Organistablaðið - 01.09.1972, Síða 14
Dr. RÓBERT A. OTTÓSSON
sextugur 17. maí 1972
Sjaldan hefur annan eins happa-
feng rekið á fjörur íslenzks tón-
lislarlífs og/hauslið 1935, er lló-
ibert Abraham Ottóson fluttist
hingað til lands og settist að á
Akureyri. 'Hafði hann iþá lirak-
izt frá heimalandi sínu undan
ofsóknum nazista og eftir stutta
dvöl á danskri grund, leitað á
náðir íslendinga.
Dr. Róbert gerðist snemma all
umsvifamikill í tónlistarlífi Ak-
ureyringa og ekki styttist vinnu-
dagurinn er hann fluttist til Reykjavikur árið 1940. Störf dr. Róberts
eru bæði mikil og margvísleg. Sennilega mun hann Iþó aldrei iiafa
náð til fleiri hjartna en er hann hefur sveiflað tónsprotanum, hvort
sem hann hefur Iþá staðið frammi fyrir Sinfóníuhljómsveit Islands,
eða leitt mismunandi raddir margra mann^barka saman í farveg
fullkomleikans.
Hér vil ég þó fyrst og fremst, í nafni Félags íslenzkra organleikara,
þakka dr. Róbert íyrir störf lians í þágu íslenzkrar kirkjutónlistar.
Síðan dr. Róbert var skipaður söngmálaistjóri þjóðkirkjunnar hef-
ur hann helgað sig kirkjutónlistinni fyrst og frernst. Hann hefur
verið óþreytandi að útsetja sálmalög og stuðla á ýmsan hátt að fjöl-
breyttara og fegurra guðþjónustúhaldi.
Vísindastörf dr. Róberts eru víðkunn. Nægir þar til að nefna
doktorsritgerð hans um iÞorlákstíðir. Sýndi það val Iians á rilgerðar-
efni nokkra dirfsku, því ekki nægði tónlistarkunnáttan ein til þess
verks, heldur þurfti einnig til mikla kunnáttu og tilfinningu fvrir
íslenzku máli. En dr. Róbert sýndi þar og sannaði að hann hafði
ekki ofmetið sjálfan sig, enda mun óhætt að fullyrða að margur
borinn og harnfæddur íslendingurinn, að menntamönnum meðtöldum,
mætti þakka fyrir þá kunnáttu í meðferð tungunnar, sem hann hefur.
Á engan er hallað, þótt sagt sé að dr. Róbert eé einn bezt mennt-
14 ORGANISTABLAÐIÐ