Organistablaðið - 02.12.1978, Page 7
VIÐHALD ORGELA
Organleikur er ung listgrein á Islandi. — Upp úr 1920 kom
fyrsti lærði islenski organistinn fram á sjónarsviðið, dr. Páll
lsólfsson, og var hann lengi vel einn að störfum sem slíkur.
Upp úr 1930 fóru fáeinir nemendur hans að starfa við helstu
kirkjurnar, en það var eftir 1950 að hópur organista var orð-
inn það stór að fært þótti að mynda stéttarfélag og F.t.O. var
stofnað árið 1951 með 12 stofnfélögum. — Fáir lærðir organist-
ar hafa bætst í hópinn síðan og mun ástæðan vera helst sú, að
starfið þykir ekki lífvænlegt. Þó hafa all mörg orgel verið keypt
i kirkjur landsins og munu þau nú vera milli 30 og 40. Flest
eru þessi orgel lítil, enda söfnuðir fámennir og kirkjur litlar
en orgelin hins vegar dýr. Fáir organistar hérlendir hafa lært
meðferð og umönnun hljóðfæranna þótt allmargir hafi lært að
leika á þau. 1 tónlistarskólum erlendis er orge'lvarsla sérstök
námsgrein og sums staðar svo viðamikil að orgelnemendur hafa
að námi loknu getað smíðað sjálfir lítil orgel með góðum árangri.
Astand orgela i kirkjum landsins er víða mjög slæmt enda
fáir til eftirlits og viðgerða og enginn fulllærður orgelsmiður
til i landinu. Viðgerðir og viðhald byggist á þvi að hingað komi
erlendir fagmenn og yfirfari orgelin en það er kostnaðarsamt
og stopult. Reynt hefur verið að fá erlenda orgelsmiði til að
setjast hér að, en ekki tekist, þeim þykja vinnuskilyrði ekki
nógu góð. Margt mætti laga ef organistar og sóknarnefndir
hefðu betri skilning og einhverja undirstöðuþekkingu á hljóð-
færum sínum. Orgel i góðri vörslu á að geta enst i 100—300 ár.
Slit er ekki teljandi nema hjá þunghentum og þungstígum org-
anistum, en þeir eru til þó lærðir séu og ef viðvaningar eða
„óviðkomandi“ fá að skarka á hljóðfærin, og dæmi eru um að
ófaglærðir „viðgerðarmenn“ hafi skemmt pípur við stillingar
án réttra tækja (stillihorn o. fl.). Það er nauðsynlegt að góðir
fagmenn annist stillingar og viðgerðir og fúskarar komi þar
ekki nærri. Þá má minna á að nauðsynlegt er að láta fagmann
hreinsa og yfirfara allt orgelið á 15—20 ára ára fresti. — Mestan
skaða geírir þurrkur og mishitun i kirkjunum. Rakastig í kirkju
ORGANISTABLAÐIÐ 7