SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Qupperneq 47
15. nóvember 2009 47
LÁRÉTT
1. Barnahúsgagn sem algengt er í fyrirtækjum
(10)
5. Fugl sem finnst remúlaði gott? (3)
7. Angraði í samaðild. (5)
8. Fullt af lengjum hjá ríkum mönnum. (9)
11. Maður sem er hluti af athöfn tvítekur Drottinn.
(8)
12. Setja maísokka einhvern veginn í skó. (8)
13. Illa þefjandi fær spónamat enda skapvondur.
(9)
16. Pillu reiknir í tölvuforriti (12)
19. Kemur í veg fyrir mark og nær að vinnast. (7)
20. Ensk ungfrú ætti að finna deilu. (8)
21. Aulum treð í hann sem er ekki erfitt að skilja.
(9)
24. Alltaf vil ég ná í sorg – um alla ævi. (9)
25. Leiklistarhátíð er á mörkum tímabils. (7)
26. Hjá vatnsbólinu finnst brenndur. (11)
27. Aki úr Miklagarði út af hávaðanum. (7)
28. Geisla stoðvef eða sveif (10)
29. Án tromplitar var hjá siðprúðum. (8)
LÓÐRÉTT
2. Íþróttafélag fer alls ekki framar út af dugnaði.
(7)
3. Algengar fái súrefni úr tísku. (9)
4. Er afturendi eða engir áverkar á dýri? (9)
5. Rétt stök með það sem ég á. (7)
6. Efist kú einhvern veginn um fótaburð. (7)
9. Framkvæmi athöfn með gæfu. (5)
10. Setja dýr í skapvonda í kappakstri. (7)
14. Útlimir spili af gegnsæi (8)
15. Leyf smakkinu að breytast í fas. (10)
17. Söngur um los drengs og óáreiðanleika. (12)
18. Skeggrót sem hægt að er taka að lokum af
öfgafullum. (8)
19. Refsingar við brotum úr kvæðum (8)
20. Sá sem fær takmark verður merkilegur (10)
22. Læt ikt úr Urði með sérvisku. (8)
23. Neitar þéttbýlisstaður að vera við sjó? (9)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni í umslagi
merktu: Krossgáta Morgunblaðsins,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn krossgátu
14. nóvember rennur út næsta föstu-
dag. Nafn vinningshafans birtist laug-
ardaginn 21. nóvember. Heppinn þátttakandi hlýtur bók
í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 7. nóvember sl.
er Hólmsteinn E. Hólmsteinsson. Hún hlýtur í verðlaun
bókina Reisubók Guðríðar Símonardóttur eftir Stein-
unni Jóhannesdóttur. Forlagið gefur út.
Krossgátuverðlaun
Það voru góð tíðindi er Ind-
verjinn Anand varði heims-
meistaratitil sinn í einvígi við
Vladimir Kramnik í Þýskalandi
fyrir ári síðan. Hann er verð-
ugur heimsmeistari. Innan
skamms mun hann kljást við
stigahæsta virka skákmanns
heims, Venselin Topalov og
mun einvígið fara fram í Sofia í
Búlgaríu. Æskilegra hefði verið
að finna „hlutlausan“ vettvang
fyrir þessa miklu keppni en
Búlgarar buðu best og Topalov
verður áreiðanlega dyggilega
studdur af heimamönnum.
Anand er í sviðsljósinu þessa
dagana á minningarmótinu um
Tal í Moskvu. Þegar þetta er
ritað er hann í efsta sæti ásamt
Kramnik en báðir hafa þeir
hlotið 3 ½ vinning úr fimm
skákum. Aronjan er í 3. sæti en
80% jafnteflishlutfall heldur
keppendum i einum hnapp,
Magnús Carlsen hefur gert
jafntefli í öllum skákum sínum
illa haldinn af „háls-smugu“,
en það sjúkdómsheiti er komið
frá afmælisbarni dagsins, Jóni
L. Árnasyni.
Í sögulegu samhengi er þátt-
taka Anand athyglisverð; þetta
er í fyrsta sinn síðan 1925 að
„erlendur“ heimsmeistari tefl-
ir á ofurmóti í Moskvu. Þá sótti
Jose Raoul Capablanca borgina
heim við gríðarlega athygli en
frægasta viðureign hans úr
þeirri ferð var þó skák utan
móts – er hann tapaði í fjöltefli
fyrir 14 ára pilti, Mikhael
Botvinnik.
Til að skyggnast bak við sig-
ur Anands yfir hinum fræði-
lega sterka Ungverja Peter
Leko í 5. umferð er nauðsyn-
legt að hafa undir höndum
aðra skák milli Frakkans Bac-
rot og Armenans Aronjan, sem
nýlega var tefld á Evrópumóti
landsliða í Novi Sad. Sennilega
hefur Anand látið nokkur for-
rit „malla“ yfir stöðum sem
þar komu upp a.m.k. er erfitt
að finna á tapleik Leko, flestir
leikir hans eru t.d. fyrsta val
„Rybku“, þess öfluga tölvu-
forrits. Kannski var 30. ... Hc7
björgunarleikurinn en það er
býsna langsótt.
Eitt atriði um byrjunina: 13.
leikur hvíts byggist á hug-
myndinni 13. ... Rxe5 14.
Dxd4! Rf3+ 15. gxf3 Bxd4 16.
Hfe1+ og vinnur. Leko brá á
það ráð að gefa mann og satt að
segja virtist hafa góðar bætur
eða þar til Anand skilaði feng
sínum til baka með 22. Rxd4.
Leko gat reynt 23. ... Hf6 en
hvítur heldur frumkvæðinu.
Þessi skák er enn eitt dæmið
um það hversu mikilvægar
tölvurnar eru við undirbúning:
Minningarmótið um Tal; 5.
umferð:
Wisvanathan Anand – Peter
Leko
Slavnesk vörn
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
Rc3 e6 5. Bg5 h6 6. Bh4 dxc4 7.
e4 g5 8. Bg3 b5 9. Be2 Bb7 10.
O-O Rbd7 11. Re5 Bg7 12. Rxd7
Rxd7 13. Bd6 a6 14. a4 e5 15.
Bg4 exd4 16. e5 c5 17. He1 Rxe5
18. Bxe5 O-O 19. Bxg7 Kxg7
20. Re2 f5 21. Bh5 f4
Sjá stöðumynd
22. Rxd4 cxd4 23. He6 Bc8
24. Hg6 Kh7 25. axb5 Hf6 26.
Hxf6 Dxf6 27. Dc2 Bf5 28. Dxc4
Hc8 29. Dd5 axb5 30. h3 Kh8
31. Dxb5 Hf8 32. Ha6 Dg7 33.
Hd6 d3 34. Db6 De5 35. Bg6 d2
36. Bxf5 Dxf5 37. Dd4 Kh7 38.
Dxd2 Hf7 39. f3 h5 40. Hd5
Dg6 41. Da5 Hg7 42. h4 Db1 43.
Kh2 Dxb2 44. Hxg5 Hxg5 45.
Dxg5
– og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Anand og Kramnik í forystu á minningarmótinu um Tal
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang