SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Blaðsíða 44
44 15. nóvember 2009
Breska söngkonan
Joss Stone komst að
því í sumar að útgáfu-
fyrirtæki eru rekin til
að græða en ekki fyrir
listina þegar EMI-
útgáfan tók að setja
henni reglur um hvern-
ig músík hún ætti að
syngja og hvernig hún
ætti að líta út. Í viðtali við breska tónlistar-
tímaritið Q sagðist hún hafa rekið sig á það
að stjórar hjá fyrirtækinu teldu hana eign út-
gáfunnar og ætti því að fara eftir því sem
skilaði mestum arði.
Um tíma leit út fyrir að hún myndi greiða
EMI hálfan milljarð til að losna undan samn-
ingi við fyrirtækið, en á endanum náðust ein-
hverskonar sættir því ný plata hennar, Colo-
ur Me Free!, kemur einmitt út á vegum EMI.
Joss Stone glímir
við útgáfu sína
Joss Stone
S
öngkonan Norah Jones sló rækilega í
gegn með sinni fyrstu breiðskífu,
Come Away with Me, sem kom út
2002 og hefur selst í ríflega 25 millj-
ónum eintaka um heim allan og selst enn. Síð-
an hefur hún sent frá sér tvær breiðskífur sem
notið hafa hylli; þótt engin hafi náð eins langt
og fyrsta platan hafa þær þó selst í nokkrum
milljónum eintaka. Á morgun kemur svo út
fjórða sólóskífa Noruh Jones, The Fall.
Á nýju plötunni er Norah Jones venju frem-
ur ævintýragjörn sem sést best á því hve
marga ólíka listamenn hún kallaði til liðs við
sig. Eins og hún lýsir því sjálf á vefsetri sínu þá
fannst henni tími til kominn að skipta aðeins
um tónlistarumhverfi, prófa að blanda geði
við aðra en þá sem hún hefur unnið með síð-
asta áratuginn eða svo.
Meðal þess sem vekur athygli þegar sam-
starfsmannalistinn er skoðaður er að upp-
tökustjórinn er þekktastur fyrir vinnu með
Kings of Leon, Modest Mouse og Tom Waits,
en meðal músíkanta má nefna lið sem spilað
hefur með Beck, R.E.M., Erykuh Badu, Al
Green, Tom Waits, Elvis Costello, Johnny
Cash og Joe Strummer. Einnig semur Jones lög
með Ryan Adams og Will Sheff (Okkervil Ri-
ver), en hennar helsti félagi í gegnun árin,
Jesse Harris, er á sínum stað.
Píanóið í aukahlutverk
Aðal Noruh Jones hefur verið píanóleikur,
seiðandi rödd og mjúkur tregi. Fyrir vikið
hnykkir því eflaust einhverjum við þegar
hann hlýðir á skífuna nýju, því píanóið hefur
færst aftar í hljóðmyndina og jafnvel horfið al-
veg. Í þess stað spennti stúlkan á sig gítarinn
og segist býsna ánægð með það, enda segist
hún hvort eð er yfirleitt semja lögin sín á gítar.
Þegar við bætist að takturinn skiptir meira
máli en forðum er ljóst að hún fer ótroðnar
slóðir.
Að þessu sögðu er þó djasssveiflan mjúka
aldrei langt undan; það var ætlan Noruh Jones
þegar hún fluttist til New York fyrir áratug að
verða djasssöngkona og hún heldur líka í þann
draum með raddbeitingu og í raun í lagasmíð-
um, því þótt takturinn sé ágengari en forðum
og sveiflan ekki eins augljós sést þegar rýnt er
í lögin að hún er trú upprunanum.
Taktur og tregi
Söngkonan kunna Norah Jones sendir frá sér nýja
skífu á morgun. Efluast eiga einhverjir eftir að reka
upp stór eyru því a plötunni kveður við annan tón,
þótt seiðandi mjúk djasssveifla sé aldrei langt undan
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Norah Jones
Fyrsta plata Noruh Jones, Come
Away With Me, kom út í febrúar
2002. Í spjalli við Morgunblaðið
sagðist hún hafa verið ánægð
með viðtökurnar framan af:
„Fyrstu mánuðina eftir að plat-
an kom út kom oft fyrir að ég
hitti fólk sem fannst platan frá-
bær og mér fannst eins og ég
væri ógeðslega svöl, en þegar
platan varð vinsæl hætti ég allt í
einu að vera svöl.“
Come Away With Me hefur
selst í um 25 milljónum eintaka.
Næsta skífa, Feels like Home,
sem kom út í febrúar 2004, hef-
ur selst í um sjö milljónum ein-
taka og Not Too Late, sem kom
út í lok janúar 2007, í hálfri
fjóðru milljón eintaka.
Metsöluskífan mikla.
Milljónasala
Noruh Jones
Tónlist
John Paul Jones úr Led Zeppelin. Dave Grohl
úr Foo Fighters. Josh Homme úr Queens of
the Stone Age. Saman í rokktríói! Þetta hlýt-
ur að teljasta öflugasta rokktríó sem sett
hefur verið saman síðan Clapton og co.
stofnsettu Cream hér í den. Fyrsta plata
sveitarinnar, samnefnd henni, kemur út nú
eftir helgi en það var Grohl sem átti hug-
myndina að samstarfinu og kviknaði hún fyr-
ir fjórum árum. Sveitin kom fram op-
inberlega í fyrsta skipti í ágúst síðastliðnum
og renndi sér í frumsamin lög eingöngu. Tón-
listin er rokk …gríðarlega feitt og þétt rokk!
Them Crooked Vultures.
Þetta kallar maður
súpergrúppu!
Út eru komnir á
mynd- og hljómdiski
tónleikar gruggsveit-
arinnar goðasagna-
kenndu
Nirvana sem fram
fóru á Reading-
hátíðinni árið 1992.
Tónleikar þessir urðu
til að styrkja sveitina
í sessi sem helstu rokksveit samtímans og
lyfta henni upp úr hinu annars dásamlega
forarsvaði neðanjarðartónlistarinnar og upp
í hæstu markaðshæðir. Kurt gamli Cobain
átti alltaf erfitt með að höndla þá staðreynd
að sveit hans væri að vinna inn á þess hátt-
ar svæði en það er næsta víst að hann hefði
lagt blessun sína yfir þessa útgáfu, enda er
hin hráa Nirvana og ótrúleg orka sveitarinnar
á sviði fönguð með miklum stæl.
Sögufræg Nirvana
Kurt Cobain