Organistablaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 17

Organistablaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 17
etingsbækur munu í framtíðinni skera úr um það, hvort liinn trúar- legi 'áhugi ungu kynslóðarinnar, sem óvéfengjanlega er fyrir hendi, nær að bera nokkurn þvílíkan ávöxt, sem komið gæíi að sameigin- legu gagni tillu kirkjulífi. Það er þó að minnsta kosti augljóst, að hljóðfæraleikur hefur hafið innreið sína í guðsþjónustuna. Orgelið hefur einokunaraðstöðu, sem l>að getur varla haldið til lengdar. Við erum að liverfa aftur til erfiðari taktsetningar í söng gömlu sálmalaganna. En samtímis not- um við orgelið, sem er lélegt takthljóðfæri, til að sj)ila undir. Þetta leiðir a f sér deyfðarlega notkun tigins liljóðfæris. Söfnuðurinn mun alls ekki uppgötva rytmiska fegurð kirkjuvísunnar, ef liann fær ekki betri stuðning en þann, sem orgelið getur í té látið, til að njóta ’hljóð- fulls almennt. Við megum ekki láta stjórnast af fordómum og röngum bugmyndum um, að til sé eitthvað „heilagt" (sakralt) og „vanheil- agt“ (j)rofant) í tónlistinni. í liinni „ókristilegu“ (avsakraliserade) kirkju framtíðarinnar, mun orgelið vera bara eitt af mörgum hljóð- færum, sem notuð verða. Nýju formin ver'öa aö geta rúmaö gömlu guöspjöllin. Látin hefur verið í ljós vantrú á framtíð guðsþjónustunnar i nú- verandi mynd. En formið er ekki hið mikilvægasta, heldur innihaldið. fnnihald guðsþjónustunnar er fagnaðarboðskapurinn, og einhverja Wynd 'hlýtur túlkun hans ætíð að taka á sig. Nærvera Krists í kirkj- ’tnni er bundin vissum, fábrotnum myndum guðspjallsins, orðsins °g sakramentisins. Frumheimildir guðspjallanna höfum við í ritning- unni, en skilningur okkar á innihaldi þeirra byggist á aldalangri túlkunarhefð kirkjunnar. Einnig eru framkvæmdir á helgisiðum liður í þessari hefð. Þeir hafa þess vegna ekkert gildi i sjálfu sér, en eru aðeins túlkun guðspjallanna. Hefðirnar eru skapaðar af mönnum °g þjóna sínum tíma. Okkur, sem höfum hlotið þaö hlutskipti að boða fagnaðarerindið í dag, ber skylda til að leita hinna ’hæfustu mynda l)ess, einnig með guðsþjónustu framtíðarinnar í lmga. Fyrirlestur fluttur á 10. norrœna kirkjutónlistarmótinu 1970. Frú Rannveig Agústsdóttir þýddi. ORGANISTABLAÐIÐ 17

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.