Organistablaðið - 02.12.1978, Side 7

Organistablaðið - 02.12.1978, Side 7
VIÐHALD ORGELA Organleikur er ung listgrein á Islandi. — Upp úr 1920 kom fyrsti lærði islenski organistinn fram á sjónarsviðið, dr. Páll lsólfsson, og var hann lengi vel einn að störfum sem slíkur. Upp úr 1930 fóru fáeinir nemendur hans að starfa við helstu kirkjurnar, en það var eftir 1950 að hópur organista var orð- inn það stór að fært þótti að mynda stéttarfélag og F.t.O. var stofnað árið 1951 með 12 stofnfélögum. — Fáir lærðir organist- ar hafa bætst í hópinn síðan og mun ástæðan vera helst sú, að starfið þykir ekki lífvænlegt. Þó hafa all mörg orgel verið keypt i kirkjur landsins og munu þau nú vera milli 30 og 40. Flest eru þessi orgel lítil, enda söfnuðir fámennir og kirkjur litlar en orgelin hins vegar dýr. Fáir organistar hérlendir hafa lært meðferð og umönnun hljóðfæranna þótt allmargir hafi lært að leika á þau. 1 tónlistarskólum erlendis er orge'lvarsla sérstök námsgrein og sums staðar svo viðamikil að orgelnemendur hafa að námi loknu getað smíðað sjálfir lítil orgel með góðum árangri. Astand orgela i kirkjum landsins er víða mjög slæmt enda fáir til eftirlits og viðgerða og enginn fulllærður orgelsmiður til i landinu. Viðgerðir og viðhald byggist á þvi að hingað komi erlendir fagmenn og yfirfari orgelin en það er kostnaðarsamt og stopult. Reynt hefur verið að fá erlenda orgelsmiði til að setjast hér að, en ekki tekist, þeim þykja vinnuskilyrði ekki nógu góð. Margt mætti laga ef organistar og sóknarnefndir hefðu betri skilning og einhverja undirstöðuþekkingu á hljóð- færum sínum. Orgel i góðri vörslu á að geta enst i 100—300 ár. Slit er ekki teljandi nema hjá þunghentum og þungstígum org- anistum, en þeir eru til þó lærðir séu og ef viðvaningar eða „óviðkomandi“ fá að skarka á hljóðfærin, og dæmi eru um að ófaglærðir „viðgerðarmenn“ hafi skemmt pípur við stillingar án réttra tækja (stillihorn o. fl.). Það er nauðsynlegt að góðir fagmenn annist stillingar og viðgerðir og fúskarar komi þar ekki nærri. Þá má minna á að nauðsynlegt er að láta fagmann hreinsa og yfirfara allt orgelið á 15—20 ára ára fresti. — Mestan skaða geírir þurrkur og mishitun i kirkjunum. Rakastig í kirkju ORGANISTABLAÐIÐ 7

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.