldi, í veðri eins
og þau verða best og blíðust í
september á Norðurlandi eru
trillukarlarnir að koma að á
Raufarhöfn. Þetta sinn vantar
einn í hópinn. Báturinn er
bundinn milli bryggjanna - ein
mesta veiðiklóin er kólnuð, einn
snjallasti fiskimaðurinn hefur
drukknað í höfninni, örskammt
undan fjörunni þar sem hann
sleit barnsskónum.
Við kynntumst Hilmari áung
lingsárum okkar, óreyndir
skólastrákar, hann var greind-
ur, lífsglaður og lífsreyndur,
hugarheimurinn nær ósnortinn
af skóla og bókviti en því fyllri
af straumum, stormum og lífi.
Viðhorfin og lífernið voru langt
frá allri hversdagsmennsku.
Hann lék flestum betur á harmo
nikku - kannski hefur enginn
íslenskur harmonikkuleikari
spilað fyrir margbreytilegri hóp
á dansleikjum - það var undra-
vert hvað stuttir og digrir
sjómannsfingurnir voru liprir á
hnappanikkunni og ekki voru
útsetningarnar aldeilis af lakari
endanum. Hans taktfasta
FÉLAGSMÁLASTOFNUN AKUREYRAR.
Frá Hússtjórnarskóla
Akureyrar
Vetrarstarfsemin hefst 3. október með áður aug-
lýstum námskeiðum. Auk þess verða námskeið í
síldar- og fiskréttum og í haustverkum (þ.e. fryst-
ingu, niðurlagningu og áleggsgerð)
Upplýsingar í síma 1-11-99 milli klukkan 2-4.
SKÓLASTJÓRI.
^ ■ ■ -- -------------------------- - - ■
að Víði
Haldi einhver að hér á landi
þrífist ekki pólitísk spilling
umfram það sem gengur og
gerist i auðvaldsheiminum í
kring um okkur, þá ætti sá
hinn sami að rifja upp mál,
sem mjög var umtalað fyrir
fáum árum síðan og kennt við
Ármannsfell. Svo ætti hann að
lesa ásakanirnar sem nýlega
birtust í Dagblaðinu vegna
kaupanna á Víðishúsinu, en
þar er því haldið fram að viss
hluti kaupverðsins eigi að
renna beint í sjóði Sjálfstæðis-
flokksins, þannig að seljandi
hússins og Sjálfstæðisflokkur-
inn skipti með sér mismun-
inum á matsverði þess og
söluverði.
Þessar ásakanir eru að
sjálfsögðu alvarlegri en svo, að
hægt sé að afgreiða þær með
neitandi svari frá þeim sem
þær beinast að, einkum þó
þegar þess er gætt að þeir Dag-
blaðsmenn munu þekkja
köngulóarvefi Sjálfstæðis-
flokksins betur en gengur og
gerist. Það eru engan veginn
fullnægjandi endalok þessa
máls þó að Dagblaðið gangi í
sig af ótta við meiðyrðalög-
gjöfina, því að eftir stendur sú
staðrevnd að hússkrifli þetta
var í júní sl. af innkaupa-
stofnun ríkisins metið á 135
mkr. en er nú selt ríkinu á 259
mkr. Meira að segja gagn-
rýndi landsþing ungra sjálf-
stæðismanna þessi kaup;
bragð er að þá barnið finnur. .
Vegna þeirra sem e.t.v. hafa
gleymt Ármannsfellsmálinu
skal það hér rakið í stórum
dráttum. Upphaf þess var
þannig að á róstusömum fundi
hjá Sjálfstæðismönnum í
Reykjavík var borgarstjórnar-
forustan sökuð um að hafa
veitt lóðir með hliðsjón af
greiðslum manna í bygginga-
sjóð Sjálfstæðisflokksins. I
blaðaumræðum sem út af
þessu spunnust kom fram að
Ármannsfell hf. hafði þá ný-
lega lagt í umræddan bygg-
ingarsjóð verulega fjárupp-
hæð, sem var margfallt hærri
en árlegur hagnaður hluta-
félagsins. En fyrirtækið hafði
um sama leyti fengið leyfi fyrir
mjög eftirsóttri lóð. Eftir mikil
blaðaskrif tók Reykjavíkur-
íhaldið þann kostinn að láta
fara fram rannsókn. Sigur-
jón Pétursson borgarráðsmað
ur krafðist þess að rann-
sóknin leiddi í ljós, hvort
fylgni væri milli framlaga
manna og fyrirtækja í bygg-
ingarsjóðinn annarsvegar og
fyrirgreiðsla þeirra sem þess-
ir sömu aðilar fengu varðandi
lóðaúthlutun í höfuðborginni
hinsvegar.
Þetta fékkst þó ekki kannað
og þarmeð var hér aðeins um
sýndarrannsókn að ræða.
Nú eru u.þ.b. tvær vikur
síðan einn nánasti vinur og
samstarfsmaður Carters
bandaríkjaforseta varð að
segja af sér af þeim ástæðum
að fjármál hans frá fyrri árum
viftust eitthvað tortryggileg,
og voru þó ásakanir þær sem
hann var borinn ekki verri en
svo að forsetinn sá sér fært að
votta honum traust sitt við
afsögnina.
Það er sannarlega ástæða til
að velta því fyrir sér, hvaða
afleiðingar eitt Ármannsfells-
mál eða eitt Víðismál myndi
hafa í landi eins og Banda-
ríkjunum, en það er al-
varlegast af öllu að tvö svo
keimlík mál skuli koma upp
með svo stuttu millibili. Hver
skyldi svo vera ástæðan fyrir
því að við íslendingar höfum
ekki ennþá fengið neitt voter-
geit.
J.H.J.
Frá Ármannsfelli
Slátursalan hafin!
Opið frá kl. 9-18, virka daga
Á laugardögum kl. 9-16
Sendum heim
Slátrunum fylgja sviðnar
lappir og sagaðir hausar.
Nautakjöt, hálfir skrokkar,
tilbúnir í frystikistuna.
KAUPFÉLAG SVALBARÐSEYRAR
Sími 2-13-38 og 2-12-04
2 -NORÐURLAND