Organistablaðið - 01.11.1970, Qupperneq 35

Organistablaðið - 01.11.1970, Qupperneq 35
'voru ýmsar sýningar í Osnahriick, haldnir fyrirlestrar og tónleikar. Vér festum athyglina við hlut Islands i þessum hátíðahöldum, þ. e. orgeltón- leika sem Haukur Guðlaugsson hélt í dómkirkjunni þar. Hann lék orgelverk eftir dr. Pál ísólfsson, Þorkel Sigur- björnsson og Karl 0. Runólfsson, og ennfremur eftir Buxtehude (Preludíu og Fúgu í g-moll), Bach (Tokkötu i C-dúr) og L. Böellmann (Suite Gothique). Fyrirleslrar þeir, sem fluttir voru á kirkjutón- listarmótinu í Reykjavik í sumar munu birtast hér i blaðinu eftir áramótin. A'rr organisti viS Háteigskirkju. Martin Hunger, sem var organisti við Landakirkju í Vestmannaeyjum, hefur nú verið ráðinn organisti við Há- teigskirkju í Reykjavík. Martin Hunger er fæddur í borg- inni Meissen í Austur-Þýzkalandi árið 1939. Foreldrar hans eru Alfred Fritz Hunger, sem var skrifstofustjóri Þjóð- kirkjunnar i Meissen, og Frieda Doro- thea Hunger. Martin Hunger missti föður sinn i heimsstyrjöldinni 1939—1945. — Að loknu stúdentsprófi árið 1957 stundaði hann tónlistarnám við kirkjumúsik- skólann í Dresden og lauk þaðan B-prófi árið 1960. Næstu árin stund- nði hann framhaldsnám við tónlistar- háskólann i Leipzig og starfaði auk þess sem kirkjuorganleikari, en árið 1964 lauk Martin Hunger burtfarar- Prófi (A-prófi) frá tónlistarháskólan- uni i Leipzig. Martin Hunger kom til íslands í des- ember 1964 fyrir milligöngu Róberts Á- Ottóssonar söngmálastjóra og séra Jóhanns Hliðar, sóknarprests í Vest- mannaeyjum og gerðist organleikarí við Landakirkju og skólastjóri við Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Árið 1966 kvongaðist hann Hrefnu Oddgeirsdóttur Kristjánssonar tón- skálds frá Vestmannaeyjum. Martin Hunger hefur haldið marga organtónleika hér á landi við góðan orðstý. Organislaskipti. Organistinn við Patreksfjarðar- kirkju, Guðmundur Guðjónsson, hefur tekið við organistastöðu í Landakirkju i Vestmannaeyjum, sem losnaði við við brottför Martins Hunger til Reykjavikur. Jón Ólafur Sigurðsson, sem var organleikari Kristskirkju í Reykjavik, hefur tekið við organistastöðu við Patreksfjarðarkirkju, sem losnaði er Guðmundur Guðjónsson gerðist organ- leikari við Landakirkju í Vestmanna- eyjum. Organistar og söngstjórar. Gjörið svo vel að senda blaðimr fréttir af söngstarfseminni. — Kristján Sigtryggsson hefur tekið að sér að sjá um þáttinn Úr bæ og hygg'S. Utanáskrift er: OrganistablaSiS, Álhólfsvegi 147, Kópavogi. FÉLAG ISL. ORGANLEIKARA STOFNAÐ 17. JÚNÍ 1951 Stjórn: Formaður: Páll Kr. Palsson, Álfa- skeiði 111, Hafnarfirði. sími 50914. Ritari: Ragnar Björnsson, Grundar- landi 19, Rvk, sími 31357. Gjaldkeri: Gástaj Jóhannesson, Sel- vogsgrunni 3, Rvk, simi 33360. ORGANISTABLAÐIÐ 35

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.