Organistablaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 32

Organistablaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 32
erfiðleikar menn að. Þessir innflytjendur voru Evrópumenn, sem töluðu móðurmál sitt og 'bjuggu sem ókunnir menn í ókunnu landi. í öðru lagi greindu trúfræðileg mál menn að. Þetta klauf ekki aðeins Norðmenn frá Þjóðverjum, heldur gat einnig valdið klofningi meðal binna norsku safnaða. Um tíma voru þannig til fjórir skar])t aðskildir norskir siifnuðir. 1 þriðja lagi var svo vandamálið varðandi upp- vaxandi kynslóð, er leit á sig sem Ameríkana og talaði ensku 6 daga vikunnar en átti svo að lialda guðsþjónustu á máli, er varð þeim smátt og smátt framandi. Slíkt olli tilfinningarlegum árekstrum og leiddi til þess, að nokkur liluti sameinaðist hinum enskumælandi söfnuðum, þar sem -menn gátu sungið sálma á ensku með lögurn, sem voru fjörugri en bin lútihersku sálmalög. Hér myndi vel hæfa að nefna einn þátt, er varð mjög mikilvægur í kirkjulegu lífi í U.S.A. — the American Public School. Ein af Iþeim orsökum til þess að menn fluttust til Ameríku voru trúabragða- ofsóknir. í Ameríku gátu þeir rækt trú sína á þann liátt sem þeir óskuðu. Til að tryggja trúarbragðafrelsi var ákveðið i stjórnarskrá Bandaríkjanna, að ríki og kirkja yrðu skýrt aðskilin. Slíkt kom innflytjendum í klípu. Þeir komu frá löndum ]>ar sem skólar kenndu ekki aðins venjuleg skólafög, heldur einnig frásagnir úr Biblíunni ásamt köflum úr hinum minni fræðum Lúthers. í Ameríku var kennt í fyrrnefndum námsgreinum, en ekki i hinni síðastnefndu. Hinar lúfhersku kirkjur urðu þannig að taka sjálfar að sér trúar- 'bragðakennslu. íhaldssamar kirkjur tóku höndum saman og settu á stofn skóla. En flestum lútiherskum mönnum fannst, að s'likt mundi hafa í för með sér einangrun frá 'þeim, er þeir í samvinnu við hyggðust reyna að mynda hið ameríska samfélag. Þess vegna létu menn söfnuðunum eftir að miðla nauðsynlegri trúarbragðakennslu í sunnudagaskólunum. í upphafi 20. aldar var einkum um að ræða tvær tegundir lútherskra kirkjufélaga. Kirkjur í austurríkjunum með tvö hundruð ára sögu, og síðar komnir innflytjendur. Þessi síðari hópur hefur farið í gegnum þrjú þróunarstig. Fyrsta stig þangað til um 1890, einkennist af því að söfnuðir voru litlir og sýndu mikla samheldni. Auk þess notuðu menn næreingöngu hið evrópska móðurmál. Næsta þróunarstig, frá 1890, hafði tvö tungumál. [ söfnuðunum voru oft haldnar tvær guðsþjónustur hvern sunnudag, sín á livoru máli. Á þriðja stigi varð allt amerískt í vaxandi mæli, og slí'kt heldur enn áfram. 32 ORGANISTABI.AÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.