Norðurland - 29.09.1977, Síða 7
Hliðar-
ráðstafanir
með friðunar-
aðgerðunum
nauðsyn
Sjávarútvegur, veiðar, og
vinnsla er ein helsta undirstaða í
atvinnulífí Norðlendinga, segir í
ályktun Fjórðungsþings Norð-
lendinga um sjávarútvegsmál,
þar sem lýst er fylgi við ráðstaf-
anir til verndar fískstofnunum,
en jafnframt bent á að nauðsyn-
legar séu sérstakar hliðarráðstaf
anir til aðstoðar þeim byggðar-
lögum þar sem friðunaraðgerð-
ir hafa verulegar aflaskerðingar
í för með sér.
Verði um aflatakmarkanir
almennt að ræða, þá skulu þær
grundvallast á skiptingu milli
skipa, veiðarfæra, staða ogtíma
bila, segir ennfremur. Fjórð-
ungsþingið metur starf Haf-
rannsóknarstofnunar að vernd-
un fiskimiðanna fyrir Norður-
landi, en bendir á að ekki sé nóg
að vernda uppeldisstöðvarnar
fyrir Norðurlandi, og telur slíka
fiskivernd ekki koma að gagni,
nema fiskistofnunum sé tryggð
vernd til að hrygna á aðal
hrygningarstöðvunum, og að
auka þurfi verndun fisks, áður
en hrygning fer fram.
Þá er lögð áhersla á nauðsyn
þess að fella niður öll veiði-
réttindi útlendinga í fiskveiði-
landhelgi íslendinga, enda fisk-
veiðifloti landsmanna nægilega
stór til að nýta fískimiðin. Bent
er á að samræma þurfi upp-
byggingu í veiðum og vinnslu og
beina fjármagni frá fjárfestingar
sjóðum til þess. Hvatt er til að
nýjar vinnslugreinar verði tekn-
ar upp og áhersla lögð á að
athugun verði gerð á hafnar-
aðstöðu útgerðarstaðanna og
uppbygging miðuð við þá skipa
stærð sem nú er til að viðhalda
traustu atvinnulífi á stöðunum.
Ennfremur á uppbyggingu sam-
göngukerfis til að samstarf
útgerðarstaðanna um skiptingu
hráefnis geti átt sér stað.
Blístur hjálpar-
kokkanna ....
Jón Oddsson, kunnur skipstjóri og útgerðarmað-
ur fortíðarinnar, segir frá því í ágœtri ævisögu
sinni, að breskur skipstjóri fræddi hann á því, að
þegar hann á unglingsárunum var hjálparkokkur á
togara og átti að búa til kúrenubúðing til hátíða-
brigðis, voru gerðar varúðarráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir að hann gæti stungið upp í sig
einni og einni kúrenu, og með þeim hætti aukið
útgerðarkostnaðinn fram úr hófi.
Hann varð að blístra látlaust meðan á matar-
gerðinni stóð, og ef honum svelgdist á og þagnaði
andartak, kallaði yfirboðarinn samstundis hastur í
máli: „Blístraðu strákur, haltu áfram að blístra."
íhaldsstjórnin, sem nú fer með völd á þjóðar-
skútunni, hefur á að skipa mörgum hjálpar-
kokkum við framleiðsluna á þeim búðingi, sem
hún vill óð og uppvæg gera að íslenskum þjóðar-
rétti, og hann samanstendur af óreiðu, skulda-
söfnun, gengisfalli, vaxtaokri, dýrtíð, verðbólgu
og skattpíningu.
Og hjálparkokkarnir verða að blístra látlaust og
lotulangt meðan á mallinu stendur. Þeir eiga að
blístra háværan lofgerðaróð um gæði réttarins og
yfirskilvitlega stjórnvisku veitendanna.
Ef þá kynni að slá þögn eitt andartak og þeir
færu nú að hugleiða aðekki muni þessi matargerð
yfir alla gagnrýni hafin, og að einhverjar
réttarbætur kynnu að gera þessa fæðu lystugri, þá
er íhaldsforystan vel á verði og öskrar upp:
„Blístraðu strákur." Og þá bregða forkólfar
eftir
Einar Kristjánsson
framsóknar við, hart og títt og gerast bæði totu-
og lotulangir.
Og fleiri bregðast vel við. Einn „frjálslyndur og
óháður" ritstjóri tók sig til og blístraði lofgerðar-
ákall til neftrjónusprengjunnar bandarísku, sem
að hans dómi virtist hafa gott eitt til að bera, en
hefði orðið fyrir óréttmætu álasi. Menn hefðu
verið að halda því fram, að hún gæti eytt öllu
mannlífi í heilum borgum, þó að mannvirki stæðu
öll eftir sem áður.
Nei.það var nú ekki ætlunin að neitt illt leiddi af
notkun þessa vopns, heldur átti til dæmis að nota
hana á skriðdrekasveitir óvinanna, og það var gert
af tómri hugulsemi og nærgætni, að vera ekki að
skemma neitt skriðdrekana þeirra. Ritstjóranum
fannst Ijótt að vera að ófrægja hluti sem gerðir
væru í góðu skyni í þágu frelsis og lýðræðis. Og
hann talaði um neftrjónusprengjuna með hlýlegri
aðdáun, rétt eins og um væri að ræða „kínverja",
sem krakkar sprengja að gamni sínu.
