SunnudagsMogginn - 15.11.2009, Blaðsíða 50
50 15. nóvember 2009
Þ
að er nokkuð snúið að skrifa ævisögu þjóð-
höfðingja sem enn er á meðal vor, en jafn-
framt mikil áskorun. Slík saga verður að vera
trúverðug, vera í senn fjarlæg, greinandi og
persónuleg,“ segir Páll Valsson, höfundur ævisögu
Vigdísar Finnbogadóttur sem kemur út formlega eftir
helgi. Titill bókarinnar er Vigdís - Kona verður for-
seti. „Málið snerist að miklu leyti um að láta það
styrkja bókina að Vigdís var reiðubúin til þess að rifja
upp ævi sína, að lesandi fyndi fyrir nærveru hennar,
án þess að hún yrði alltumlykjandi. Þetta er ævisaga
en ekki endurminningabók. Hún er skrifuð í þriðju
persónu eins og hefðbundin ævisaga, en svo gef ég
Vigdísi orðið inn á milli þar sem hún talar í fyrstu per-
sónu í sérstaklega skáletruðum klausum. Oftast geyma
þær viðbrögð hennar og svör við atburðum liðins
tíma. Með þessari aðferð þá fannst mér nást bæði hin
nauðsynlega fjarlægð og yfirsýn og svo sú nálægð við
aðalpersónuna sem líka er bráðnauðsynleg.“
Páll er höfundur ævisögu Jónasar Hallgrímssonar
sem fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999. En
hvernig kom það til að höfundur sem mest hefur
skrifað um 19. aldar skáld skyldi gerast ævisagnaritari
forseta á 20. öld?
„Já, og svo er ég karl að auki! Þetta er nú að ein-
hverju leyti samsláttur tilviljana. Vigdís hefur árum
saman staðist ágang útgefanda og harðneitað ævisögu.
Svo horfðist hún í augu við að slík saga yrði skrifuð,
hvort sem henni líkaði betur eða verr, og ef hún vildi
hafa eitthvað um hana að segja þá væri sá tími líklega
runninn upp.
Við Vigdís vorum málkunnug, hún vissi að ég var
hættur sem útgáfustjóri Máls og menningar og hugði á
skriftir, þegar við hittumst á fyrirlestri uppi í háskóla
og hún færir þetta í tal. Hún sagðist hafa verið svo
ánægð með bókina um Jónas. Svo kom Jóhann Páll út-
gefandi inn í myndina og hjólin fóru að snúast. En síð-
ar sagði ágætur maður við mig að ég væri einmitt
maðurinn til þess að skrifa bók um Vigdísi því hennar
hugmyndalegu rætur lægju hjá Jónasi og Fjölnis-
mönnum.“
Efið ár
Páll segir markmið bókarinnar fyrst og fremst vera að
draga upp trúverðuga og breiða mynd af Vigdísi sem
persónu en við ritun bókarinnar fékk hann aðgang að
bréfum Vigdísar og talaði við samstarfsfólk hennar,
vini og kunningja, auk þess sem hann átti ítarleg sam-
töl við Vigdísi sjálfa. „Manneskja mótast af þeim hug-
myndaheimi og gildum sem hún er alin upp við. Þess
vegna fjalla ég ítarlega um bakgrunn Vigdísar og lýsi
forfeðrum hennar, foreldrum, öfum og ömmum sem
voru litríkt fólk og höfðu eðlilega mikil áhrif á hana.
En manneskja mótast líka af tíðaranda og Vigdís er frá
unga aldri alin upp við að fylgjast með því sem er að
gerast úti í hinum stóra heimi. Mamma hennar var
heltekin af síðari heimsstyrjöldinni og færði víglín-
urnar til á korti á heimilinu, og dóttirin smitaðist af
þessum áhuga á alþjóðamálum. Og svo fór hún tvítug
til náms til Frakklands sem var í rústum eftir stríðið
og það varð henni erfitt en lærdómsríkt. Um leið er
hún alin upp í mjög þjóðlegum anda, foreldrar hennar
voru fullveldisfólk, innblásin af fullveldinu 1918 og
sjálf var hún á Þingvöllum 1944. Sá þjóðarandi sem þar
myndaðist olli kannski mestu um að hún varð andvíg
erlendum her í landinu, sem síðar varð umdeilt.“
Var eitthvað sem kom þér á óvart í sambandi við
ævi Vigdísar?
„Svo sannarlega, enda fer líklega ekki hjá því þegar
þú kynnir þér persónu jafn rækilega. En þetta er líka í
fyrsta sinn sem Vigdís talar um fortíð sína að ein-
hverju marki. Ég minnist þess úr forsetakosningunum
árið 1980 að þá var talað um að Vigdís Finnbogadóttir
væri alin upp með silfurskeið í munni, væri forrétt-
indakona sem ekkert hefði þurft að hafa fyrir lífinu og
hefði alls ekki þá lífsreynslu sem þjóðhöfðingi þyrfti
að hafa. En þetta er fjarri lagi. Það er lífsreynd kona
um margt sem tekur við forsetaembættinu þetta ár.
Hún hefur orðið fyrir ýmsum áföllum og þar að auki
þurft að takast á við sjálfa sig, ganga í gegnum mann-
dómsraunir af ýmsu tagi eins við flest.
Ein sú fyrsta er þegar hún fer rétt tvítug í fram-
haldsnám til Frakklands, sem var óvenjulegt í þá daga
af ungri konu, og þau ár reynast henni erfið. Hún
missir svo kæran bróður í sviplegu slysi, gengur í
hjónaband sem bíður skipbrot, svo eitthvað sé nefnt.
En ég held að það verði hennar styrkur þegar fram í
sækir að hafa tekist á við mótbyr og ekki gefist upp.
Það gerir henni kleift að takast á við þá miklu áskorun
sem forsetaframboðið var. Til þess þurfti sterk bein.
Það var lærdómsríkt að setja sig inn í umræðurnar
fyrir forsetakosningarnar fyrir tæpum þrjátíu árum.
Það var ekki allt framsækið sem þar var sett á blað og
þrátt fyrir allt hefur okkur nú miðað fram á við. Þess
vegna gera menn sér kannski ekki grein fyrir því í nú-
tímanum hvað framboð Vigdísar var róttækt og í raun
Vigdís
í nýju
ljósi
Vigdís - Kona verður forseti, ævi-
saga Vigdísar Finnbogadóttur eftir
Pál Valsson, kemur út eftir helgi.
Þar er brugðið upp mynd af Vig-
dísi, ævi hennar og gjörðum. Ým-
islegt óvænt kemur fram í bókinni.
Bókmenntir
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Lesbók