Organistablaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 18
firoi, manna best kunna að dæma, því Ragnar starfaði með
honum alla sína söngstjóratíð i kirkjunni, en stjórnaði auk þess
Sunnukórnum með glæsibrag, svo sem framgengur af fjölmörg-
um upptökum og hljómplötum. Einlægt var Ragnar sestur i
sæti sitt við orgslið i tæka tíð, þaðan sem hann leiddi söfnuð-
inn í lofsöng sköpunarinnar til Drottins síns, því að öll Ijómar
sköpunin frammi fyrir Guði og tilbiður hann með söng og
spili, tónum og tali i litum, fegurð og blómum. Þess vegna er
listin svo mikilva^gur þáttur í guðsþjónustunni, af þvi að í list-
inni finna maðurinn og sköpunin hvort annað og fallast í faðma,
likt og fyrirboði þess dags, þegar við eignumst þá sátt við Guð
og menn, sem gerir okkur fullkomlega hamingjusöm.
Trúmaður er Ragnar mikill og einlægur, þó minnugur þeirra
orða postulans að hugsa ekki hærra en hugsa ber. Enginn tagl-
hnýtingur er hann í trúmálum fremur en öðrum efnum og
næsta tortrygginn á lúterskan sið með köflum eins og margir
góðir sagnfræðing'ar, þótt auðvitað hefðu frjálsbornir konungs-
niðjar eins og Ragnar og aðrir Islendingar aldrei unað öðru
18 ORGANISTABLAÐIÐ