SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Blaðsíða 19
15. nóvember 2009 19
Særún Norén tók myndir af
lífi fjölskyldunnar í Vall-
erödslundi. Efst er Noomi
með Evu og Hrafnkeli. Óli
Rapace er með hjálminn
og Noomi alvön á hest-
baki. Svo sést fjölskyldan
í útreiðartúr og loks Hrafn-
kell á keppnisbrautinni á
bak Grími.
Ætlar að vinna með Valdísi
Noomi Rapace segist vel geta hugsað sér að leika í kvikmynd á Ís-
landi og raunar mátti ekki miklu muna síðasta haust.
„Valdís Óskarsdóttir, spurði hvort ég vildi leika í mynd sem hún
ætlaði að gera núna og ég hafði mikinn áhuga á því,“ segir hún. „En
tökurnar rákust á æfingar fyrir Svínahúsið og umboðsmaðurinn gat
ekki púslað því saman. Það gekk því ekki í þetta skipti. En við hitt-
umst tvisvar þegar ég var í Reykjavík og við erum búnar að ákveða
að við gerum einhvern tíma mynd saman.
Mér fannst Sveitabrúðkaupið frábær mynd og þykir vænt um hana.
Það gerist alltof sjaldan að ég hitti kvikmyndagerðarfólk, sem hefur
einlægan ásetning og vill gera öðruvísi mynd, án þess að það spili
sig stórt, eins og það hafi höndlað stóra sannleik en vilji bara ekki
segja frá því. Hún er bæði opin og eðlileg og ég fann strax að ég
vildi vinna með henni.“
Í byrjun desember leikur Noomi í mynd franska leikstjórans
Barthélémy Grossmann, Clean Out, sem fjallar um rússnesku maf-
íuna í New York og er það fyrsta myndin með ensku tali, sem hún
leikur í. Á meðal mótleikara eru Timothy Dalton, Mads Mikkelsen
og Elliott Gould. Svo leikur hún í norska sálfræðitryllinum „Baby-
call“ í mars, en leikstjóri hennar er Pål Sletaunes. „Hún fjallar um
konu sem flýr frá manninum sínum, en hann hefur misnotað hana,
og byrjar nýtt líf með sjö ára syni sínum,“ segir Noomi. „Hún of-
verndar hann því hún er hrædd um að faðirinn elti þau og eru
barnaverndaryfirvöld farin að fylgjast með þeim. Það gengur svo
langt að hún setur tæki í herbergi hans þannig að hún heyri til
hans á nóttunni og byrjar þá að heyra torkennileg hljóð. Smám
saman missir hún stjórn á kringumstæðum og því hvað er raun-
verulegt og hvað ekki.“
VERTU MEÐ
OKKUR Í VETUR!
– Frábærir tímar framundan á SkjáEinum
Glæsilegasta vetrardagskráin frá upphafi
á aðeins 2.200 kr.
THE JAY LENO SHOW
GAME TÍVÍ
30 ROCK
NURSE JACKIE
UNITED STATES OF TARA
LIPSTICK JUNGLE
GAME TÍVÍ
C.S.I. MIAMI
DEXTER
C.S.I. NEW YORK
LIPSTICK JUNGLE
LIPSTICK JUNGLE
NÝTT ÚTLIT
MATARKLÚBBURINN
SKEMMTIGARÐURINN
HOUSE
HARPER’S ISLAND
SPJALLIÐ MEÐ SÖLVATOP GEAR
INNLIT / ÚTLIT30 ROCK
30 ROCKAMERICA’S NEXT TOP MODEL
THE OFFICEFYNDNAR FJÖLSKYLDUMYNDIR
90210
LÍFSAUGAÐ
30 ROCK
Til þess að fá áskrift að SkjáEinum þarftu að hafa myndlykil frá Símanum eða
Vodafone. Athugið að með áskrift fellur grunnáskriftargjaldið niður.
Væntanlegt – SkjárFrelsi innifalið í áskrift að SkjáEinum
SkjárFrelsi er nýjung sem felur það í sér að áskrifendur SkjásEins geta horft
á dagskrána þegar þeim hentar í gegnum gagnvirkt sjónvarp. Um er að ræða
tækni sem sem býður upp á þann möguleika að sækja innlenda sem erlenda
sjónvarpsþætti hvenær sem er, í eina til fjórar vikur.
Pantaðu áskrift að SkjáEinum
• Á vefsíðunni www.skjarinn.is
• Í síma 800 7000 eða 1414
• Í verslunum Símans eða Vodafone