Organistablaðið - 01.09.1976, Síða 10

Organistablaðið - 01.09.1976, Síða 10
GEIR ÞÓRARINSSON Geir Þórarinsson organisti Keílavíkurkirkju varð sjötug- ur Iþann 3. febrúar 1976. Á þessum tímamótum í lífi Ihans viljum við starfsbræður hans og samherjar flytja honum heilia- og hamingjuóskir. Geir hefur ekki ianga tónlist- arskólagöngu að baki. Fyrir utan tilsögn f harmoníum- ieik, sem hann fékk hjá Ingi- bergi Pálssyni, þá ungur að áldri, naut hann ökki tilsagn- ar í tónlist, en hefur af þrot- lausum áhuga aflað sér þekk- ingar og kunnáttu í stiopulum frístundum að loknu löngu dagsverki. Þetta er saga hans, sem svo margra annara manna, sem borið hafa uppi söngl.íf í kirkjum víðsvegar um land. Tildrög þess að hann fór að leika við guðsþjónustur voru þau sömu og oft verða, vöntun á organista, og þá var farið að ieita að einlhverjum til að bjarga hlutunum. Þannig hóf Geir iferil sinn sem organisti með því að leika við einstakar guðsþjónustur í Innri-Njarðvíkurkirkju og Kirkjuvogskirkju, en varð 1960 fastur organisti við Innri- Njarðvíkurkirkju og gegndi því starfi í 15 ár. Einnig var hann organisti við kirkjuna í Ytri-Njarðvík 1965—1975 eða í 10 ár. Á báðum þessum stöðum hafði hann 18 manna kirkju- kóra, sem hann æfði reglulega. Þegar Friðrik Þorsteinsson hætti störfum sem organisti við Keflavíkurkirkju árið 1964 tók Geir við því starfi og hefur gegnt því síðan. 10 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.