Organistablaðið - 02.12.1978, Side 30

Organistablaðið - 02.12.1978, Side 30
hefur Jón starfað og verið scingstjóri. Með störfum sinum að söngmálum hér í héraði hefur Jón Björnsson verið frumherji og forystumaður að heilbrigðu og mannbætandi félags- og menn- ingarlífi og eigum við Skagfirðingar honum stóra skuld að gjalda. Jón hefur samið mikinn fjölda tónsmíða og eru mörg söng- laga hans þjóðkunn. Mörg eru lög Jóns fögur og skemmtilega sönghæf. Á seinustu misserum hafa komið út a. m. k. þrjú hefti með lögum Jóns. Er þar að finna einsöngslög, lög fyrir karla- kóra og blandaða kóra. Ég á Jóni frá Hafsteinsstöðum margt og mikið að þakka. Hann hefur verið organisti í tveimur kirkjum minum alla prestsskap- artíð mína og samstarf okkar verið með ágætum. — Engum mönnum eigum við prestarnir fremur þakkir að gjalda en org- anistunum okkar og mikils virði er mér vinátta Jóns. Ég gladd- ist þegar honum voru úthlutuð listamannalaun, vel átti hann þau skilið, og bágt átti ég að skilja, hvers vegna þau voru af honum tekin í ár. Er hann slikur skilningur úthlutunarmanna á merkum menningarstörfum, sem unnin eru i strjálbýlinu, og fyrir okkur, sem þar lifum, og þar viljum vera? En hvað um það. Jón Björnsson lifir án þessarar viðurkenningar frá þeim þar syðra, og ég bið honum blessunar í bráð og lengd. Gunnar Gíslason. Hljóðfærameistarinn frægi, Joh. Seb. Bach, var einhvern sunnudag á ferð í Altenburg, þar sem Krebs, gamall lærisveinn hans var organleikari. Bach var að reika úti skammt frá kirkjunni og sá að fólkið var að streyma þangað, og kom honum þá til hugar að fara til kirkj- unnar líka og heyra einu sinni hvern- ig Krebs spilaði, en vildi þó ekki láta bera á sér; fór hann því inn i mannþröngina og tók sér sæti utar- lega í kirkjunni og hélt að þar mundi enginn taka eftir sér. En Krebs þekkti hann fljótt og þótti ánægja mikil að sjá þar kennara sinn. Eftir örlitla stund settist hann við orgelið og lék á það ,,fúgu" fléttaða saman af nafn- inu Bach. Að snarræði þessu dáðist Bach og sagði síðan: ,,í læknum mín- um er ekki fiskakyn; þar hef ég fund- ið einn einasta krabba.“ Bach = lækur; Krebs = krabbi. Hljómlistin 1913. 30 ORGANISTABI.AÐIÐ

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.