SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Síða 35
15. nóvember 2009 35
Í
blíðu eða stríðu er alltaf hægt að treysta á að fjármál valdi
spennu í sambandi. Þegar við bætist óttinn og óvissan sem
gjarnan fylgja erfiðum tímum í efnahagsmálum er ekki að undra
að þegar hagkerfi heilu þjóðanna liðast í sundur fylgja sambönd
oft í kjölfarið. Þegar fólki líður illa, er pirrað, langt niðri og við það að
bugast, á það til að láta líðan sína bitna á mökum sínum. Enda er það
gjarnan tilhneiging okkar að taka sem gefnu því sambandi sem skiptir
okkur mestu máli, yfirleitt þegar það þarfnast mest aðhlynningar.
Kreppan, uppsagnirnar og ringulreiðin sem hafa átt sér stað und-
anfarið ár eru ekki beinlínis til þess fallin að örva ástarlífið. Hinsvegar
gefur slíkt umrót fólki tækifæri til að skoða upp á nýtt hvað skiptir
mestu máli í lífinu. Lítið á núverandi aðstæður sem tækifæri til að
hugsa upp á nýtt og breyta nándinni í sambandinu ykkar. Lítið jafnvel
á þær sem hina fullkomnu afsökun til að bæta það eða lífga við!
Sama undir hvaða álagi þú ert, þá hefurðu ekki efni á að fækka
gæðastundum með makanum eða setja þær aftast á forgangslistann.
Hamingjusöm pör eyða saman gæðastundum en þær styrkja sam-
bandið. Aukin nánd dregur úr stressi og eykur vellíðunartilfinn-
inguna. Ekki síður mikilvægara er að stuðningur ástvinar, jafnt gegn-
um góða sem slæma tíma, hefur áhrif á andlega og líkamlega heilsu.
T.d. hafa rannsóknir leitt í ljós að þeir sem eru í ástríku hjónabandi
hafa síður háan blóðþrýsting, nokkuð sem við Ópal-óðu Íslendingar
ættum að kunna að meta.
Þið maki þinn getið ekki tapað á að reyna að rækta með ykkur sanna
nánd í sambandinu. Það er hægt að gera með eftirfarandi hætti:
Haldið ykkur frá fjölmiðlunum. Þetta hefst allt með því að slökkva
á sjónvarpinu og tölvunni. Það gerir ykkur aðeins taugaveiklaðri,
kvíðnari og þreyttari að reyna að fylgjast með öllu því sem er að gerast
í efnahagsmálum. Í staðinn fyrir að einbeita ykkur að fjármálafrétt-
unum skuluð þið einbeita ykkur hvort að öðru og fjölskyldunni. Enn-
fremur, til að vega upp á móti öllum neikvæðu fréttunum, skuluð þið
enda sérhvern dag á því að segja frá hápunkti dagsins eða fyrir hvað
þið eruð þakklát.
Haldið áfram að styrkja sambandið. Það er ekki hægt að setja
sambandið í biðstöðu meðan beðið er eftir að efnahagsástandið skáni.
Þið þurfið að reyna að skemmta ykkur. Ekki hika við að biðja ættingja
eða vini um að gæta barnanna meðan þið farið saman í hjólaferð, í
slakandi bað eða sturtu, í bíltúr út í sveit þar sem þið getið dáðst að
landslaginu, eða einfaldlega setjið hugljúfa tónlist í spilarann og dansið
saman í rólegheitunum. Útkoman verður ómetanleg.
Verið ástúðleg. Fólk þarf á mannlegri snertingu að halda sem aldrei
fyrr og sýna m.a.s. rannsóknir að slíkt dregur úr stressi. Faðmlag sem
varir í aðeins 20 sekúndur veldur því að vellíðunarhormón streyma
um líkama kvenna en til að karlmenn fái sömu vellíðunartilfinningu
þarf faðmlagið að endast í eina mínútu. Hvers kyns innileg snerting,
t.d. að leiðast, nudda hvort annað og smá kossar, stuðla að því að fólki
finnst það nánara og vill jafnvel enn innilegri snertingar.
Sýnið að þið kunnið að meta hvort annað. Á krepputímum á fólk
það til að fyllast neikvæðni og jafnframt fylla aðra í kringum sig nei-
kvæðni sem virðist því miður of auðvelt að gera. Sumir loka sig af og
vilja ekki ræða málin við maka sína. Nú er hinsvegar tíminn til að reiða
sig á makana, sérstaklega þegar kemur að því að hressa sig við. Pör
þurfa sýna í orði og borði að þau trúi hvort á annað og að þau geti og
ætli sér að líða betur og verða jákvæðari.
