Organistablaðið - 01.09.1976, Blaðsíða 19

Organistablaðið - 01.09.1976, Blaðsíða 19
TIL RITNEFNDAR ORGANISTABLAÐSINS Svar við spurningu. í 3. flbl. Orglbl. 1975 spyr P.H. Ihvort Requiem }iað sem Óratóríukórinn flutti í kirkju Hvítasunnusafnaðarins Rvfik í nóv. s!l. sé ekki iþað sama sem Dómlkinkjukórinn flutti 7. nóv. 1931 undir stjórn dr. Páls ísólfssonar með undirleik dr. Victors Urbancic. Veiltir P. H. því fyrir sér bvort umneddur flutningur Óratóríukórsins geti kallast frumiflutningur er um sama verk er að ræða, og P. H. veit vafalaust að Clherubini samdi aðeins eitt Requiem í c-moll. Skýringar eru þó á því að umræddur flutningur Óratóríukórsins var nefndur „frum- flutningur á íslandi“, sem út áf fyrir sig er ekki góð notkun málsins, en betra væri að segja filutt í fyrsta skipti á íslandi. Efnissikrá tónleikanna 1941 hefur mér ekki tekist að ná í, en samkvæmt minni þeirra sem þátt tóku í tónleikunum 1941 lielur að líkindum ekki allt verkið veriðflutt þá, auk þess er Requiemið skrifað fyrir kór og ihljómsveit en dr. Urbancic — ]>ótt mikilihæfur væri — eingöngu leikið með á orgel í það skiptið. Læt ég svo öðrum eftir að ílhuga hvort rétt sé að tala um „tónlistarviðburðinn“ (sbr. fréttatilk.) í Dómkirkj- unni sem frumfilutning verksins. Haifi ég gert rangt í því að kalfla flutninginginn í nóv. sl. ,,frumflutning“ biðst ég afsökunar. En ætti maður eftir að iheyra 9. Mahlers flutta hér í fyrsta skipti leikna Ijórhent á píanó sýnist mér að vafa- samt væri að kalla það „ifrumfilutning venksins hér á landi“. Ragnar Rjörnsson. Ég þalkika fyrir bréfið. En ég man ekki eftir að hafa heyrt eða séð „tónlistarviðburðinn" í Dómkirkjunni nefndan „frumflutning". P. H. ORGANISTABI.AÐIÐ 19

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.