SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Qupperneq 38
38 15. nóvember 2009
Þ
að er engum blöðum um það að fletta að Gabr-
ielle Bonheur „Coco“ Chanel var algjör braut-
ryðjandi í franskri hátískuhönnun og einn
mikilvægasti tískuhönnuður tuttugustu ald-
arinnar. Hún hafði gríðarleg áhrif á tískuna, svo mikil
raunar að nafn hennar var það eina úr tískugeiranum
sem var meðal 100 mikilvægustu einstaklinga tutt-
ugustu aldarinnar að mati Time-tímaritsins.
Chanel fæddist 19. ágúst árið 1883 í smábænum Maine
et Loire í Frakklandi. Hún var dóttir farandsölumanns-
ins Alberts Chanel og Jeanne Devolle og ólst upp í
stórum systkinahóp við fábrotin kjör. Móðir Chanel lést
úr berklum þegar hún var 12 ára sem leiddi til þess að
faðir hennar yfirgaf fjölskylduna til að vinna fyrir henni.
Chanel var komið fyrir á munaðarleysingjahæli á vegum
rómversk-kaþólsks klausturs þar sem nunnurnar
kenndu henni að sauma. Hjá frænkum sínum lærði hún
svo meiri íburð í saumaskapnum.
Coco yfirgaf klaustrið þegar hún varð 18 ára og fékk
vinnu hjá skraddara. Þar hitti hún franska milljóna-
mæringinn og glaumgosann Étienne Balsan og fljótlega
urðu þau elskendur. Balsan kynnti henni lystisemdir
hinna ríku, s.s. demanta, glæsikjóla og perlur. Meðan á
sambandi þeirra stóð byrjaði Chanel að hanna hatta og
opnaði sína fyrstu verslun árið 1910 sem var hattabúð.
Vinur Balsans, Arthur „Boy“ Capel, fjármagnaði hatta-
búðina, en á þeim tíma voru þau Coco elskendur, þrátt
fyrir að Capel væri giftur. Nafn Chanel varð fljótlega
þekkt enda spillti ekki fyrir að franskar leikkonur voru
hrifnar af höttunum hennar.
Árið 1913 opnaði Chanel sína fyrstu fataverslun í
Deauville í Frakklandi, einnig fjármagnaða af Capel, og
ári síðar opnaði fyrsta fataverslun hennar í París. Versl-
unarreksturinn var þó ekki langlífur en fyrir tilstilli vin-
ar síns Capel tókst Chanel að halda húsnæðinu þegar
búðinni var lokað.
Mótlætið stappaði bara stálinu í Chanel sem hélt áfram
verslunarrekstrinum í Deuville þar sem hún kynnti nýja
línu íþróttafatnaðar árið 1913 og fyrstu heildstæðu
kvenlínuna sína árið 1917. Chanel-tískuhúsið opnaði svo
árið 1919 í París en sama ár lést fyrrverandi elskhugi
hennar og fjárfestir, Arthur „Boy“ Capel.
Föt fyrir virka nútímakonu
Æ fleiri konur tóku undir það sjónarmið Chanel að kon-
ur ættu að klæða sig fyrir sjálfar sig en ekki karla og segja
má að hún hafi mótað tísku þriðja og fjórða áratugarins í
Veitti konum
langþráð frelsi
Ný kvikmynd um hátískudrottninguna Coco Chanel verður
frumsýnd á Íslandi eftir tvær vikur. Tæpum hundrað árum
eftir að hún kom fram á sjónarsviðið með byltingarkenndar
hugmyndir um kvenfatatísku gætir áhrifa hennar enn víða.
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is
Franska leikkonan Audrey
Tautou fer með hlutverk
Coco Chanel í kvikmynd-
inni Coco avant Chanel
sem verður frumsýnd verð-
ur á Íslandi um næstu helgi.
Coco Chanel giftist aldr-
ei þrátt fyrir fjölmörg
ástarsambönd við mik-
ils metna menn.
Tíska
Í myndinni Coco avant Chanel einbeitir höfundurinn Anne
Fontaine sér að tímanum í lífi Chanel áður en hún varð fræg,
þ.e. fyrstu áratugum ævi hennar. Í viðtali við LA Times segir
hún að það hafi komið henni á óvart hversu lítið Frakkar al-
mennt vissu um sögu Chanel. „Þeir vissu ekkert um æsku
hennar,“ segir hún en hluta ástæðunnar má rekja til þess að
sjálf spann Coco upp sögu um að faðir hennar hafi farið til
Ameríku til að verða ríkur og hún hafi verið sett í fóstur hjá
tveimur kaldrifjuðum piparjúnkum, frænkum sínum. Fon-
taine segir þetta leið Chanel til að halda lífi sínu áfram, þrátt
fyrir ömurlega æsku. „Hún var ótrúlega staðráðin í að verða
eitthvað, einhvers konar listamaður,“ segir hún.
Fontaine byrjaði ekki að skrifa handritið fyrr en hún hitti
leikkonuna Audrey Tautou sem hefur leikið í myndum eins og
Amèlie og A very Long Engagement. Þótt Tautou passaði full-
komlega í hlutverkið líkamlega var Fontaine ekki viss um að
hún væri nægilega mikið hörkutól til að leika Chanel. Tíu
mínútum eftir að þær hittust var hún sannfærð um annað.
Staðráðin í að verða eitthvað