Organistablaðið - 02.06.1973, Blaðsíða 7

Organistablaðið - 02.06.1973, Blaðsíða 7
nótur. Þar með var kominn fram hinn svonefndi viðhengdipedal, sem iþeklcist í litlum nútíma orgelum, sem ekki hafa sjálfstæða pedal- rödd. Pedal með sjálfstæðum röddum og sjálfstæðu nótnaborði var Iþegar 'kominn á 14. öld eins og leifarnar frá Gotlandi (Sundre og Norrlanda) (bera með sér. 'C) Á Miðöldum þróuðust þrjár gerðir orgela. 1. Hið tiltölulega stóra Mixtur-Blok'korgel, sem ‘hafði sinn fasta samastað í kirkjunni. 2. Svokallað Positiv (ponera - stilla upp), orgel sem var lítið og færanlegt, oft staðsett í kór til notkunar við liturgiska iþætti. 3. Regal- ar, lítil Ihijóðfæri með tunguröddum. Á Síð-Miðöldum varð sú þróun að iþessar þrjár gerðir orgcla uxu saman, ef svo mætti komast að orði. Positifinu var komið fyrir fremst á orgelpallinum, þannig að spilaborðið lenti milli þess og Aðalorgelsins (Hauptwerk). Þetta orgel fékk því nafnið Bak- positif (Riickpositiv). Regalorgelinu var komið fyrir í húsi Aðal- orgelsins, annað hvort milli spila'borðsins og vindblöðu þess og nofndist þá Brjóstverk (Brustwerk) eða fyrir ofan það og hét þá Yfirverk (Oberwerk). Nótnaborð Bakpositifsin® var staðsett undir nótnaborði Aðalorg- elsins en nótnaborð Regalsins fyrir ofan það. Með þessu móti gat einn og sami maður leikið á öll þessi hljóðfæri frá sama sæti. D) Á timabilinu fék'k orgelið aftur registratur. Þannig var á ný unnt að leika á hinar ýmsu pípuraðir hverja fyrir sig eða fleiri saman. 1 upphafi voru eingöngu dýpstu pípuraðirnar skildar frá, hinn hluti orgelsins var áfram Mixtur-Blokkorgel. Smám saman þró- aðist |)etta síðan í þá átt að allar raddir urðu sjálfstæðar. E) Á Miðöldum var farið að byggja liús utan um orgelverkið, þessi orgelhús voru eingöngu gerð í því augnamiði að verja orgelið fyrir ryki og öðrum óhreinindum. Það var fyrst á 20. öldinni að menn fóru að gera sér grein fyrir þvá að orgelhúsin gátu haft verulega þýðingu í „akustisku" tilliti. Saga orgelhússins helzt í hendur við orgelprospektið, þ. e. a. s. hinar sýnilegu pípur, sem mynduðu framhlið orgelhússins. Saga þess er merkileg og verður e. t. v. drepið á hana síðar. Þau orgelhús sem farið var að smíða á Miðöldum voru oft gerð ORGANISTABLAÐIÐ 7

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.