Norðurland - 11.06.1986, Qupperneq 3
- Fjórðungssamband Norðlendinga -
Krafan er:
Byggðastofnun til Akureyrar
Skýrsla um flutning Byggðastofnunar ekki marktæk
FJÓRÐUNGSSAMBAND NORÐLENDINGA hélt
fjóröungsstjórnarfund 6. maí sl. Þar var meðal
annars rætt um kaupstefnu i Reykjavík á hausti
komanda, háskólakennslu á Akureyri, dreifbýlis-
styrki til jöfnunar aðstöðu til nemenda sem stunda
nám utan heimabyggðar, svo og flutning Byggða-
stofnunar til Akureyrar, sem hýltur að vera hags-
munamál allra þeirra sem búa fyrir utan Reykja-
vikursvæðið. Hér á eftir fer nánari úttekt á framan-
greindum atriðum.
Kaupstefna í Reykjavík, sem
gengst fyrir sýningunni „Heimilið
’86“ dagana 28. ágúst til 7.
september 1986 í Laugardals-
höll, hefur boðist til að setja upp
Jafnframt telur fjórðungs-
stjórn óhjákvæmilegt að mennta-
málaráðherra beiti sér fyrir því
að ráðinn sé sérstakur starfs-
maður er annist undirbúnings-
starfsreglur þeirrar nefndar er
úthluta á dreifbýlisstyrkjum
miðist við.
Byggðastofnun
Á fundi fjórðungsstjórnar var
kynnt skýrsla Hagvangs hf. um
kosti og galla þess að flytja
Byggðastofnun til Akureyrar. í
skýrslunni er tekið fram að
skýrslan sé unnin í samræmi við
markmið verkefnisins og að í
henni sé ekki að finna endanlegt
svar við því, hvort flytja eigi
Byggðastofnun til Akureyrar.
Með skýrskotun til þessa
kikast til hefur Byggðastofnun verið fjarri hugum þessara manna. Myndin frá framkvæmdum Vatnsveitu-
félagsins á Akureyri árið 1904. - Mynd: Hallgrímur Einarsson
sérstaka Norðurlandsdeild á
sýningunni. Fjórðungssamband
Norðlendinga hefur ákveðið að
standa að þessari sýningu og
beita sér fyrir þátttöku norð-
lenskra fyrirtækja á sýningunni.
Þetta mun verða gert í samstarfi
iðnþróunarfélaganna á Norður-
landi.
Telja verður þetta kjörið
tækifæri fyrir norðlensk fyrir-
tæki að sýna framleiðslu sína á
Höfuðborgarsvæðinu fyrir hæfi-
legan kostnað. Þettaerjafnhliða
sölusýning framleiðenda. Sá
möguleiki er fyrir hendi að
smærri fyrirtæki frá sama byggða-
lagi geti sameinast um einn
sýningarbás, svo og minni sveitar-
félög einnig.
Starfsmaður ráðinn
vegna
háskólakennslu
Fjórðungsstjórn bendir á með
skýrskotun til samþykktar síð-
asta fjórðungsþings Norðlend-
inga, að háskólakennsla á Akur-
eyri er ekki sérmál Akureyrar
eða Eyjafjarðarbyggða. Þetta er
mál sem nýtur samstöðu allra
Norðlendinga og er baráttumál
allra landsbyggðarmanna.
Fjórðungsstjórn leggur áherslu
á að þegar sé tekin ákvörðun um
háskólanám á Akureyri, með
það fyrir augum að hefja
kennslu á næsta hausti. Skorað
er á menntamálaráðherra að
hlutast til um að þessi ákvörðun
verði tekin fyrir skólalok fram-
haldsskóla nú í vor.
starf að uppbyggingu háskóla-
náms á Akureyri, á meðan ekki
hefur verið komið framtíðar-
skipan mála, um hvort slíkt nám
teljist til Háskóla íslands eða
verði um sjálfstæða starfsemi að
ræða. Fjórðungsstjórn lýsir full-
um stuðningi við störf háskóla-
nefndar Akureyrarbæjar og heitir
liðsinni heildarsamtaka Norð-
lendinga.
