Organistablaðið - 01.09.1972, Page 8

Organistablaðið - 01.09.1972, Page 8
og þar var ílutt tónlist, sem 'hinir ýmsu kórar 'höfðu æft til að flytja sameiginlega á þessari hátíð. Um 'kvöldið kl. 20.30 var aðalsamkvæmi mótsins, þar sem allir þátttakendur voru gestir. í þessu samkvæmi fluttu hinir norrænu full- trúar ræður og undirrituð sagði frá ýmsu, sem varðar kirkjutónlist á Islandi, og starfsemi og stofnun Kirkjukórasamhands íslands. Sunnud. 18. júní'kl. 10.00 f.h. var hámessa með altarisgöngu í kirkj- unni, þar sem söfnuðurinn (þátttakendur mótsins) kynntust nýju guðs- •þjónustuformi, eem farið er að nota í tilraunaskyni víðs vegar í Sví- þjóð. Það sem vakti sérsaka athygli mína, var hin mikla almenna {ráttlaka safnaðarins í messunni. (Að sjálfsögðu voru allir sálmar og messusvör einrödduð). Auk ]>ess voru ákveðnir liðir í messunni fluttir af fjórrödduðum kór, þar sem ekki var ætlazt til þátttöku safn- aðarins. Lokahátíð mótsins var svo haldin kl. 15.00 í kirkjunni, þar var m. a. flutt tónlist eftir Buxtehude og Schútz. Biskup Helge Ljungberg frá Stokkhóhni og Kyrkoherde Sune Bjurman í Hel. Tref. söfnuðinum fluttu lokaávörp. I orðum þeirra kom m. a. fram hvatning til þátt- takenda um að þeir létu liina miklu tónlistargleði, sem hafði ein- 'kennt allt mótið, smita út frá sér, hver í sínum söfnuði. Það væri efalausteitt sterkasta vopnið til að útrýma hinum tómu kirkjubekkjum. Ég hef nú í stórum dráttum skýrt frá tilhögun mótsins og fram- kvæmd, en það sem einkenndi það öðru fremur var: A. Listrænn flutningur hinna ýmsu kóra sænsku kirkjunnar. B. Hinn mikli áhugi, sem yfirmenn kirkjunnar (Ibiskupar og prestar) sýndu hinni kirkjulegu tónlist. Þess má geta, að þeir 'héldu stutt erindi um tónlistarmál á öllum tónleikum hátíðarinnar. C. Frábært skipulag, þar sem séð var jafnvel fyrir hverju smá- atriði, sem varðaði framkvæmd þessa stóra móts, en undir- búningur þess stóð í rúmt ár og var framkvæmdastjóra móts- ins, Haghert Meuller, til mikils sóma. Það leikur enginn vafi á, að þesöar kirkjutónlistarhátíðir gegna mikilvægu hlutverki. Hér koma saman allir fremstu kirkjutónlistar- menn landsins, ásamt kórum og hiljóðfæraleikurum, sem flytja hina sígildu kirkjutónlist ásamt því nýjasta, sem liver tími liefur upp á að bjóða. Það er því mikilsvert fyrir okkur íslendinga, sem eigum svo 8 ORGANISTAliLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.