Organistablaðið - 01.11.1970, Page 29

Organistablaðið - 01.11.1970, Page 29
Frá aðalfundi F.I.O. Aðalfundur F.Í.O. var haldinn 7. sept. í Domus Medica. í upphafi fund- arins minntist forma'ður látinna fc- laga, þeirra Gunnars Sigurgeirssonar og Vilhelms Ellefsen. Risu fundar- menn úr sætum og minntust þessara tveggja látnu félaga. Fundarstjóri fundarins var Svavar Árnason, en 19 organleikarar víðsvegar af landinu sátu fundinn. Formaður ræddi nokkuð um nor- ræna kirkjutónlistarmótið, sem haldið var á Islandi s.l. sumar. Taldi hann góðar likur á að fjárstyrkur fengist til þess að greiða þær skuldir, sent enn eru ógreiddar vegna mótsins. Þá er- lendu gesti, sem hingað komu vegna mótsins, kvað hann hafa verið ánægða með árangur mótsins og móttökur all- ar. Meðal þess, sem rætt var á fund- inum voru launamál organleikara, en samningar eru nú lausir milli organ- leikara í Reykjavíkurprófastsdæmi og sóknarnefndanna. Lesnar voru upp til- lögur launanefndar til sóknarnefnd- anna og samþykkti fundurinn þær til- lögur sem eins konar stefnuyfirlýsingu félagsins. Stjórn félagsins var endurkosin, en hana skipa: Páll Kr. Pálsson, formað- ur, Gústaf Jóhannesson, gjaldkeri og Ragnar Björnsson, ritari. I ritstjórn Organistablaðsins voru kosnir: Páll Ifalldórsson, Guðmundur Gilsson og Kristján Sigtryggsson. H. B. Kirkjukórasamband íslands. Miðvikudaginn 24. júni s.l. var að- alfundur Kirkjukórasambands Islands haldinn í I. kennslustofu Háskólans í Reykjavík. Mættir voru til fundarins 14 fulltrúar frá 13 kirkjukórasamhönd- um, einnig söngmálastjóri þjóðkirkj- unnar, dr. Róhert A. Ottóson svo og formaður, ritari og gjaldkeri sambands- ins. Fundarstjóri var kjörinn séra Guð- mundur Þorsteinsson og ritarar Odd- bergur Eiríksson og Páll Halldórsson. Formaður Kirkjukórasambandsins, Jón ísleifsson, flutti skýrslu um liðið starfsár. Hann gat þess, að 11 siing- kennarar hefðu starfað á vegum Kirkjukórasamhandsins og 43 kirkju- kórar hefðu notið tilsagnar þeirra i 10 kirkjukórasamhöndum. Einnig gat formaður þess, að margir kirkjukórar hefðu starfað með mikl- um myndarskap í sínum hyggðalögum og efnt til söngskemmtana ásamt því að vera föst númer í dagskrárliðum varðandi hátíðadaga thyggðalaganna. — Þá greindi formaður frá því, að Kirkjukórasamband austfirzka kirkju- kóra hefði flutt samsöng í félagsheim- ilinu Valaskjálf að Egilsstöðum og væri sá samsöngur hinn 72. frá árinu 1946, sem fluttur er á vegum Kirkjukóra- sambandanna i landinu. Dr. Róhert A. Ottósson kvaddi sér ldjóðs og ræddi um ýms málefni er snertu Kirkjukóra- samhand íslands. I lok ræðu sinnar þakkaði hann störf Kirkjukórasam- handsins og árnaði þvi heilla í fram- tiðar starfi. Stjórn Kirkjukórasambands íslands skipa: Jón ísleifsson, organleikari, Rvk, formaður, Frú Hrefna Tynes, Rvk, ritari, Finnur Árnason, fulltrúi, Hf., gjaldkeri, séra Sigurður Kristjáns- son, próf., Isafirði, séra Þórir Stephen- sen sóknarprestur, Sauðárkróki, séra Einar Þór Þorsteinsson, sóknarprestur, Eiðum, Eiríkur {saksson, fulltrúi, Rauðalæk, Rang. Varaformaður er Einar Sigurðsson, trésmiður, Selfossi. J. /. ORGANISTABLAÐIÐ 29

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.