Organistablaðið - 01.11.1970, Síða 17
ARILD SANDVOLD
75 ára
Ef Norðmaður væri spurður
að því, liver væri mestur núlif-
andi kirkjutónlistarmaður Noregs,
yrði svarið án efa: Arild Sand-
vold.
Sandvold hefur í 33 ár verið
orgelleikari við dómkirkjuna í
Osló, og hefur starfað næstum
60 ár að kirkjutónlist í landi
sínu. Hann átti 75 ára afmæli 2.
júní síðastliðinn og var þá ákaft
hyl'ltur, sem einn þeirra tónlistar-
manna, er hæst foer og víðfræg-
astir eru um Norðurlönd.
Sandvold er afburða orgelleikari og kórstjóri og hann er viður-
kenndur framúrskarandi kennari.
Leiðir okkar Sandvolds lágu fyrst saman í Leipzig, þar sem við
vorum við nám hjá sama kennara. Kynntist ég þá vel hinum glæsi-
legu hæfileikum hans og lærði að meta liina miklu mannkosti hans.
Þótt Sandvold hafi ávallt haft mörgum störfum að sinna, hefur
hann þó ferðast víða um lönd og haldið orgeltónleika þar sem
túlkun hans á kirkjulegri tónlist, svo sem kantötum, orgelverkum og
sálmaforleikum, hefur mjög verið rómuð. Allt með sama snilldarbrag
og ber vott um ríka sköpunargáfu hans.
Sem kennari liefur Sandvold haft geysimikil áhrif og má segja að
flestir hinna yngri orgelleikara í Noregi hafi lært hjá honum, en
bann hefur um langt árabil verið einn af aðalkennurum Tónlistar-
s'kólans í Osló.
Lnda þótt Sandvold hafi nú látið af organistaembættinu við Dóm-
kirkjuna í Osló fy rir aldurs sakir, er víst að hann mun starfa að tón-
Jistarmálum áfram og af fullum krafti meðan heilsa og kraftar leyfa,
þjóð sinni til ómetanlegs gagns og uppörfunar.
Þó seint sé, kem ég á framfæri kveðju frá Islandi til mikils lista-
manns og í.slandsvinar. Páll Isólfsson.
ORGANISTABLAÐIÐ 17