Norðurland - 11.06.1986, Síða 6
Guömundur Guömundsson og jaKou no._.
Ný bílaleiga
Opnuð hefur verið ný bíla-
leipa á Akureyri, Bíla-
leigan ÖRN. Hún er til húsa við
Hvannavelli, gegnt Lindu.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins
er Sigurður Haraldsson, en bíla-
leigan er hlutafélag.
I sumar er áætlaður fjöldi bíla
40 til 50, allt traustir og nýir
bílar sem henta vel íslenskum
aðstaeðum.
Bílaleigan ÖRN gerði samn-
ing við Bílaleigu Flugleiða um
samstarf. Efnislega er það sam-
komulag á þá leið að reglur og
skilmálar um leigu fyrirtækj-
anna eru samræmdar og um
gagnkvæmar pantanir verður
að ræða. Stefnt er að því að
hægt verði að skilja bíl eftir á
eftirtöldum stöðum: ísafirði,
Sauðárkróki, Akureyri, Húsa-
vík, Egilsstöðum, Höfn og
Reykjavík. Sögðu forsvars-
menn Arnar, að slíkir hlutir
yrðu komnir á hreint áður en
aðal vertíðin hæfist í sumar.
Þegar þeir voru spurðir að því
hvort þeir teldu nægan markað
fyrir nýja bílaleigu, svöruðu þeir
því játandi. „Við erum þeirrar
skoðunar að markaðurinn sé
stækkandi. Bæði kemur til
aukin ferðamannastraumur svo
og sú staðreynd að almenningur
og fyrirtæki eru í auknum mæli
farin að sjá hagræðingu í því að
ieigja bíl. Við erum því bjart-
sýnir á framtíð slíkra fyrir-
tækja á Akureyri, sögðu þeir
félagar.
Þess má að lokum geta að
gjaldið sem greiða verður er
svipað og tíðkast fyrir útleigða
bíla á þessu svæði.
GA.
KEA 100 ára
Eins og kunnugt er á Kaup-
féiag Eyfirðinga aldarafmæli
innan skamms, en féiagið var
stofnað 19. júní 1886 af nokkr-
um bændum í Eyjafirði. Starfsem-
in var smá í sniðum í upphafí, en
stofnun fyrstu samvinnusölu-
búðarinnar á Akureyri árið
1906 lagði grundvöllinn að
framtíðinni. KEA er öflugasta
og umsvifamesta kaupfélag
landsins og veitir yfir 1000
manns atvinnu. Nú rekur KEA
tvo tugi verslana á Akureyri og
öðrum byggðum Eyjafjarðar og
félagið sinnir einnig vinnslu og
sölu landbúnaðar- og sjávar-
afurða, útgerð, ýmiss konar
iðnaði og þjónustu. Það er eitt
stærsta fyrirtæki landsins.
Aðalfundur KEA verður að
þessu sinni haldinn 18. júní í
Samkomuhúsi bæjarins. Fund-
urinn stendur í einn dag.
Hátíðarfundur verður þann
19. júní við Mjólkursamlag
KEA og hefst fundurinn kl.
13.30. Að lokinni setningu
fundarins verður helgiathöfn í
umsjá Sigurðar Guðmundssonar
Vígslubiskups, en þámun Hjörtur
E. Þórarinsson, stjórnar-
formaður KEA, flytja hátíðar-
ræðu. Nokkur ávörp verða flutt
og ýmiss skemmtiatriði. Á þess-
um fundi verður stærsta lista-
verk landsins, Auðhumla,
afhjúpað. I lok fundarins verður
öllum viðstöddum boðið upp á
léttar veitingar í móttökusal
Mjólkursamlagsins. Hátíðar-
fundurinn er öllum opinn. Vinna
verður felld niður hjá KEA
þennan dag.
Til að minnast þessara tíma-
móta hefur verið ákveðið að
bjóða öllum starfsmönnum
félagsins og mökum þeirra til
veislu í íþróttahöllinni við
Þórunnarstræti. Einnig hefur
verið boðið þangað aðalfundar-
fulltrúum KEA ásamt mökum
auk annarra gesta. Sökum
mikils fjölda reyndist nauðsyn-
legt að skipta kvöldverðargest-
um í tvo hópa. Sá fyrri kemur í
höllina að kvöldi 19. júní, en
Spurðu
lækninn þinn
um áhríf lyfsins
sem þú notar
SRauður þríhymingur
varar okkur við
seinni hópurinn kemur að kvöldi
20. júní. Aðalfundarfulltrúar
KEA munu snæða í höllinni að
kvöldi 19. júní. Kvöldverður
hefst kl. 20 bæði kvöldin. Gera
má ráð fyrir að alls verði um
1000 gestir í höllinni hvort
kvöld.
Ýmislegt verður til skemmt-
unar í höllinni. Páll Jóhannes-
son syngur við undirleik Ólafs
Vignis Albertssonar, strengja-
sveit úr Tónlistarskólanum
skemmtir og karlakór syngur.
