Organistablaðið - 02.06.1973, Qupperneq 20

Organistablaðið - 02.06.1973, Qupperneq 20
EYVIND ALNÆS Eyvind Alnæs fæddist 1872 í Fredrikstad í Noregi. Hann dó í Osló 1932. Hann var mikilsmet- inn söngstjóri í Osló og organ- leikari, seinast við dómkirkjuna Vor Frelser Kirke. Alnæs hélt oft orgeltónleika. Hann þótti ágætur undirleikari og snjall improvisator. Hann samdi mörg tónverk af ýmsu tagi. Lagið Sidste Reis, sem liann samdi við texta eftir Hinrik Ibsen liefur orð- ið vinsælt ‘hér á landi eins og víða annans staðar. Trúað gæti ég að margir íslenzkir organistar, sem nú eru orðnir rosknir menn, minniist með ánægju Harmonium Albums !þess, sem hann gaf út í 'þrem heftum. KARLSTRAUBE Nú eru liðin 100 ár síðan Mont- gomery Rufus Karl Straube fæddist. iHann fæddist 6. janúar 1873 í Berlín og andaðist í Leip- zig árið 1950. Straube hefur áður verið getið Ihér í Organistablaðinu og 'vísast því til þess, sem þar er sagt um hann. iEn minna má ú að það vega- nesti, sem Straube gaf dr. Páli ís- ólfssyni, hefur orðið ísl. organistum að góðu liði, því að margir íslenzkir organleikarar hafa notið handleiðslu og kennslu dr. Páls. 20 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.