SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Síða 6
6 15. nóvember 2009
Frakkarnir René Goscinny og Albert Uderzo hittust
fyrst 1951. Það var að morgni dags sem Uderso
var tilkynnt að maður að nafni „Gossini“ kæmi
senn til starfa hjá World Press/International Press
þar sem teiknarinn var starfandi. Uderzo varð strax
spenntur; hann var af ítölskum ættum og reiknaði
með að þarna væri á ferðinni maður að austan.
Það var hins vegar misskilingur; G o s c i n n y
hljómaði dálítið ítalskt en maðurinn var franskur,
hafði raunar búið meira og minna erlendis frá því
hann var barn en flutti nú heim frá Bandaríkjunum.
Samstarf teiknara og rithöfundar gekk vel strax
frá upphafi. Þeir fengust við ýmis verkefni en Ast-
erix og félagar glöddu Frakka í fyrsta skipti 29.
október 1959 í tímaritinu Pilote, sem Goscinny og
Uderzo áttu þátt í að hleypa af stokkunum.
René Goscinny lést 1977, aðeins fimmtugur að
aldri. Hann varð Frökkum harmdauði en minningin
lifir í ýmsum verkum; Goscinny er t.d. höfundur
bókanna vinsælu um Nikulás litla, Le petit Nicolas,
og samdi textann í bókunum um kúrekann Lukku-
Láka.
Hálfbróðir þeirra Lukku-
Láka og Nikulásar litla
Afmælis Ástríks og félaga var minnst með ýmsum
hætti, m.a. með útgáfu þessara frímerkja.
F
rakkar hafa í gegnum tíðina eignast
margar hetjur á ýmsum sviðum; de
Gaulle, Zidane, Bardot og Claude-Killy
koma upp í hugann í fljótu bragði en lík-
lega hefur engin þeirra verið jafn lengi á toppnum
samfleytt og Asterix. Nema kannski Bardot.
Asterix, heljarmennið Ástríkur, er ekki af holdi
og blóði eins og hinar hetjurnar. Hann stökk al-
skapaður fram á sjónarsviðið fyrir hálfri öld í
blaðinu Pilote og hefur ekki linnt látum síðan. Það
var 29. október 1959 sem þessi smávaxni en sterki
Galli kom fyrst fyrir manna sjónir og hefur allar
götur síðan barið Rómverja og annan eins og hann
eigi lífið að leysa, í samstarfi við hinn gilda en
blíða Steinrík.
Asterix okkar
Þegar sannar hetjur eiga í hlut er haldið veglega
upp á afmælið og svo var einnig þegar Ástríkur
varð fimmtugur um daginn; listflugssveitir
franska hersins voru meira að segja kallaðar út og
skemmtu bæjarbúum í París. Þær fara ekki á loft til
heiðurs hverjum sem er.
Asterix okkar, sögðu franskir stjórnmálamenn á
afmælisdaginn, og þjóðin kinkaði kolli.
Foreldrar þeirra Ástríks eru tveir karlmenn; rit-
höfundurinn René Goscinni og teiknarinn Albert
Underzo. Sá fyrrnefndi lést 1977 um aldur fram og
síðan hefur Underzo gengið hetjunum bæði í
móður- og föðurstað; haldið áfram að teikna þær
en einnig samið textann. Sumum finnst hann að
vísu ekki jafn lipur með pennann og Goscinni en
það er allt annar handleggur.
Frakkar eru ein þeirra þjóða sem gjarnan vilja
halda í sérkenni sín. Eru jafnvel öðrum fremri á
því sviði; vilja ekki láta vaða yfir sig frá öðrum
menningarsvæðum, og kannski þess vegna er Ást-
ríkur jafn vinsæll og raun ber vitni.
Sá franski er þó ekki einungis í hávegum hafður
í heimalandinu og hér uppi á Íslandi; bækurnar
hafa verið þýddar á ríflega 100 tungumál og seld
eintök eru víst einar 325 milljónir.
Matarhefðir Frakka og húmor skipa ríkulegan
sess í bókunum um Ástrík, ekki síst þegar Stein-
ríkur er annars vegar. „Heyrðu, Ástríkur, þessir
Rómverjar eru alveg hættir að láta á sér kræla og
mér leiðist!“ segir Steinríkur í einni bókinni.
Langar að lúskra á óvininum.
Steinríki líður heldur ekki vel svöngum: „Já,
tvö svín, takk fyrir og ekki sneiða þau of þunnt …“
segir hann hjá kjötkaupmanninum.
Útsjónarsamir húmoristar
Sögurnar af Asterix gerast í norðurhluta Gallíu,
þar sem nú heitir Frakkland, um það bil 50 árum
fyrir fæðingu Krists. Gallía hefur öll verið her-
numin af Rómverjum, nema Gaulverjabær, eins og
staðurinn hefur stundum verið kallaður á ís-
lensku. Þrátt fyrir gríðarlegan herstyrk Júlíusar
Cesars hafa hans menn ekki roð við Gaulverjum,
ekki síst vegna útsjónarsemi og bardagagleði Ást-
ríks, Steinríks og þeirra manna.
Aðdáendur Gaulverja um heimsbyggð alla
treysta Underzo, og þeim sem kunna að taka við
pennanum, fyrir því að hetjurnar haldi heilsu. Líf-
ið yrði snauðara takist Rómverjum að leggja Gaul-
verjabæ undir sig. Og hláturinn lengir lífið.
Asterix í kunnuglegri stellingu; rómverskur hermaður fær til tevatnsins.
Reuters
Mesta hetja
Frakklands?
Linnulaus barátta Ástríks og
Steinríks við Rómverja í 50 ár
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Steinríkur er blíðlegur en kann að beita hnúunum.
NÁTTÚRUAFURÐ
ÚR SELGRASLAUFUM
án alkóhóls
Varan fæst í: apótekum
og Þinni verslun Seljabraut.