Fleira er á dagskránni sem ekki
verður upplýst að sinni. Hótel
KEA annast veitingar, en starfs-
menn félagsins hafa að öllu leyti
séð um undirbúning afmælisins.
Formaður afmælisnefndar er
Sigurður Jóhannesson, aðal-
fulltrúi.
Félagið hefur ekki gleymt
ungu kynslóðinni því kvöldið
21. júní verða tónleikar fyrir
hana í íþróttahöllinni. Hljóm-
sveitin Rickshaw frá Reykjavík
leikur. Boðsmiðum vegna þessara
tónleika verður m.a. dreift í
kvöldvcrðinum.
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra fékk ágæta
hugmynd um daginn; að efna til
M-hátíðar á Akureyri. Hvort
þetta á að vera eitthvert mótvægi
við Listahátíð þeirra Reykvík-
inga er ekki vitað. Hitt er víst að
hér verða ýmsar uppákomur
listrænar, sem ættu að gleðja
bæði augu og eyru.
Fyrir um það bil 3 vikum var
skipuð þriggja manna nefnd til
að hafa veg og vanda að mynd-
listasýningu hér. Rósa Júlíus-
dóttir var tilnefnd af Akureyrar-
bæ, Daníel Guðjónsson af
Menningarsamtökum Norður-
lands og Guðmundur Ármann
er fulltrúi menntamálaráðherra.
Þremenningarnir höfðu skamm-
an tíma til stefnu en ákváðu þó
að betra væri af stað farið en
heima setið. Afraksturinn fáum
við að sjá í íþróttaskemmunni
n.k. föstudag. Þar verða í gangi
tvær sýningar; annarsvegar sýning
11 myndlistamanna sem eru
starfandi á Akureyri í dag og
hinsvegar er sýning á verkum
norðlenskra myndlistamanna
sem störfuðu hér nyrðra eða eru
hér fæddir. Má þar nefna nöfn
eins og Sölva Helgason, Kristínu
Jónsdóttur, Jón Stefánsson,
Svein Þórarinsson o.fl.
Eins og fyrr segir hefur
nefndin aðeins getað starfað í 3
vikur, sem er allt of skammur
tími, eins og Guðmundur Ármann
tók til orða þegar Norðurland
hitti hann að máli.
- En að tvennu illu vildum við
heldur reyna að koma þessari
sýningu upp heldur en ekki,
sagði Guðmundur. Vegna tíma-
skorts hefur ekki gefist tóm til
að auglýsa eftir verkum, sem
hefði auðvitað verið eðlilegasti
framgangsmátinn.
Elstu myndirnar á sýningunni
eru frá seinni hluta 19. aldar,
málaðar af Arngrími málara
Gíslasyni.
- Okkur var ótrúlega vel tekið
af einstaklingum sem lána obbann
af þessum verkum á sýninguna,
sagði Guðmundur Ármann. Þar
mættum við svo miklum vel-
vilja að það er hreint ótrúlegt.
En hjá opinberum aðilum hefur
oft verið erFiðara um vik.
Þessi merka sýning verður
opnuð föstudaginn 13. júní kl.
21.00 og verður opinn til kl.
22.00 daglega fram til 22. júní.
GA
Fréttatilkynning
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Vinnumiðlunarskirfstofa Akureyrar
Vantar starfsmann
hálfan daginn f.h. Umsóknir með aldri, menntun
og fyrri störfum berist skrifstofunni fyrir 17. júní
1986.
Vinnumiðlunarskrifstofa Akureyrar
Gránufélagsgötu 4 - Pósthólf 46 - 602 Akureyri
Minjasafnið á
Akureyri
opnaði 1. júní oger opiðdaglegafrákl. 13.30
til kl. 17.00 fram til 15. september.
Minjavörður
fcxqj Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
óskar að ráða fóstru að dagheimilinu ,,Stekk“.
Staðan er laus nú þegar, eða eftirsamkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 20. júní nk.
Upplýsingar veitir forstöðumaður barnaheimilis-
ins í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Tónlistakennarar
Tónlistarskólinn á Dalvík óskar eftir að ráða
skólastjóra og 2 kennara víð skólann frá 1.
september n.k. Æskilegar kennslugreinar eru:
píanó, flauta og gítar, en aðrar kennslugreinar
koma til greina.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí n.k.
Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Friðbjörns-
son í síma: 96-61415 og 96-61200.
Tónlistaskóli Dalvíkur
Frá skólanefnd Akureyrar:
Auglýst er eftir 2ja og 3ja
herbergja íbúðum til leigu
fyrir kennara við grunnskólana á Akureyri.
Leigutími er eitt ár. Frekari uppl. gefur undir-
ritaður í síma 21000.
Karl Jörundsson, skólafulltrúi
bæjarskrifstofum Akureyrar.
6 -NORÐURLAND