Dreifbýlisstyrkir
aukist
Fjórðungsstjórn beinir því til
menntamálaráðherra að fram-
lög þessi verði tvö- til þrefölduð
á fjárlögum næsta árs. Leggur
fjórðungsstjórn áherslu á að
með auknum framlögum til
jöfnunar námskostnaðar, þannig
að dreifbýlisstyrkir teljist við-
unandi, megi spara í framhalds-
skólarekstrinum og koma í veg
fyrir óeðlilega þennslu í fram-
haldsnámi, þar sem ekki eru
skilyrði til að halda úti sam-
keppnisfæru námi, miðað við
áframhaldandi nám nemenda á
síðari stigum í öðrum fram-
haldsskólum. Jafnframt var bent
á að með þessum styrkjum megi
sporna við búseturöskun, sem
væri afleiðing þess að þurfa að
senda unglinga í nám utan
heimasveitar. Þannig mætti
sporna við búseturöskun
aðstandenda unglinga, sem sækja
fram á lengri menntabraut.
Jafnframt er lögð á það áhersla
að lög um jöfnun aðstöðu til
náms verði endurskoðuð og sett
í lög um fastar viðmiðanir, sem
telur fjórðungsstjórn að ekki sé
hægt að leggja greinargerð til
grundvallar við ákvörðun um
framtíðarstaðarval Byggðastofn-
unar. ítrekar þau rök sem færð
voru fyrir því á síðasta ijórðungs-
þingi Norðlendinga fyrir því að
stofnunin skuli staðsett á Akur-
eyri. Sjónarmið fjórðungsstjómar
hafa verið kynnt stjórnarmönn-
um Byggðastofnunar bréflega.
Þá er lögð áhersla á að
flutningur Byggðastofnunar til
Akureyrar, sé prófmál um
flutning stofnana til lands-
byggðar. Þetta sé stofnun sem
þjóni landsbyggðinni og sé til
vegna landsbyggðarinnar, en
ekki ætlað þjónustuhlutverk á
Höfuðborgarsvæðinu. Stofnunin
heyrir ekki undir daglega stjórn
ráðherra eða ráðuneytis og er
með sjálfstæða íjáröflun. Þessari
stofnun stjórnar þingkjörin
stjórn með fullu stjórnarumboði,
án afskipa ráðherra. Dagleg
samskipti við stofnlánasjóði og
aðrar lánastofnanir eru vegna
ráðgjafar og gagnkvæmra upp-
lýsinga og því ekki yfirþyrmandi
aðstæður til nábýlis við þær í
höfuðborgina.
Milli Akureyrar og Reykja-
víkur eru frá þremur til fimm
flugferðir á dag, sem auk sam-
skjpta með fjarritum ættu að
bæta úr brýnustu þröfum á
samskipti á fullnægjandi hátt.
Nærvera stjórnarmanna við
aðsetur Byggðastofnunar má
ekki miðast við að alþingismenn
sinni stjórnarStörfum á hlaupum
frá þingstörfum. Krafan er
Byggðastofnun til landsbyggðar
- til Akureyrar.
Alþýðubandalagið
Opið hús
verður laugardaginn
14. júní kl. 15.00 í Lárusarhúsi Eiðsvalla-
götu 18.
Félagar hittumst og ræðum málin.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Akureyri
almennur félagsfundur
verður laugardaginn 21. júní kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Viðhorfin í bæjarmálum.
2. Valdir fulltrúar ABA til trúnaðar-
starfa hjá Akureyarbæ.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Akureyri
Aðalfundur ABA
verður laugardaginn 28. júní í Lárusar-
húsi Eiðsvallagötu 18.
IDagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar.
3. Kosningar.
4. Önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Akureyri
Félagar takið þátt í flokksstarfinu,
fylgist með flokksdálki Þjóðviljans.
Stjórn ABA
Góðir félagar!
Munið sumarmót Alþýðubanda-
lagsins sem haldið verður í landi
Birningsstaða í Laxárdal 4. - 6. júlí.
Mætum vel!
NORÐURLANÐ - 3