Organistablaðið - 02.06.1973, Blaðsíða 3

Organistablaðið - 02.06.1973, Blaðsíða 3
engin goðgá er að prestur lesi tónbæn. Einnig inætti einsöngvari flytja tón prestsins. Er biskup hafði lokið máli sínu var gert kaiffihlé og filýddu menn um leið á hljómplötu með sýnishorni af norskum messusöng frá 1965 er verið var að gera tilraunir með í Noregi. Hafði biskup komið með plötuna og iþótti fundarimönnum hún athyglisverð. Voru síðan frjálsar umræður og ikomu fram ýmsar skoðanir og hugmyndir. Mun ég ekki re’kja gang umræðnanna nákvæmllega en reyna að draga aðalatriði úr og gera nok'kra grein fyrir þeim. Margir ræðumanna /lýstu gleði sinni yfir 'því, að biskuj) vildi að organistar hefðu forgöngu um úrtbætur og nýjar leiðir. Þó væri það ekki hægt nema með góðu samstarfi við presta. Það hanilaði þó mjög, hve fáir prestar eru ilæsir á nótur og því erfitt um vi'k með ný tónlög. Nótnalestur er kenndur við guð’fræðideild Hás’kól- ans, en að sjálfsögðu eru ekki allir er í guðfræðideild setjast jafn tónvissir og fítið ihægt við því að gera. Flestum har saman um að fjöl'breytni í mesisuformi iþyrifti að vera fyrir hendi. Hver þyrfti að 'geta valið form við sitt hasfi. Öl'lum har saman um að varlega Iþyrfti að íara í alilar breytingar. Bylting mætti ek'ki eiga sér stað, en eins og einn ræðuimanna úr hópi organleikara sagði: „Það gerir ekkert til þó fól'k hrökkvi einstöku sinnum við, við eitthvað nýtt.“ En hefðibundið form er mörgum það kært, að hætt er við að þeir rnyndu yfirgefa kirkjuna ef því væri kastað allt í einu. Sagði einn ræðumanna sögu af gömlum manni er hefði sárnað mjög er svo- kaLlaður „Grallarasöngur“ var aílagður og „nýju lögin“ tekin upp. Eagði þessi maður á sig 'langa ferð til að geta heyrl graflarasönginn einu sinni enn. Hið sama gæti skeð ef Sigfúsartónið yrði skyndilega aflagt. Nokkuð var rætt uin, bvað fiægt væri að gera til að fá unga fólkið til að sækja kirkju nieir en nú er. Bent var á ýrnsar leiðir, s. s. að flytja tízkúhljóðfæri inn lí kirkjurnar og flytja tónlist er lægi unga fólkinu nær. Var þó álil flestra að ekki væri rétt að yfirfæra danstónlist yfir á sálmalög með Iþeim hávaða er tíðikast, enda vildi ungt fólk það ekki. Reynsla af tilraunum með „popp“-messur styddi þá skoðun, að unga fólkið vildi í rauninni gera mun á hátíðleik og ihversdagsleik. Vildu sumir hyggja á þeiin grunni cr fyrir er jafn- vol Gregoríanik, en aðrir gcra eiitlihvað alveg nýtt. Ekki voru allir á einu máli um Gregorssönginn. Töldu sumir hann fjarlægan og OUGANISTABLAÐin ?

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.