Hreyfing. Góð leið til að vinna á stressi og kvíða er að hreyfa sig.
Hreyfing hefur einnig góð áhrif á kynhvötina, bætir blóðflæðið til
kynfæranna, heldur líkamanum í formi svo sjálfsmynd fólks er betri
og eykur testósterónmagnið í konum og körlum. Það kemur því ekki á
óvart að fólk sem er duglegt að stunda líkamsrækt stundar meira kyn-
líf og fær betri fullnægingar en þeir sem lítið hreyfa sig. Hvort sem þið
æfið saman eða hvort í sínu lagi þá er gott að leggja áherslu á greinar
sem reyna vel á hjarta- og æðakerfið, s.s. hlaup, kraftgöngu og sund.
Litlir gleðigjafar. Nú er rétti tíminn til að njóta annarra gæða en
efnislegra og um að gera að hverfa til baka að grundvallaratriðunum,
litlu hlutunum sem skipta máli. Kúrið. Farið í göngutúr um bæinn,
grafið upp borðspil eða spilastokk, lesið upp úr bók hvort fyrir annað.
Allt þetta getur leitt til innilegri samtala, sambanda og betra kynlífs.
Hugsið jákvætt. Losið ykkur við neikvæðar hugsanir sem ýta undir
óánægju í garð lífsins, sambandsins og kynlífsins. Hugsið frekar já-
kvætt og um skemmtilega hluti og einbeitið ykkur að því að líða betur.
Jákvæðar hugsanir geta fyllt ykkur krafti og vakið með ykkur von.
Það er of snemmt að segja til um hvaða áhrif kreppan í heiminum og
inni á heimilum fólks hefur á ástarlíf þess. Þangað til skuluð þið gera
allt sem í ykkar valdi stendur til að tryggja að áhrif
hennar á ykkar líf verði sem minnst. Svo er aldrei
að vita nema samband ykkar styrkist af völdum
hennar.
Hugsið hvort
um annað
Kynfræðingurinn
Dr. Yvonne Kristín Fulbright
ritstjorn@mbl.is
Steinþór skipti
um nafn fyrir ell-
efu árum síðan,
en hann bar áður
nafnið Guðsteinn.
Morgunblaðið/Ómar
E
in áhugaverðasta persónan í sjónvarps-
þáttunum Fangavaktin bar í upphafi
þáttaraðarinnar nafnið Kenneth Máni
Johnson. Kenneth hlaut síðan nýtt nafn,
Ketill Máni Áslaugarson, eftir að samfangi hans
sendi þjóðskrá beiðni um nafnbreytingu. Það vökn-
uðu því spurningar um hvort það væri í raun og
veru hægt að gera öðrum einstaklingi þann grikk að
breyta nafni hans. Þegar leitað var svara hjá þjóð-
skrá var niðurstaðan sú að þetta væri tæknilega
hægt þar sem öll eyðublöð eru á rafrænu formi.
Hins vegar er krafist undirskriftar þess er breytir
nafni sínu og því væri um skjalafalsbrot að ræða ef
slíkt væri gert og það varðar við hegningarlög.
En það var enginn sem gerði Steinþóri Vigfúsi
Guðmundssyni grikk og breytti nafni hans. Það
gerði hann af fúsum og frjálsum vilja fyrir ellefu ár-
um. Hann bar áður nafnið Guðsteinn Vigfús og segir
ástæðurnar fyrir nafnbreytingunni ýmsar. „Nú
þegar frá líður man ég ekki hugarástandið þegar
ákvörðunin var tekin en í grunninn hlýtur það að
hafa verið óánægja með nafnið og ég sá aldrei eftir
þessari ákvörðun,“ segir Steinþór.
Steinþór gekk í Ásatrúarfélagið árið 1998 á svip-
uðum tíma og hann breytti nafni sínu og vissulega
hefur breytingin einhverja trúarlega skírskotun.
„Það er ekki mikil breyting að breyta nafni sínu úr
Guðsteinn í Steinþór því þetta er í raun og veru
sama nafnið. Ég hugleiddi í fyrstu að taka upp nafn-
ið Þórsteinn en óttaðist þá að ég yrði alltaf kallaður
Þorsteinn.“
Innganga Steinþórs í Ásatrúarfélagið var síður en
svo eina og stærsta ástæðan fyrir ákvörðun hans. Á
þessum tíma var mikið talað um það hversu mikill
glæpur það væri gegn útlendingum sem gerðust ís-
lenskir ríkisborgarar að krefjast þess að þeir tækju
upp nýtt nafn.
„Sumir gengu jafnvel svo langt að segja að fólk
hreinlega jafnaði sig aldrei á þessu og mig langaði
einfaldlega til þess að prófa hvort þetta væri eitt-
hvert tiltökumál,“ segir Steinþór.
