Organistablaðið - 01.09.1972, Blaðsíða 22

Organistablaðið - 01.09.1972, Blaðsíða 22
messa. AS þessu sinni var i fyrsta sinn notað klassiskt messuform með altarisgöngu í messunni. Organistan- uin var gefið tækifæri, að taka ferm- ingarbörn í sértíma, til þess að út- skýra fyrir þeim messuformið og vekja skiining þeirra á því. Auk þess færð- ist mikið líf yfir kirkjukórinn með því að æfa óvant messuform. Rut Magnúsdóttir. Káljatjarnarkirkja. Sunnudaginn 25. júní var kirkju- dagur í Kálfatjarnarsöfnuði. Guðsþjón- usta var kl. 14.00 í kirkjunni Sr. Guð- mundur Óskar Ólafsson pródikaði, en söngfólk úr GarSakórnum, Garða- hreppi og Kirkjukór Kálfatjarnar- kirkju söng undir stjórn Jóns Guðna- sonar, organleikara. Hveragerðiskirkja. Þann 29. júni, kl. 21.00 voru haldnir tónleikar í hinni nývígðu kirkju í Hveragerði. Sigurveig Hjalte- sted og Jón H. Jónsson sungu ein- söng. Sólveig Jónsson lék einleik á slaghörpu og Páll Kr. Pálsson lék ein- leik á orgel. Kirkjukórar Hveragerð- is og Kotstrandarsókna sungu undir stjórn Jóns H. Jónssonar. Tónleik- arnir voru haldnir til efiingar pípu- orgelsjóði kirkjunnar. Kirkjukórasamband íslands. Aðalfundur kirkjukórasamhands íslands var haldinn í 1. kennslustofu Háskólans 21. júní sl. Fundinn sátu 17 fulltrúar frá 15 kirkjukórasambönd- um, auk söngmálastjóra Þjóðkirkjunn- ar, Róberts A. Ottóssonar, og aðal- stjórnar K.í. 1 skýrslu formanns, Jóns ísleifsson- ar, kom fram, að 6 tónlistarleiðbein- endur liefðu starfað á vegum sambands- ins sl. starfsár í 4 kirkjukórasam- böndum. Þrjú sambönd efndu til söngs- móta á árinu. þ. e. Árnes-, Borgar- fjarðar- og Þingeyjarprófastdæmi. — Auk þess að liafa fjölmarpr kirkju- kórar staðið fyrir samsöngvum og kirkjukvöldum í sinum byggðarlögum. Á þessu starfsári var gengið endan- lega frá aðild Kirkjukórasambands íslands að Sambandi norrænna kirkju- tónlistarmannu. Á fundinum var skipuð nefnd til að endurskoða lög sambandsins. Stjórn K.í. skipa nú: Formaður Jón Isleifsson, organleikari Reykjavik, rit- ari frú Hrefna Tynes, Reykjavík gjaldkeri Finnur Árnason. fulltrúi, Hafnurfirði, séra Sigurður Kristjáns- son, Isafirði, Jakob Tryggvason, org- anleikari, Akureyri, séra Einar Þór Þorsteinsson, Eiðum og Eirikur Isaks- son, fulltrúi, Rauðalæk Rangárvalla- sýslu. Ymsar fréttir. Árrii Björnsson, tónskáld, hlaut ný- lega 1. verðlaun í norrænni samkeppni, sem danska útvarpið efndi til um lúðra- sveitarverk, annars vegar fyrir tré- blásturshljóðfæri og hins vegar málm- blásturshljóðfæri. Verðluunaverk Árna nefnist: „Frum- samið stef og tilbrigði i íslenzkum þjóðlagastíl", og er samið fyrir tré- blástursbljóðfæri. Verkið tekur innan við 10 mínútur i flutningi svo sem kveðið var á um þau verk, er bárust í þessa samkeppni. Verðluunin voru 6000,00 danskar krónur (um 75.000,00 ísl. kr.), og var verkið frumflutt i danska útvarpinu hinn 18. júli sl. 22 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.