Organistablaðið - 01.12.1969, Side 8

Organistablaðið - 01.12.1969, Side 8
Séra Bjarni þorsteinsson og íslenzk þjóÖlög. Hið mikla ritverk sr. Bjarna Þor- steinssonar „íslenzk þjóðlög" koin út á árunum 1936—1909. 1 ár eru (iví rétt 60 ár síðan það kom fyrir almennings sjónir. Var hann þá líúinn að safna íslenzkum þjóðlögum í 25 ár. Vindarnir 'blésu bæði með og móti sr. Bjarna Þorsteinssyni þeg- ar hann var að safna þjóðlögunum, og þá ekki síður þegar til þess kom að gefa þjóðlagasafnið út. Verður sú saga ekki rakin hér. Nú er þetta verk mctið að verðleikum. Magnús Jóns- son guðfræðiprófessor segir: „Var séra Bjarni síðar sæmdur prófessorsnafn- bót, en því miður ekki doktorsnafn- bót, og mundu þó fá afrek íslenzk frá þessum tímum standa betur undir þeim „hæsta heiðri“. Hafa íslenzk tónskáld nú þegar tekið að ausa af þessum nægtabrunni og gera það vafalaust um langan aldur, og einnig er haldið áfram að safna þjóðlögum." Það var rétt í tæka tíð að sr. Bjarni fór að safna þjóðlögunum. Menn voru að t’/na niður tvísöngnum. Rímna- kveðskapur tíðkaðist, en var ekki lengur sú þjóðaríþrótt og þjóðar- skemmtun sem hann var áður. Nýr söngur var kominn í kirkjurnar. Lítið var til á nótum af íslenzkum þjóðlög- um. Sr. Bjarni segir: „En við þetta allt vaknaði einmitt hjá mér sú löng- un og styrktist að mun, að kynna mér bctur þessi lög, þessi uppáhaldslög eldri mannanna, þessi olbogabörn nýju söngmannanna, og reyna að varðveita þau frá gleymsku og glötun". 1 framhaldi af þessum orðum er kannski ómaksins vert að henda á nokkrar staðreyndir, sem mcr virðast sýna afstöðu tónskáldanna til þjóð- laga nú. Árið 1912 gaf Sigfús Einarsson út If. hcfti af Alþýðusönglögum. Eru í því 17 íslenzk þjóðlög í ágætum radd- setningum. — Seinna — 1929 gaf hann út hefti með ísl. þjóðlögum raddsettum fyrir blandaðan kór. Hann hefur auk þessa raddsett nokkur Jijóð- lög fyrir karlakór. Sveinbjörn Sveinbjönsson gaf út hefti — íslenzk þjóðlög — tuttugu talsins, raddsett fyrir einsöng með píanó-undirleik. Sumir telja þær radd- setningar ekki í stíl við þjóðlögin eða i þeirra anda. En hvað sem því líður — handbragð listamannsins leynir sér ekki á þessu hefti. Sum af þessum þjóðlögum eru ekki heldur islenzk, og í safni Bj. Þ. eru Iíka lög sem eru útlend, eða af útlendum uppruna og er það ekki tiltökumál, enda oft erfitt að kveða á um uppruna laga. 8 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.