Organistablaðið - 01.10.1971, Side 44

Organistablaðið - 01.10.1971, Side 44
Kirkjukórasamband íslands. 20. aðalfundur Kirkjukórasambands íslands var haldinn í 1. kennslustofu Háskólans 23. júní ’71. Formaður samhandsins, Jón ísleifs- son setti fundinn og hauð fulltrúa velkomna. Sérstaklega bauS hann vel- kominn Bjarna Bjarnason formann Kirkj ukórasambands Austur-Skaf ta- fellsprófastsdæmis. FormaSur skipaði fundarstjóra séra Þorgrím Sigurðsson og fundarritara Oddberg Eiríksson og Pál Ilalldórsson. Fundinn sátu 17 fulltrúar frá 14 kirk j ukórasamböndum. Formaður las heillaóskaskeyti sem sambandinu höfðu borizt frá söngmála- stjóra þjóðkirkjunnar, sem staddur var í New York, og frá Kirkjukórasam- bandi Reykjavikurprófastsdæinis. Kitari sambandsins, frú Ifrefna Tynes las fundargerð síðasta aðalfund- ar og var hún samiþykkt án athuga- semda. Formaður samlbandsins flutti skýrslu stjórnarinnar, í aðalatriðum, sem liér segir: Átta söngkennarar hafa starfað við söngkennslu á liðnu starfs- ári í sjö kirkjukórasamböndum inn- an K.l. í sumum þessum kirkjukóra- samböndum liafa kirkjukórar æft fjöl- breytta kirkjutónlist og notið þá að- stoðar áhugafólks utan kóranna og með þeim hætti hafa þeir komið fram sem traustir og mannmargir kórar, vel færir um að flytja ýmis kórverk, sem ofvaxin eru venjulegum kirkju- kórum. í þessu sambandi mætti nefna Kirkjukór Ólafsfjarðar og afmæliskór K.l. og vafalaust fleiri, ef vel væri að gætt. Nú, svo sem ævinlega áður, hafa fjölmargir kirkjukórar víðsvegar um landið staðið fyrir samsöngvum og kirkjukvöldum í sínum byggðarlögum, og auk þess verið einlægt föst söng- númer í dagskrárliðum flestra tilli- daga, sem einhvers eru metnir. Þá hefur farið fram umfangsmikið starf varðandi 20 ára afmæli K.í. Það er staðbundið að því er ég bezt veit og verður rakið að svo miklu leyti sem þörf þykir sér á parti. Gjaldkeri sambandsins las upp reikninga fyrir siðastliðið reikningsár K.I. og voru þeir samþykktir. Enn- fremur las hann fjárhagsáætlun sam- bandsins fyrir 1971. Síðan fór fram stjórnarkosning. Stjórn samhandsins var öll endur- kjörin en liana skipa: Aðalstjórn: Jón Isleifsson, Rvík, form., frú Hrefna Tynes, Rvík, ritari, Finnur Árnason, fulltrúi, Hafnarfirði, gjaldkeri. Meðstjórnendur: Séra Sigurður Kristjánsson, Isafirði, séra Þórir Steph- ensen, Sauðárkróki, séra Einar Þór Þorsteinsson, Eiðum, Eiríkur Isaksson, fulltrúi, Rauðalæk, Rang. Varastjórn framkvæmdastjórnar: Ein- ar Sigurðsson, trésmiður, Selfossi, form., Páll Halldórsson organleikari, Rvk, ritari, Magnús Guðmundsson kaupm., gjaldkeri. Meðstjórnendur: Kristján Júlíusson kennari, Bolungar- vík, Eyþór Stefánsson tónskáld, Sauð- árkróki, Jón Mýrdal organleikari, Norðfirði og frú Anna Eiriksdóttir, Selfossi. Endurskoðendur reikninga voru kjörnir: Einar Th. Magnússon, skrif- stofum., Rvk og Aðalsteinn Ifelgason, tréam., Rvk. Til vara: Baldur Pálma- son, fulltrúi, Rvk og Hálfdán Ifelga- son, kaupm., Rvk. Þá voru rædd ýms málefni sambands- ins. Gengu fundarmenn síðan í nýja stu- 44 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.