Organistablaðið - 01.11.1970, Qupperneq 31
þegar hver meðlimur fjölskyldunnar
hefur tekið sitt strengjahljóðfæri og
setzt niður til að „músisera" saman,
héldu tónleika í Dómkirkjunni á föstu-
daginn langa og fluttu „Sjö orð Krists
á krossinmn" eftir J. Haydn, með að-
stoð Abel Hodrigues og fjögurra ein-
söngvara. Mjög hjartanlegar móttökur
fékk listafólkið bæði innan kirkju-
veggja og utan og var )>eim óskað
skjótrar endurkomu. R.fí.
Úr bœ og byggð.
NámsskeiS jyrir kirkjuorganleikaru
i Húnavatnsprófastsdæmi, hélt söng-
málastjóri þjóðkirkjunnar á Blöndu-
ósi dagana 22. til 29. ágúst 1970.
Tólf organistar og organistaefni sóttu
námskeiðið. Undirbúning annaðist pró-
fastur og kirkjukórasamband Húna-
vatnsprófastsdaunis.
Kennt var á hverju kvöldi kl. 20.00
til 23.00. Þátttakendur óku daglega
langar leiðir til að sækja námskeiðið.
Þar rikti starfsgleði og mikill áhugi.
Kirkjuniót
var haldið að Hvolsvelli i Rangár-
vallaprófastsda'mi þann 3. júlí 1970
fyrir forgöngu sr. Hannesar Guðmunds-
oanar, Fellsmúla.
Á mótinu voru haldin fróðleg erindi
kirkjulegs eðlis.
Einn þáttur hinnar fjölbreyttu efnis-
skrár var samsöngur kóra prófasts-
dæmisins. Sr. Hannes hafði undirbúið
samsönginn, en dr. Robert A. Ottós-
son stjórnaði honum. Magnús Jónsson,
operusöngvari, söng einsöng. Undir-
leik ó pianó annaðist frú Anna Magn-
usdóttir, en orgelundirleik annaðist
Eiríkur ísaksson.
Kirkjuviku
var haldin í Lágafellskirkju i marz
1970.
Sunnudaginn 1. marz var æskulýðs-
messa. Prestur var sr. Bjarni Sigurðs-
son. Spurningabörn lósu dæmisögur og
fluttu bæn. Barnakór söng undir stjórn
Gunnars Reynis Sveinssonar.
Mánudaginn 2. marz var fjölbreytt
samkoma. Þá lék lúðrasveit drengja
sólmalög undir stjórn Birgis D. Sveins-
sonar. Friðbjörn G. Jónsson söng eiu-
söng, en Jón Stefánsson annaðist und-
irleik.
Þriðjudaginn 3. marz var einnig
fjiilþætt samkoma. Þó söng frú Álf-
heiður Guðmundsdóttir einsöng við
undirleik Jóns Stefónssonar. Kirkju-
kór Lágafellssóknar söng undir stjórn
Hjalta Þórðarsonar.
Á fyrrgreindum samkomum annað-
ist orgelleikari kirkjunnar, Hjalti Þórð-
arson orgelleik við almennan söng og
stjórnaði söng kirkjukórsins.
Miðvikudaginn 4. marz var föstu-
inessa. Prestur: Sr. Grímur Grímsson.
Kirkjukór Ásprestakalls söng. Organ-
leikari var Kristján Sigtryggsson.
Kirkjukvóld
var í ísafjarðarkirkju á föstudaginn
langa. Þar söng Sunnukórinn undir
stjórn Ragnars H. Ragnars og Ingvar
Jónasson lék á víólu. Undirleikari var
Hjálmar Helgi Ragnarsson. Kirkju-
kvöld liafa verið á föstudaginn langa
i Isafjarðarkirkju á undanförnum ár-
um.
AVventutónleikar
voru í Akraneskirkju 10. og 11. des.
s.l. Haukur Guðlaugsson lék 12 sálms-
forleiki eftir Bach en uð loknum
hverjum forleik söng Kirkjukór Akra-
neskirkju sálinalagið með raddsetn-
ingu Bachs — nema eitt, sem var radd-
ORGANISTABLAÐIÐ 31