Organistablaðið - 02.06.1973, Qupperneq 29
Hér á lamdi trúi ég að ýmsir kann-
ist við tónlistarsögu ha.ns: ..Musikens
Historie" sem kom út í tveim bind-
um 1936—1937. Henni fylgja mörg
tóndæmi. I>essi læsilega og greinar-
góða tónlistarsaga hefur verið endur-
útgeíin.
Povl Hamburger var nokkur ár
ritst.ióri Dansk Kirkemusiker Tid-
ende, en varð að láta af þvi starfi
vegna vanhellsu.
Norsk Kirkemusikk 25 ára.
Blað norsku organistanna Norsk
kirkemusikk, hefur nú komið út í 25
ár. I>að hét íraman af ..Medlemsblad
for Norges Organistforbund'' og í
afmælisgrein í janúar síðastliðinn
segir var „beskjedent medlems-
blad". Hvað sem (þessum hæverks-
iegu orðum líður er blaðið nú orðið
myndarlegt klrkjuttónlistarrlt, vand-
að að efni og frágpngi. Og ..bladet
har maktet den opgave nr. 1 skisserte:
á være et bindeled og en inpirasjon
for váre medlemmer i deres daglige
vlrke í kirken." Af því mættum við
draga nokkurn lærdóm, |þvi það er
einmitt eitt af því, sem Organistablað-
inu er ætlað að vera: tenglliöur milli
allra organista á landinu.
Ýmsar fréttir.
Tónskáld í sviösljósi.
Hinn 15. mal skrlfar Steingrímur
Sigfússon grein i Morgunblaðið með
þessari yfirskrlft. Greinin fjaliar um
útvarplð og, eins og íyrlrsögnin ber
með sér, um tónskáldin. Efni grein-
arinnar verður ekki rakið hér, en í
lokin nefnir greinarhöf. organleikar-
ana og segir á þessa, ieið:
.....þar sem einn af tóniistarfull-
trúum útvarpsins er organisti, vill
hann ekki taka til meðferðar þá tii-
Iögu, sem ég undirritaður setti fram
fyrir tuttugu árum siðan, að íslenzk-
um orgeHeikurum væri gefinn kostur
á að láta til sin heyra t. d. á sunnu-
dagsmorgnum i ákveðnum Þætti í stað
þess að spila ævinlega sömu plöturn-
ar. Ég veit hvert svarið verður, vegna
þcss að það er ekki hægt að bera við
hæfnisleysi sé miðað við alla þá ,,ama-
töra", sem fram koma i útvarpinu
i öllum greinum: Það verður að borga
Iþeim fyrir spilverkið."
Félagsfréttir
Fundur var haldinn í F.Í.O. 18.
febrúar s.l. Á þeim íundi var Ragn-
ar Björnsson valinn 1 programnefnd
næsta Norræna Kirkjutónlistarmóts-
ins, en Gústaf Jóhannesson var valinn
sem fulltrúi félagsins í Norræna
Kirkjutónlistarráðið. Fulltrúi Kirkju-
körasambandsins í kirkjutónlistarráð-
inu er dr. Róbert A. Ottósson.
Á þessum fundi var ritnefnd kosin
og eiga sömu menn og áður sætl í
henni næsta tímabil.
Síðastliðið sumar sklpaði biskup
nefnd til að annast útgáfu vlð-
bætis við núgildandi kóralbók með
tililiti til nýju sálmabókarinnar. 1
þessari nefnd eiga sæti: Dr. Róbert
A. Ottósson, Ragnar Björnsson,
Gústaf Jóhannesson, Þorkell Sigur-
björnsson og sr. Guðjón Guðjónsson.
FÉLAG ISL. OUGANLEIKARA
STOFNAÐ 17. JÚNt 1951
Stjórn:
FormaSur: Gústaj Jóhanncsson, Sel-
vogsgrunni 3, Uvk, sími 33360.
Ritari: Jón Stcjánsson, Langholtsvegi
165, Rvk, sími 84513.
Gjaldkeri: Jón G. Þórarinsson, Iláa-
lcitisbraut 52, Rvk, síini 34230.
ORGANISTABLAÐIÐ 29