Organistablaðið - 01.09.1976, Qupperneq 2
MINNISVARÐI UM
INGA T. LÁRUSSON
Efalaust má telja Inga T. Lárusson ineða'l vinsælustu tón-
skálda íslensku þjóðarinnar. Því til sönnunar nægir að nefna
nökkur a'f fögum hans, sem svo að segja allir kunna eða kann-
ast við, t.d. Ó, blessuð vertu sumarsól, I svanallíki lyftist mold-
in hæst, Það er svo margt að minnast á, Nú andar suðrið
og Hríslan og lækurinn. Ingi var um skeið kirkjuorganleik-
ari og færi iþví ve'l á að hans yrði minnst í þessu blaði, þó
að ekki verði ritað um hann að þessu sinni. Ingi var aust-
firðingur og nú !hafa austfirðingar reist honum minnisvarða
í fæðingarbæ hans, Seyðisfirði. Minnismerkið er eftir Sigur-
jón Óláfsson myndhoggvara. — Til fjáröÉlunar vagna þessa
og til að heiðra minningu tónskáldsins gekkst Austfirð-
ingafélagið í Reykjavík fyrir minningarsamkomu með tón-
leikum í Háskólabíói 31. janúar í vetur. Þórarinn Þórarins-
son fyrv. skólastjóri stjórnaði samlkoinunni en aðálræðumaður
var Jón Þórarinsson tónskáld. Öll l'ögin sem þarna voru
sungin og leikin voru eftir Inga. Þeir, sem þá létu til sín heyra
voru Kammersveit Reykjavíkur undir stjórn Páls P. Pálssonar
— hún lék lög í útsetningu Jóns Sigurðssonar — Skólaihljóm-
sveit Mosfelilssveitar, stjórnandi Lárus Sveinsson, Kvennakór
Suðurnesja, stjórnandi Herbert H. Ágústsson, Karlakórinn
Stefnir í Mosfellssveit undir stjórn Lárusar Sveinssonar, Eddu-
kórinn, einsöng sungu Ingimar Sigurðsson, Ó'löf Harðar-
dóttir og Kristinn Hallsson. Undirleik á píanó annaðist jón
Stefánsson. í samkomulok sungu allir viðstaddir tvö iög I.T.L.
Hinn 26. ágúst á afmælisdegi Inga afhjúpaði Inga Lára,
dóttir tónskáldsins minnismeúkið á skrúðgarði Seyðisfjarðar,
að viðstöddum fjölda manns. Tveir kórar sungu, Bjarmi og
kirkjukór Egilsstaðakirkju. Þórarinn Þórarinsson afhenti
minnismerkið en forseti bæjarstjórnar Seyðisl jarðar jiakkaði
gjöfina. í samsæti að atiliöfninni lokinni minntist Pétur
Blöndal Í.T.L., en Kristjián Kristjánsson söng niokkur af lög-
um Inga við undirleik Katrínar Jónsdóttur.
2 ORGANISTABLAÐIÐ