Organistablaðið - 01.10.1971, Blaðsíða 40
gagnvart prestinum, þannig að sérþekking organistans á tónlistarflutningi verði
þung á metunum við ákvörðun prestsins um flutning tónlistar í messunni.
Leifur Sveinsson Ingólfur Möller Ástráður Sigursteindórsson
(sign.) (sign.) (sign.)
Skýrgreining á skiptingu organleikar í A, B og C flo'k’ka.
A-organleikarar:
A-deild skal skipuð þeim organleikurum, sem tekið hafa einleikarapróf á
orgel frá Tónlistarskólanum í Reykjavik eða erlendum, viðurkenndum tónlistar-
skóla. Þó skal þetta ekki vera skilyrði, sé um organleikara að ræða, sem aflað
liefur sér samsvarandi menntunar utan skóla og haldið að staðaldri — miðað
við aðstæður — opinhera orgeltónleika við góðan orðstír.
A-meðlimur skal einnig liafa lokið prófi í söngstjórn frá viðurkenndum tón-
listarskóla, eða hafa samsvarandi viðurkennda ha'fileika til söngstjórnar. Æski-
legt er að A-meðlimur hafi sa'milega þekkingu á ldjóðfærum sinfoníuhljóm-
sveitar, og sé fær um að stjórna kirkjulegum verkum með hljómsveit.
B-organleikarar:
B-deild skal skipuð orgelleikurum, sem lokið liafa kirkju orgelleikaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavik, eða öðruin viðurkenndum tónlistarskóla, eða
þeim sem sýnt geta hliðstæða kunnáttu. B-meðlimir skulu einnig liafa hæfileika
til söngstjórnar, og miðist sú kunnátta við lokapróf úr söngkennaradeild Tón-
listarskólans í Reykjavík.
C-organleikarar:
C-deild skal skipuð orgelleikurum, sem lítið eða ekkert leika á Pedalorgel,
og þeim sem eingöngu leika á Ilarmoníum.
Ragnar Björnsson Guðmundur Gilsson Haukur Guðlaugsson
(sign.) (sign.) (sign.)
40 ORGANISTABLAÐIÐ