Norðurland - 02.02.1983, Qupperneq 4
NORÐURLAND
Miðvikudagur 2. febrúar 1983
Eiðsvallagata 18, 602 Akureyri.
Pósthólf 492, Sími 2-18-75
Forvalsreglur
Alþýðubandalagsins
í Norðurlandskjördæmi eystra
Fyrri umferð forvalsins fór fram um miðjan janúar.
Hér verða ekki endurbirtar þær greinar úr forvals-
reglunum sem hana varða, heldur látið nægja að
birta 5.-8. grein sem taka til síðari umferðar.
Sérstök athygli er vakin á 6. grein.
5- gr-
A kjörseðli síðara áfanga standa nöfn þeirra átta manna er
flest atkvæði hlutu í fyrri áfanga forvalsins og gefa kost á
sér til síðari áfanga, ásamt heimilisfangi aldri og atvinnu.
Verði tveir eða fleiri jafnir til áttunda sætis í fyrri áfanga
hljóta þeir allir tilnefningu til síðari áfanga. Uppstillingar-
nefnd er heimilt að bæta tveim nöfnum á kjörseðil síðari
áfanga forvalsins.
6. gr.
Kjósandi merki við fjögur nöfn á seðlinum, með tölunum 1
til 4 eins og hann óskar að þeim sér raðað á framboðslist-
ann. Aðeins teljast fyrstu fjögur sætin sé merkt við fleiri.
7. gr.
Reglur um talningu atkvæða úr síðari umferð eru þessar:
I fyrsta sæti er sá kjörinn er flest atkvæði hlýtur í það sæti.
Séu tveireðafleirijafnirað atkvæðum ræður samanlagður
fjöldi atkvæða í fyrsta og annað sæti. Sé enn jafnt skal
telja þriðja sæti með og þá hið fjórða ef mað þarf. í annað
til fjórða sæti er kjörinn sá er flest atkvæði fær í hvert sæti,
að viðbættum þeim atkvæðum sem hann fær í efri sæti án
vægis. Verði tveir eða fleiri jafnir er beitt sömu aðferð og
við skipan í fyrsta sæti.
8. gr.
Uppstillingarnefnd raðar í sæti á framboðslista til alþingis-
kosninga að loknu forvali. Niðurstöður forvals eru ekki
bindandi. Uppstillingarnefnd leggur tillögur sínar að
listanum fyrir kjördæmisráð til endanlegs frágangs og
samþykkis.
Alþýðubandalagið á Akureyri heldur fund um
Stjórnarskrár- og
kjördæmamál
í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, fimmtudaginn 10. feb.
kl. 20.30. Stundvíslega.
Framsögu hefur RAGNAR ARNALDS, fjármálaráð-
herra og fulltrúi í stjórnarskrárnefnd.
Fjölmennið og takið þátt i umræðum um þessi mikils-
verðu mál.
Stjórn ABA.
Forval 12. og 13. febrúar:
Hvar og hvenær?
Síðari umferð forvals Alþýðubandalagsins um skipan
framboðslista flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra
fer fram laugardaginn 12. og sunnudaginn 13. febrúar
svo sem hér segir:
ÓLAFSFJÖRÐUR: Laugardaginn 12. febrúar, staður og tími auglýst
síðar.
DALVÍK: í Bergþórshvoli, laugardaginn 12. febrúar kl. 13-17 og sunnu-
daginn 13. febrúar kl. 13-15.
AKUREYRI: í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, laugardaginn 12. febrúar kl.
13-16 og sunnudaginn 13. febrúar kl. 13-18.
HÚSAVÍK: í Snælandi, laugardaginn 12. febrúar kl. 10-12 og 13-16.
S-ÞINGEYJARSÝSLA: Að Helluhrauni 14 í Mývatnssveit, laugardaginn
12. febrúar og í Garði 3, sunnudaginn 13. febrúar, til kl. 17. Annars
staðar verður farið með kjörgögn til félaga.
RAUFARHÖFN: í félagsheimilinu Hnitbjörgum, laugardaginn 12. febrú-
ar. Tími nánar auglýstur síðar.
ÞÓRSHÖFN OG NÁGRENNI: Að Vesturvegi 5, laugardaginn 12. febrúar
kl. 13-16 og sunnudaginn 13. febrúar kl. 13-14.
REYKJAVÍK: Á skrifstofu Alþýðubandalagsins, Grettisgötu 3 í vikunni
fyrir kjördaga á skrifstofutíma kl. 9-17.
Heitt verður á könnunni forvalsdagana.
Unnt er að kjósa utan kjörfundar og ber þeim sem þess óska að snúa sér
til uppstiliingarnefndarmanna á hverjum stað.
Allar nánari upplýsingar veitir uppstiilingarnefnd:
Páll Hlöðvesson, Akureyri, formaður. Ragnar Sigfússon, Gunnarsstöðum, Þistilfirði.
Sigríður Stefánsdóttir, Akureyri. Ólafur Sigurðsson, Dalvík.
Björn Þór Ólafsson, Ólafsfirði. Örn Jóhannsson, Húsavík.
Sigurður R. Ragnarsson, Mývatnssveit. Þorsteinn Hallsson, Raufarhöfn.
'------------------------.
Frá stjórn Kjördæmisráðs
Eins og fram kemur annars
staðar í blaðinu verður síðari
umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins, dagana 12. og
13. febrúar. Stjórn Kjör-
dæmisráðs væntir þess að
hún fari vel fram í hvívetna
og skorar á flokksmenn að
taka þátt í henni og hafa
þannig áhrif á skipan fram-
boðslista flokksins við kom-
andi Alþingiskosningar. Þá
heitir stjórnin á aðra stuðn-
ingsmenn Alþýðubandalags-
ins en þá sem þegar eru
flokksbundnir að stíga skref-
ið alla leið í flokkinn og nýta
sér það tækifæri sem nú
býðst til að ráða framboðs-
málurn í kjördæminu.
