SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Page 41
15. nóvember 2009 41
Kókoskúlur
150 g döðlur
150 g gráfíkjur
30 g þurrkaðar bananasneiðar – má sleppa
½ bolli möndluflögur
2 msk. möndlusmjör eða hnetusmjör
½-1 bolli kókos
3-5 msk. kakó
1 tsk. vanilludropar
1 tsk. kanill
1-3 msk. hunang
Setjið öll þurrefni í hrærivél og hrærið þar
til úr verður gróft mauk. Bætið þá vanillu-
dropum, kanil og möndlusmjöri við og svo
loks hunanginu þangað til áferðin verður að
þínu skapi. Jafnvel má sleppa hunanginu ef
döðlurnar eru „ferskar“. Rúllið deiginu upp í
kúlur og veltið þeim upp úr kókos. Setjið inn í
ísskáp eða beint upp í munn.
„Kúlurnar eru afskaplega einfaldar og
fljótlegar að útbúa. Gott er að grípa í þær
þegar sykursnúðurinn er að drepa mann.
Þær eru svakalega vinsælar hjá fólkinu í
kringum mig og bjóða upp á allskonar út-
færslur. Til dæmis má bæta við appelsínu-
berki, góðum líkjör, kaffi …“ segir Elín.
ekkert endilega við eitthvað eitt.“
Ekki leið á löngu þar til Elín var farin
að blogga um tilraunar sínar í elda-
mennskunni. „Ég setti bloggið upp svo
að þeir sem væru í sömu sporum og ég
gætu nýtt sér það og fundið þar upp-
skriftir sem henta fólki sem þarf að
passa línurnar. Það getur verið svo
þreytandi að þurfa stöðugt að finna út
úr því hvað sé í lagi að borða og hvað
ekki.“
Þrátt fyrir að njóta sín í eldhúsinu er
Elín ekki kokkur af því taginu að hún
dundi sér lengi við matseldina. „Ég
reyni yfirleitt að búa til mat á stuttum
tíma en vil samt að hann sé góður á
bragðið og sæmilega hollur. Maður
kemur yfirleitt heim úr vinnunni klukk-
an fimm og nennir þá ekki endilega að
standa yfir eldavélinni í fleiri klukku-
tíma. Mottóið mitt er því að hafa þetta
stutt, laggott og einfalt.“
Gott að eiga í frysti
Uppskriftin sem hún deilir með les-
endum Sunnudagsmoggans að þessu
sinni er að kókoskúlum með döðlum og
fíkjum. „Þær eru svakalega góðar og
mjög sniðugar, sérstaklega núna fyrir
jólin. Hátíðirnar geta verið erfiðar því þá
eiga margir það til að detta ofan í
súkkulaðikassann. Það getur verið ágætt
fyrir þá sem vilja halda sér á beinu
brautinni að eiga þetta í frysti. Ég gerði
það fyrir síðustu jól og þurfti þá ekki að
vera með alveg jafn mikið samviskubit
þótt ég fengi mér svolítið nasl á milli
mála. Það er kannski ekki heppilegt að
raða þessum kúlum ofan í sig því þær
eru stútfullar af döðlum og fíkjum og því
ekkert alveg lausar við hitaeiningar. En
þær eru töluvert hollari en súkkulaðibiti
og það má alveg borða tíu svona kúlur
án þess að fá samviskubit.“
http://ellahelga.blog.is/blog/ellahelga/
Kókoskúlurnar eru töluvert hollari en súkkulaðibiti og það má alveg borða tíu slíkar án þess að samviskan nagi.
Athugið að þvottavélina þarf að
þrífa bæði að utan og innan.
Takið bakkann út sem er fyrir
sápu og mýkingarefni og þvoið
hann vel með heitu vatni og
bursta. Gott að nota upp-
þvottabursta í þetta verk en
ekki má nota hann eftir þetta
verk í uppþvottinn.
Þvoið svæðið þar sem bakk-
inn var og burstið vel. Bakkinn
og það svæði er stundum
bleikt, brúnt og svart og hált
eins og áll en þetta eru sveppir
og slý.
Losið sigtið úr vélinni og
hreinsið en athugið að það
rennur vatn út þegar þetta er
gert. Þvoið hurðina að utan og
innan. Gangið ávallt vel um
þvottavélina eins og allar aðrar
vélar á heimilinu því þær kosta
mikinn pening. Næst förum við
að huga að jólaundirbún-
ingnum.
Margrét Dórothea Sigfúsdóttir,
skólastjóri Hússtjórnarskólans.
Húsráð
Margrétar
Þvotta-
vélin
Í takt við tímann
Bayonn
eskinka
kr.
kg799
MEIRA FYRIR MINNA
!
kr.
1L.239
Kjörís
1L
Tilboðs
ís
Snittub
rauð
129
kr.
stk.
Nýbaka
ð!
Bravo s
afi í dós
250 m
l
79
kr.
stk
Folalda
gullas
1398
kr.
kg
verð áð
ur 1798
22%
afslátt
ur
Folalda
snitsel
1498
kr.
kg
verð áð
ur 1998
25%
afslátt
ur