Organistablaðið - 01.11.1970, Page 19
SIGFÚSSON-KVARTETTINN
I dyinbilvikunni í ár kom liingað til lands ,,Sigfússon-kvartettinn“,
en hann skipa: Einar, sonur prófessors Sigfúsar Einarssonar tón-
skálds, sem leikur á víólu, kona hans Lilli, sem leikur á aðra fiðlu og
synir þeirra. Atli með fyrstu fiðlu og Finn með cello. Þau lijónin
numu bæði við kominglcga tónlistarskólann í Kaupmannahöfn og
ftafa leikið i Borgarhljómsveitinni í Árósum i 35 ár, auk þess er
Finar kennari við Tónlistarskólann þar í borg. Bræðurnir leika báðir
t Borgarhljómsveitinni í Sönderborg. Þeir eru íslenzkir ríkisborg-
arar og er því kvartettinn íslenzkur. Hann flutti hér heima „Sjö
°rð Krists á krossinuin“ eftir Haydn bæði í Dómkirkjunni í Reykja-
vík og í Eyrarbakkakirkju, einnig léku 'þau hjá Tónlistarfélaginu i
Reykjavík, sjónvar|»i og útvarpi og fcngu mjög góðar undirtektir og
viðtökur hjá æðri sein lægri hér á íslandi svo að lengi mun þeim í
tninni geymast. Sigrún Gísladóttir.
® k G A N 1 S T A I! I. A Ð I Ð. Útgefandi: l'clag íslcnzkra organleikara.
hitnefnd: GuSniuntlur Gilsson, Freyjugötu 24, Rvk, Kristján Sigtryggsson, Álj-
hólsveg 147, Kópavogi, sími 42558, Páll Halliúrsson, DrápuhlíS 10 Rvk, sími
17007. Afgreiðslumaður: Kristján Sigtryggsson.
ORGANISTABLAÐIÐ 19
L