Organistablaðið - 01.11.1970, Page 8

Organistablaðið - 01.11.1970, Page 8
TÓNLEIKAFERÐ TIL SOVÉTRÍKJANNA Blaðið liefur ibeðiS mig að segja lítillega frá tónleikaferða- lagi J)ví, sem ég fór í til Sovét- ríkjanna í febrúar síðastliðnum. Geri ég það með gleði, ])ótt ég renni nokkuð blint í sjóinn með það, livað af ferðasögunni lesend- ur blaðsins helzt vildu fræðast um. Þriðja fébrúar flaug ég upp frá Keflavíkurflugvelli í inildri ís- Ienzkri vetrarveðráttu. Kaupmannahöfn bauð aftur á móti upp á það vetrarveður, sem okkur á Islandi finnst einna leiðast, slap og hrá- slaga. Fjórða febrúar lenti ég á einum af mörguin flugvöllum, sem tilheyra Moskva og þá iþurfli ég ekki lengur að kvarta yfir hráslaga. Frostið var 12 stig og snjór mikill. Sjöunda febrúar skyldi fyrsti kon- sertinn haldinn í Tallin, höfuðhorg Eistlands. Þangað kom ég, eftir 12 tíina lestarferðalag, daginn fyrir konsertinn. Heldur fannst mér undirbúningstíminn, sem ég 'hafði á orgelið, stuttur og ekki bætti úr skák, að tónleikasalurinn var að mestu upptekinn fram til kl. 10 um kvöldið, en þá gat ég loks farið að „registera“ efnisskrána. Dóm- kirkja ihafði húsið verið, sem tónleikarnir fóru fram í, en var nú orðiö tónleikahús eingöngu. Orgelið var Hieger KIoss, 80 radda, á fjórum nótnaborðum, elektriskt. Fárra ára gamalt var orgel þetta, vel „dis- ponerað“. Nokkuð dró j)ó úr ánægjunni við að spila á það, að frjálsu kombinationirnar voru ekki í fullkomnu lagi. Uppselt var á tónleik- ana tveim vikum áður, og sýnir það áhuga fólksins á orgeltónlist, sem ég furðaði mig alltaf á, hversu almennur var. Nokkuð má, að öllum líkindum þakka, eða kenna það orgelleysi kirknanna, en fólkið mett- ast þar ekki af orgeltónleikum. Frá Tallin flaug ég suður í Georgiu og spilaði tvö kvöld í röð í Tibilissi höfuðborg Georgiu. 27-radda Sucke orgel, mekaniskt var 8 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.