Organistablaðið - 01.09.1972, Síða 7

Organistablaðið - 01.09.1972, Síða 7
Til þessara kirkjusöngshátíða hefur verið venja að hjóða einum fulltrúa frá ihverju liinna 'Norðurlandanna. Formanni Kirkjukóra- sambands Islands, Jóni ísleifssyni, var boðið að vera fulltrúi íslands á þessari kirkjutónilistar'hátíð. Þar sem hann sá sér ekki fært að 'taka iþessu iboði, óskaði liann eftir því að undirrituð yrði fulltrúi kirkjukórasambandsins í hans stað. Ákveðið var að sækja mótið í Kristianstad, iþar sem það hafði minnstan ferðakostnað í för með sér. Fulitrúi Dana var dómorganistinn Ricfhard Sennels og Finna próf. Helge Nyman. Norðmenn sendu ekki fulitrúa til Kristianstad lieldur til Visby. Þátttakendur í Kristianstad voru 1.105 fullorðnir og 220 börn og unglingar. Föstudaginn 16. júní kl. 19.00 var mótið sett í Heliga Trefaldig- hetekyrkan (en þar fóru allir tónleikar hátíðarinnar fram). Bisk- upinn i Lundi, Olle Nivenius, hélt setningarræðu mótsins. Þar voru einnig flutt ibæði gömul og nýskrifuð verk, m. a. eftir Hovland. Um kvöldið kl. 22.30 voru haldnir fyrstu tónleikar mótsins. Á efnisskránni voru eingöngu nýsamin verk, sum mjög athyglisverð, m. a. eftir T. Nilsson, M. Karkoff og S. Salonen. 17. júni, aðaldagur mótsins rann upp bjartur og fagur, fáni Is- ilands, ásamt fánum Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands, hlöktu við hún á höfuðtorgi borgarinnar. Kl. 12.00 voru útiihljómleikar fyrir utan Tónlistarhöllina. Þar var flutt hæði kirkjuleg og veraldleg tónlist. Að hljómleikunum loknum var hinum norrænu fulltrúum ásamt þeim biskupum sem mótið sóttu, auk nokkurra annarra gesta, boðið til hátíðlegrar veizlu. Meðal iþeirra, sem boðnir voru, var hinn gagn- merki guðfræðingur og tónlistarmaður, Gústaf Aulén, en hann er nú á 94. aldursári. Gestirnir sýndu mikinn áhuga á því að fræðast ura Island og þá sérstaklega það, sem varðar kirkjutónlist og trúar- líf Islendinga. í þessum fagnaði veittist mér tækifæri í ávarpi að B’kýra frá starfsemi Kirkjukórasamlbands Islands og flytja kveðjur þess til hinna sænsku gestgjafa. Að þessari veizlu lokinni, var haldið til kirkjunnar, en þar voru tónleikar kl. 15.00. Að þessu sinni var eingöngu flutt rómantisk tónlist, m. a. verk eftir Brahms og Verdi, auk messu í c-moll eftir Rruckner fyrir 8 radda hlandaðan kór, ásamt 15 blásurum, sem rnikla hrifningu vakti. Næstu tónleikar voru haldnir tæpum þremur timum seinna kl. 19.00 ORGANISTABLAÐIÐ 7

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.