SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Page 34
34 15. nóvember 2009
H
vað gengur mönnum til sem
lauma sér inn í draumalandið
hjá hinum og þessum konum
og taka upp á því að strjúka
þeim og kyssa? Ófáar konur eru gjör-
samlega varnarlausar gegn þessum
óvæntu heimsóknum þar sem þær eiga
það til að vera fjarska fúsar til fylgilags við
ólíklegustu menn. Heimsóknir af þessum
toga eru mis-velkomnar og sumar þeirra
jaðra við móðgun, en aðrar eru synd-
samlega skemmtilegar. Fer svolítið eftir
því hver félaginn er og hvað fram fer.
Þessir ástleitnu næturgestir sýna sumir
af sér afburða blíðlyndi en aðrir taka þetta
á hörkunni, en öll er upplifunin vænt-
anlega undir því komin hvernig dreym-
andinn er stemmdur, hvernig hann eða
hún fílar fjörið. Stundum eru þessar
heimsóknir lítt gefandi og hvílubrögðin
afspyrnu leiðinleg en stórfurðulegast er
þó þegar þetta eru menn sem dreymand-
anum dytti aldrei í hug að fækka fötum
með í fullri meðvitund. Þá er undrunin
stór þegar augun opnast og í heilanum
brennur spurning: Hvernig í andskot-
anum tókst þessum manni að stelast
inn í drauma mína og fá mig til atlota?
En allra skemmtilegast er þegar ást-
arleikirnir fara fram með goðumlíkum
einstaklingum sem uppfylla alla villtustu
draumana. Eftir slíkar unaðsstundir máist
sælubrosið ekki af andlitinu löngu eftir að
vakan tekur við af draumnum.
Þetta næturbrölt í öðrum heimum get-
ur valdið dálítilli frústrasjón þegar mót-
leikarinn er einhver sem við erum í dag-
legum samskiptum við. Hver hefur ekki
lent í þeirri sérkennilegu stöðu að mæta
einhverjum að morgni til dæmis í
vinnunni, sem hann var að gamna sér
með nóttina áður, í draumalandinu. Og
missa næstum út úr sér: „Takk fyrir síð-
ast! Djöfull var gaman hjá okkur í nótt.“
En hvaðan koma þessar heimsóknir?
Allar líkur eru á að gestirnir séu blásak-
lausir, þó ekki megi útiloka að sumir séu
svo magnaðir að geta hugsað sig inn í
drauma einhvers annars. En sennilega
sprettur þetta oftast úr heilabúi dreym-
andans því mörg fantasían leynist í
skúmaskotum hugans og allir vita að
kynlíf byrjar í hausnum.
En hvaða segja þá blautir draumar um
okkur sjálf? Er þetta eitthvað sem okkur
langar en viljum ekki gangast við? Ósk-
hyggja undirmeðvitundarinnar? Eða eru
þetta órar einir sem fara af stað af því að
hormónastaða líkamans kallar á þá?
Skiptir kannski ekki öllu máli, því oftast
bætir þetta, hressir og kætir. Það er
þokkalega kitlandi að fá flassbakk í
miðjum fréttatíma þegar Obama birtist á
skjánum: Á sama tíma framkallast í heila-
búinu myndir af klæðalausum sveittum
forseta: Ó mæ god! Hann fór um mig
höndum í nótt! (Og sá kunni nú vel á
kvenmannskropp.) Auðvitað eru það
ekkert annað en forréttindi að hafa sofið
hjá nokkrum James Bondum, Jesú Kristi,
Brad Pitt, Jim Morrison eða öðrum ámóta
kyntröllum. Það kemur ekki að sök þó
ekki hafi það verið í efnisheiminum, því
snerting og gælur í draumalandinu eiga
það til að vera jafn raunverulegar og í
vöku, næmleikinn jafnvel á alveg sérlega
háu stigi. Og allar hömlur fljúga út um
gluggann enda gilda önnur siðferðislög-
mál á ódáinsvöllum draumanna. Þar má
allt, og gott betur. Orgíur eru þar jafn
sjálfsagðar og hvað annað.
