Organistablaðið - 02.06.1973, Page 28
SKÍN VIÐ S#LU
FIMMTAN SKAGFIRZKIR SÖNGVAR
Á veguim SkagfirðingaBélagsins hafa verið gefnar út
tvær hljómplötur. Hin lyrri er fimmtán laga breið-
s'kífa með íslenzkum sönglögum, sungnum af Stefáni
Islandi.
í ár kom svo út hljómplatan „Skín við sólu“ sem
inniheldur lög þriggja skagfirzkra tónskálda og organ-
ista, iþeirra Péturs Sigurðssonar, Eyj/órs Stefánssonar
og Jóns Björnssonar frá Hafsteinsstöðum, en iþeir
hafa allir verið starfandi organistar við Sauðárkróks-
kixikju. — Flytjendur eru Skagfirzka söngsveitin ásamt
einsöngvurum. Stjórnandi Snæbjörg Snæbjamar-
dóttir, en undirleik annast Ólafur Vignir Albertsson.
SKAGFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK
P.O. Box 4150.
28 ORGANISTA P.LAUIÐ