Norðurland - 08.04.1983, Side 8

Norðurland - 08.04.1983, Side 8
NORÐURIAND Föstudagur 8. apríl 1983 Framboðs- fundir Sameiginlegir fram- boðsfundir vegna Alþingiskosninganna sem fram eiga að fara laugardaginn 23. apríl 1983 verða sem hér segir: ÞÓRSHÖFN sunnudaginn 10. april kl. 14.00. RAUFARHÖFN sama dag kl. 20.30. HÚSAVfK mánudaginn 11. apríl kl. 21.00. ÓLAFSFIRÐI þriöjudaginn 12. apríl kl. 20.30. DALVfK miövikudaginn 13. apríl kl. 20.30. AKUREYRI þriöjudaginn 19. april kl. 20.30. Fundirnir verða haldnir i fé- lagsheimilum viðkomandi staða nema á Akureyri í Sjallanum. FRAMBJÓÐENDUR. Kveðja til ' Kjartans Alþýðuflokknum fylgt ég hef. Fjaðrir af hónum piokkar Kjartan, sem fyrir kattarnef koma vill málum okkar. Spinna þræði í vonarvef valdsjúkir spólurokkar. Einkaframtaksins yrkja stef auðvaldsins drullusokkar. Þessi hnyttna vísa komst á loft nú fyrir kosningarnar og er eignuð hinum lands- þekkta hagyrðingi Agli Jónassyni á Húsavík. Eiðsvallagata 18, 602 Akureyri Pósthólf 492, sími 2-18-75 Kosningaskrifstofur Alþýðubandalagsins f Norðurlandskjördæmi eystra Allir stuðningsmenn Alþýðu- bandalagsins eru hvattir tii að hafa samband við kosningaskrifstofurnar og leggja fram krafta sína í baráttunni. • Framlögum í kosningasjóðinn er veitt móttaka á skrifstofunum, en fjárþörf fer nú ört vaxandi. e Kosningahappdrættið er komið í fullan gang, margir glæsilegir vinning- ar. Kaupið miða sem fyrst. Við minnum á utankjörfunda- atkvæðagreiðsluna sem fram fer hjá bæjarfógetum, sýslumönnum og hreppstjórum fram til kjördags. Með öflugu starfi er árangurinn okkar! AKUREYRI: Eiðsvallagata 18. Opin aila daga kl. 13.00-22.00, símar 21875, 25875, 26296, 26297 og 26298. Kosningastjóri: Heimir Ingimarsson. Starfsmenn: Geirlaug Sigurjónsdóttir, Helgi Haraldsson. ÓLAFSFJÖRÐUR: AÐALGATA 1. Opin á kvöldin og um helgar. Kosningastjóri: Sæmundur Ólafsson. DALVÍK: SKÁTAHÚSIÐ VIÐ MÍMISVEG. Opin þriðjudags- og fimmtudagskvöld svo og laugardaga, sími 61665. Kosningastjóri: Jóhann Antonsson. HÚSAVÍK: SNÆLAND, ÁRGÖTU 12. Opin virka daga 20.00-23.30, laugardaga og sunnudaga 13.00-16.00, sími 41857. Kosningastjóri: Snær Karlsson. KÓPASKER: AKURGERÐI 7. Opin kvöld og helgar, sími 52151. Kosningastjóri: Baldur Guðmundsson. RAUFARHÖFN: ÁSGATA 25. Opin kvöld og helgar, sími 51125. Kosningastjóri: Angantýr Einarsson. ÞÓRSHÖFN: VESTURVEGUR 5. Opin alla daga, sími 81125. Kosningastjóri: Arnþór Karisson. Stofnaður hefur verið nýr stjórnmálaflokkur, Samtök um kvennalista sem bjóða fram í þrem kjördæmum. Nýjum flokksbrotum og flokkum fylgir alltaf viss spenningur. Þetta á að sjálf- sögðu sérstaklega við þegar rétt kynferði er skilyrði fyrir því að flokksfélagi getí talist gjald- gengur til framboðs. Eins og skiljanlegt er hefur þjóðin fylgst af kostgæfni með tiltektum hins nýja flokks, ekki sfst vegna þess að nú skal vannýttur reynslu- heimur kvenna verða grundvöllur stjórnmála- baráttunnar. Hin mjúku verðmæti og umhyggja fyrir lífinu skulu leidd til öndvegis, aö ekki sé nú minnst á svo sjálfsagða hluti eins og heiðar- leika og ný vinnubrögð í pólitiskum efnum. Orðum eins og hrossakaupum og atkvæða- smölun skal útrýmt úr orðabókinní og oddvitar hins nýja flokks, boðberar kærleika og um- hyggju fyrir lifinu bjóðast til að leiða þjóð sína út úr eyðimörkinni til hins fyrirheitna lands, þar sem bardagaglöð karlrembusvín fái harla litlu ráðið. Eins og allir vita hafa pungrottur veraldar- innar ekki setið