Fyrir þann sem liggur einn í fleti hlýtur
að vera skárra að fáða í draumi en ekki.
Og pör sem kúra saman ættu að taka því
fagnandi þegar annar aðilinn vaknar upp
af heitum draumi, iðandi af girnd undir
sænginni.... og langar í meira, vakandi.
Blautir
draumar
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
Gatan mín
V
ið litla götu í Grjótaþorpinu, Fischersundi, býr rit-
höfundurinn Þráinn Bertelsson ásamt konu sinni
Sólveigu Eggertsdóttur. Aðeins tvö hús standa við
götuna, í hinu er Sögufélag, og eru þau bæði númer
3. Það er því ekki til Fischersund 1 eða 2. „Alla mína ævi, eða
þann hluta hennar sem ég hef búið á Íslandi og í Reykjavík, þá
hef ég búið í miðbænum. Í smáborg, þar sem maður getur verið
laus við ókosti stórborga eins og miklar fjarlægðir, hefur mér
alltaf þótt einfaldast að búa í borginni miðri svo ég eyði ekki
hálfu og heilu dögunum í bílnum mínum. Mér finnst líka
heillandi umhverfi hérna, kaffihús, verslanir, stofnanir – allt
innan göngufæris og seilingar.“
Þráinn bjó áður í Bergstaðastræti en fyrir fimmtán árum voru
þau hjónin farin að svipast um eftir öðru húsnæði og var þeim
bent á að Reykjavíkurborg væri að selja húsið, norska bakaríið
eins og það var kallað, í Fischersundi en húsið var í mikilli nið-
urníðslu. „Það lá mikið á að koma inn tilboði í húsið því við
fréttum af þessu um helgi og það átti að afgreiða þetta strax á
mánudagsmorgun. Það var neglt fyrir dyr og glugga í húsinu
svo við komumst ekki inn til að skoða það og buðum þess
vegna í húsið óséð og fengum það svo. Við urðum fyrir miklu
sjokki þegar við loksins komumst inn í húsið því það sem við
héldum að væri nýtilegt, t.d. gólf og klæðningar, var allt saman
ónýtt svo við urðum að endurgera allt húsið að innan.“
Þráinn er afskaplega hrifinn af umhverfi Fischersundsins;
Grjótaþorpinu. „Það er að mörgu leyti eins og lítið, yndislegt
þorp sem stendur einhvers staðar í ró og friði þó það standi í
hjarta þessarar verðandi stórborgar sem Reykjavík er,“ segir
hann en margt hefur breyst síðan þau hjónin gerðu upp húsið í
Fischersundi. „Þau fáu hús í Grjótaþorpinu sem eftir var að
dytta að hafa öll verið gerð upp og það sem eftir stendur af
gamla Grjótaþorpi er orðið afskaplega fallegt. Fyrir utan
gluggann minn var ómalbikað almenningsbílastæði en það er
orðið að fallegu, litlu torgi og trjágarði.“ Þráinn segir að áður
fyrr hafi íbúar hverfisins átt erfitt með svefnfrið þegar næt-
urklúbbur var starfræktur í Duus-húsi en það sé ekki vandamál
lengur. Hins vegar er nokkurt ónæði um helgar af skemmt-
analífinu og fólki í annarlegu ástandi. „Þeir sem búa í mið-
bænum verða að vera reiðubúnir að vera hluti af því lífi sem á
sér stað í miðbænum. Sé lögum og reglum framfylgt er dásam-
legt að búa í miðbænum, annars er hann óbyggilegur.“ Hann
segir að þrátt fyrir þetta sé Grjótaþorpið góður staður til að ala
upp börn. „Það er svo mikil nálægð milli íbúa eins og tíðkast í
þorpum og svo eru alls konar ævintýri og furðuverk miðbæj-
arins allt í kring. Þetta er dásamlegur staður að alast upp á og ég
efast um að margar aðrar höfuðborgir í heiminum bjóði upp á
þann möguleika að alast upp í þeim miðjum.“
ylfa@mbl.is
Morgunblaðið/Heiddi
Eins
og lítið
yndislegt
þorp