En verurn minnug þess að
„sameinaðir stöndum vér,
sundraðir föllum vér“. Hinn
sameiginlegi andstæðingur
er gjörvaldt afturhald þessa
lands. Allir þeir sem þátt
taka í forvalinu er samherj-
ar, sem kjósa að heyja
baráttu sína undir merki og
stefnu Alþýðubandalagsins
og Sósíalismans. í Alþýðu-
bandalaginu tíðkast ekki
opinber uppboð né hjaðn-
ingavíg á opnum prófkjörs-
markaði.
Eftir forvalið gengur upp-
stillingarnefnd endanlega frá
listanum og leggur hann full-
skipaðan fyrir aukaþing
kjördæmisráðs. Að líkindum
verður sá fundur unt fyrstu
helgi í mars ef ytri aðstæður
leyfa. Á þinginu verður
einnig mótuð stefnuskrá
flokksins og tilhögun kosn-
ingastarfsins og er brýnt að
þau mál verði áður tekin til
urnræðu í flokksfélögunum.
Stjórn Kjördæmisráðs
heitir á alla stuðningsmenn
Alþýðubandalagsins að
fylkja liði og gera sigur þess
sem glæsilegastan í komandi
kosningum.
VIKUNNAR Bandalag um ekki neitt
Næsta kostuleg flokksstofnun hefur nýlega átt
sér stað. Vilmundur Gylfason, ásamt nokkrum
tugum karla og kvenna hafa komið sér saman
um að setjast saman í miðstjórn fyrir fyrirbæri
sem kallar sig Bandalag jafnaðarmanna.
Foringinn, Vilmundur Gylfason sjálfur, mætti
í sjónvarpssal á dögunum og átti að svara fyrir-
spurnum fréttamanna um pólitík hins nýja
bandalags. Litlu nær hafa áhorfendur orðið um
fyrirheitna landið sem oddvitinn boðaði, að ekki
sé nú talað um úrlausnir á vandamálum nú-
tímans.
Menn eiga að vera ábyrgir gerða sinna, segir
Vilmundur Gylfason. Frjáisir menn eiga að
semja um alla hluti í „frjálsum samningum".
Semdu við atvinnurekanda þinn um kaupið í
næstu viku eða mánuði og gefðu skít í það sem
gerist í kring um þig í launamálum. Semdu um
verðtryggingu launa þinna og stofnaðu verka-
lýðsfélag, með nokkrum vinnufélögum þínum
og heimtaðu þinn rétt til að lifa eins og maður
og skiptu þér ekki af því sem gerist á öðrum
vinnustöðum, hjá öðrum dúkkuverkalýðsfélög-
um. Frjálsum mönnum sæmir best að selja
öðrum frjálsum mönnum vinnu sína á því verði
sem um semst í það og það skiptið og slumpa á
einhverja verðtryggingu launanna ef svo býður
við að horfa. Ef samningar ekki takast; þá það,
þú ert meira að segja frjáls af því að vinna fyrir
ekki neitt, eða hunskast heim.
Vilmundur Gylfason lýsir samtökum sinum
sem einni heljar stórri regnhlíf, sem væntan-
lega á að geta hlíft hinum ólíkustu aðilum sem
undir henni vilja norpa, við slagviðrum norðurs-
ins. Sjálfur heldur hann svo á regnhlífinni og
rýnir út í hina pólitísku rigningu og lýsir því
yfir, að hann hafi stofnað samtök um að koma á
framtíðarþjóðfélaginu, þar sem þjóðin getur
lifað i pólitísku góðviðri, fullkomlega laus við
kerfiskalla og möppudýr nútimans.
Sundurgerðin úr hugmyndafræði bandalags
jafnaðarmanna er slík að með engu móti verður
staðhæft að það sé bandalag um jöfnuð í þjóð-
félaginu. Þvert á móti. Niðurrif verkalýðshreyf-
ingarinnar í aragrúa af smáfélögum mundi ekki
leiða til.annars en að skapa stórkostlega ringul-
reið og mismunum í launamálum. Hitt yrði þó
miklu alvarlegra að með slíku fyrirkomulagi ætti
launafólk varfa nokkurn marktækan sameigin-
legan málssvara gagnvart sameinuðum atvinnu
rekendum því foringjanum hefur alveg láðst að
reikna með þeim möguleika að samtök atvinnu-
rekenda yrðu ekki leyst upp í frumeindir sínar
eins og verkalýðsfélögin. Eftir stæði sú
staðreynd að hinir veiku mættu bera harm sinn í
hljóði á meðan þeir sterku gætu lifað í vellyst-
ingum praktuglega.
Draumsýn um fegurra mannlíf er mikilvægur
hvati í stjórnmálabaráttu. Án slíkrar draumsýn-
ar hefði verkalýðsstéttin aldrei risið úr öskustó
fátæktarinnar. En á milli draumsýnar og
tálvonar geta skilin verið harla óljós. Vilmundur
Gylfason gaf ekki viðhlítandi svör við spurn-
ingum fréttamanna um pólitísk úrlausnarefni
nútímans. Framtíðarsýnina vafði hann inn í
ótrúlegt málskrúð þar sem röksemdafærslan
var ekki haldbetri en svo að framtíðardraum-
urinn getur hvenær sem er breyst í martröð þess
manns sem verður að láta sér nægja regnhlífina
eina sem húsaskjól. Þjóðin hefur eignast
bandalag um ekki neitt.
Klói.