auðum höndum undanfarnar aldir. Með sameiginlegan reynsíuheim að baki hafa þeír dundað sér við að murka Iffið hver úr öðrum i hverri stórstyrjöldinni annarri hroða- legri. Þess utan er almennur skepnuskapur þeirra f garð þeirra sem minna mega sín löngu alkunnur og umhyggjan fyrir börnum og gamal- mennum af skornum skammti. Dagvistir, fæð- ingarorlof og umhyggja fyrir sjúkum og las- burða er ekki þeirra mál. Þau eru mál kvenna. Af brýnni nauðsyn hefur þvi verið stofnað- ur stjórnmáiaflokkur til þess að leiða baráttuna fyrir framgangi þessara mála fram til sigurs. Það er þess vegna hreint ekki vonum fyrr sem reynsluheimur kvenna er leiddur til öndvegis í hugmyndafræði stjórnmálaflokks á íslandi, þvi að eins og allir vita eru reynsluheimarnir bara tveir, heimur karla sem öllu hafa ráðið og heimur kvenna sem settar hafa verið til hliðar. Karlahlunkarnir hafa reynst ótrúlega slyngir i því að búa sér til ímyndaðar ástæður til ágrein- ings sín i milli allt i því skyni að villa um fyrir sak- lausum sálum. Þannig hafa þeir þrátt fyrir hinn sameiginlega reynsluheim sinn ákveðið að verða mismunandi auðugir, hafa a.m.k. blæ- mun á þjóðfélagslegri stöðu sinni og siðast en ekki síst hefur þeim hugkvæmst að búa sér til pólitísk ágreiningsmál, fyrst og fremst til þess að hafa eitthvað að rísla sér við. Hvergi i veröldinni hefur snilldarverk karl- anna lukkast eins frábærlega vel og hér á landi. Þannig hafa þeir af ótrúiegum f láttskap misbeitt pólitísku valdi sinu til þess aö koma upp ein- hverju fuilkomnasta heiibrigðiskerfi sem fyrir- finnst I veröldinni, kerlingar þessarra manna verða allra kvenna elstar og hvergi á byggðu bóli komast jafn mörg börn til manns eins og hér, jafnvel þó að umhyggjan fyrir börnum og gamalmennum séu fyrst og fremst kvenna mál, komi körlum ekki við. Það lýsir vel fáheyrðri kænsku þessa liðs að þorri karlanna hefur unnið árum saman, sextíu til áttatíu tíma á viku hverri, sumlr þeirra hafa meira að segja verið svo ósvifnir að koma ekki heim til sín í marga mánuði á ári hverju, heidurskvompast út i ball- arhafi, ailt til þess að geta látið konurnar vinna tvöfalda vinnu og loka þær inní í eigín reynslu- heími. Á dögunum fengum viö svo alveg glænýjan vitnisburð um makalausa snilld karlkynsins, því að í Ijós er komið að þann 30. mars 1949 bjuggu þeir til ágreining sin i milli; gerðu deilurnar um aðildina að Nato að einkamáli sínu sem stjórn- málasamtökum kvenna í nútimanum kemur ekki við, eins og sést af eftirfarandi tilvitnun: „Við ákváðum á fundi okkar að taka ekki þessu boðf Samtaka herstöðvaandstæðinga (boði um að Þórhildur Þorleifsdóttir fulltrúi kvennalistans talaði á útifundi við Alþingishús- ið 30. mars sl. innsk Norðurl.) vegna þess að þetta hefur verið bitbein Alþýðubandalagsins og Sjálfstæðisflokksins og þeir hafa gert þetta að sínu efnkamáli. Við viljum ekki að þeir ráði þessari umræðu, heldur viljum við ráða henni sjálfar og finna nýjar ieiðir í þessu máli.“ Já þarna er karlahlunkunum rétt líst að koma sér upp privat deilum um Nato, afvopnun og friðarmál. Tóm sýndarmennska gott fólk og því ekki nema skiljanlegt að fulitrúi kvennalistans vilji ekki blanda sér í málið. Meðal annarra orða: Er hugsanlegt að reynsluheimur kvenna í friðar og afvopnunar- málum sé ekki einn og hinn sami? Hefur einhver heyrt talað um atkvæðaveiðar með þvi að segja helst ekki neitt um viðkvæm mál? Klói.

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.