Og ef upprennandi heimdellingar kynnu að hafa
heyrt fagnaðarboðskapinn, má búast við að þeir
segi sem svo við íhaldspabbana sína:
„Pabbi, ég vil endilega að við fáum okkur
neftrjónusprengju til að sprengja að gamni okkar
á gamlaárskvöld."
Og þá hefur frjálslyndi og óháði hjálparkokkur-
inn sannarlega ekki blístrað til einskis.
ek.
Fjórðungsþing Norðlendinga:
Auka verður atvinnu-
val fyrir sveitafólk
f ályktun Fjórðungsþings Norð
lendinga um landbúnaðarmál
er bent á þá þróun að stöðugt
fækkar í sveitahreppum á Norð-
urlandi og vakin athygli á að
meginorsakir þessarar búsetu-
röskunar eru fábrotið atvinnu-
val í sveitum og lágar tekjur
bænda.
Hafa bændur aðeins fengið
2/3 þeirra tekna sem þeim ber
lögum samkvæmt. miðað við
hinar svokölluðu viðmiðunar-
stéttir, segir í ályktuninni, og er
Æskulýðsnetnd Alþýðubandalagsins
Ráðstefna ungra
Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins boðar unga sósíalista til landsráðstefnu á
Akureyri dagana 8.-9. október n.k.
Viðfangsefni ráðstefnunnar verður:
1) Málefni landsfundar Alþýðubandalagsins
2) Skipulagsmál ungra alþýðubandalagsmanna
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna verða veittarísíma 17500ÍReykjavíkog þar
verður jafnframt tekið við þátttökutilkynningum.
Látið skrá ykkur til þátttöku sem fyrst, svo hægt verði að senda gögn
meðgóðum fyrirvara.
Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins
ljóst, að með minnkandi mann-
afla í sveitum stefnir óðfluga að
því að byggðin grisjast svo
mikið að ekki verður lengur
félagslegur grundvöllur fyrir
búsetu í mörgum sveitum.
Víða í sveitum er fyrir hendi
aðstaða fyrir atvinnustarfsemi
og íbúðarhúsnæði fyrir fólk,
sem vill starfa að öðrum at-
vinnugreinum en landbúnaði,
ýmist að öllu leyti eða sam-
hliða búskap.
Fjórðungsþingið leggur á það
áherslu, að gerð sé víðtæk könn
un á því, hvernig hægt sé að
auka atvinnuval í sveitum til að
tryggja búsetujafnvægi, eftir því
sem aðstæður leyfa. Leggur
þingið til að gerð sé á grundvelli
þessarar könnunar, áætlun um
atvinnumál sveitanna á vegum
Framkvæmdastofnunar ríkis-
ins í samráði við Stéttarsam-
band bænda, búnaðarsamtökin
og samtök sveitarfélaga.
Því er beint til Framkvæmda-
stofnunarinnar, Stéttasam-
bandsins, Búnaðarfélagsins,
Landnáms ríkisins og fram-
ieiðslusamtaka landbúnaðarins
að þessir aðilar taki upp sam-
starf um könnun á gildi land-
búnaðarins og í þjónustugrein-
um við landbúnaðinn. Ennfrem
ur er lögð áhersla á að tekið sé
fullt tillit til landbúnaðar við
mótun byggðastefnu.
Nauðsynlegt er talið að koma
á fót afleysingarþjónustu fyrir
bændur svo bændastéttin geti
notið orlofs eins og aðrar
atvinnustéttir og skorað er á
landbúnaðarráðherra að heim-
ila Ræktunarfélagi Norður-
lands að ráða héraðsráðunaut í
garðyrkju.
Listmunir
og málverk
Um næstu helgi, 1. og 2.
október, efnir Kvenfélagið
Framtíðin til sýningar á mál-
verkum og listmunum í eigu
félagskvenna að Möðruvöll-
um (Menntaskóla Akureyrar)
og verður hún opin kl. 2—10
eh. báða dagana.
Auk þess sem þarna verður
ýmislegt fallegt að sjá verður á
boðstólum kaffi og heitar
vöfflur, en allur ágóði rennur í
elliheimilasjóð félagsins.
Á meðfylgjandi mynd sést
einn sýningargripanna, útskor
inn tóbaksskápur eftir Jóhann
Björnsson á Húsavík.
Vatnsleiðsla
að Krossanesi
Samþykkt hefur verið af bæjar-
yfírvöldum að verða loks við
erindi sfldarverksmiðjunnar 1
Krossanesi og leggja þangað
vatnsleiðslu, en um þetta var
beðið þegar í október sl. ár. Á
fundi í september ákvað vatns-
veitustjórn framkvæmdir á
þessu hausti, en áætlað kostn-
aðarverð er kr. 6 /2 milljón kr.
NORÐURLAND - 7