Steinþór vill líka meina að þekktur barnabóka-
höfundur, Ármann Kr. Einarsson, hafi óafvitandi
lagt sig í einelti í barnæsku. „Það má eiginlega segja
að Ármann hafi lagt líf mitt í rúst. Ég hét Guðsteinn
Vigfús og Ármann gerði mér þann óleik að taka
bæði nöfnin mín og nota þau á tvær verstu persónur
sínar. Þetta voru þeir Fúsi vinnumaður og Gussi á
Hrauni, hreppstjórasonur, báðir skelfilega hallær-
islegar, leiðinlegar og andstyggilegar persónur. Ég
man hvað mér þótti sárt að geta ekki hefnt mín
þegar ég yrði stór og skrifað sögur þar sem aulinn
héti Ármann en ég gat það ekki því einn besti vinur
minn hét Ármann og mér fannst það fallegt nafn.
Þetta einelti hefur eflaust blundað í undirmeðvit-
undinni,“ segir Steinþór og hlær.
En hvernig ætli fjölskylda og vinir Steinþórs hafi
tekið þessu? „Lengi vel notaði fólk oftast Guð-
steinsnafnið þótt Steinþórsnafnið sé orðið algeng-
ara í notkun í dag. Það var samt einn maður sem
vakti furðu mína og það var aldraður tengdafaðir
minn. Hann tók þessari breytingu eins og skot og
klikkaði aldrei á að kalla mig Steinþór. Þegar breyt-
ingin gekk í garð var líka töluvert um skilnaði í
kringum mig og ég gat gert þessa róttæku breyt-
ingu, sem var eiginlega ígildi þess fyrir konu mína
að skipta um maka! En henni hefur gengið illa að
kalla mig Steinþór og kallar mig yfirleitt enn þann
dag í dag Guðstein svo ég byði ekki í það ef hún
hefði nú skilið og gifst á ný. Greyið maðurinn hefði
aldrei verið laus við Guðsteinsnafnið,“ segir Stein-
þór kíminn.
Steinþór á þrjár dætur sem allar hafa ákveðið að
halda Guðsteinseftirnafninu. Steinþór segir það
vera það eina sem valdi örlítilli eftirsjá þótt hann
hafi aldrei séð eftir ákvörðuninni. Þær eiga allar
kost á því að bera hver sitt eftirnafnið og geta því
verið Steinþórsdóttir, Guðsteinsdóttir og Vigfús-
dóttir en allar samt sem áður dætur sama mannsins.
„Þær gætu með þessu móti gert móður sína svolítið
tortryggilega,“ segir Steinþór.
En hvernig gengur það að gangast dagsdaglega
við tveimur nöfnum? „Ég ruglast nú stundum sjálf-
ur og leiðrétti mig þegar ég segi til nafns og þá starir
fólk ætíð undarlega á mig. Ef ég lifi það að verða
ruglaður á elliheimili þá verður þetta örugglega
bölvað vandamál,“ segir Steinþór að lokum.
Á hverjum degi leita 5-10 manns til þjóðskrár í
þeim tilgangi einum að breyta nafni sínu eða barna
sinna. Áður fyrr var stafabilið í þjóðskrá töluvert
minna en í dag og nafnalengd um leið takmörkuð.
Því var svo breytt árið 1989 og er enn þann dag í dag
fjöldi fólks að koma og leiðrétta skráningu nafns
síns í þjóðskrá. Þessi breyting mun vera sú algeng-
asta og eins að kenna börn sem fæðast utan hjóna-
bands eða sambúðar við föður, þar sem þau eru
sjálfkrafa kennd við móður við fæðingu.
Breyting á fornafni er þó töluvert algeng líka og
er stærsti hópur þeirra sem taka upp ný nöfn, eða
kenna sig við móður, ungt fólk á aldrinum 18-25
ára.
Hvað viltu heita?
Hét áður:
Jón Gunnar
Kristinsson
Breytti í:
Jón Gnarr
Kristinsson
Hét áður:
Jón
Stefánsson
Breytti í:
Jón Kalman
Stefánsson
Hét áður:
Halldór
Guðjónsson
Breytti í:
Halldór Kiljan
Laxness
Hét áður:
Henný Eldey
Vilhjálmsdóttir
Breytti í:
Elly
Vilhjálmsdóttir
Hvað er það sem fær fólk til þess að breyta nafni sínu og
hversu algengt er það? Steinþór V. Guðmundsson breytti
nafni sínu fyrir ellefu árum og hefur aldrei séð eftir því.
Signý Gunnarsdóttir signyg@mbl.is