Organistablaðið - 02.12.1978, Qupperneq 30
hefur Jón starfað og verið scingstjóri. Með störfum sinum að
söngmálum hér í héraði hefur Jón Björnsson verið frumherji
og forystumaður að heilbrigðu og mannbætandi félags- og menn-
ingarlífi og eigum við Skagfirðingar honum stóra skuld að gjalda.
Jón hefur samið mikinn fjölda tónsmíða og eru mörg söng-
laga hans þjóðkunn. Mörg eru lög Jóns fögur og skemmtilega
sönghæf. Á seinustu misserum hafa komið út a. m. k. þrjú hefti
með lögum Jóns. Er þar að finna einsöngslög, lög fyrir karla-
kóra og blandaða kóra.
Ég á Jóni frá Hafsteinsstöðum margt og mikið að þakka. Hann
hefur verið organisti í tveimur kirkjum minum alla prestsskap-
artíð mína og samstarf okkar verið með ágætum. — Engum
mönnum eigum við prestarnir fremur þakkir að gjalda en org-
anistunum okkar og mikils virði er mér vinátta Jóns. Ég gladd-
ist þegar honum voru úthlutuð listamannalaun, vel átti hann
þau skilið, og bágt átti ég að skilja, hvers vegna þau voru af
honum tekin í ár. Er hann slikur skilningur úthlutunarmanna
á merkum menningarstörfum, sem unnin eru i strjálbýlinu, og
fyrir okkur, sem þar lifum, og þar viljum vera? En hvað um það.
Jón Björnsson lifir án þessarar viðurkenningar frá þeim þar
syðra, og ég bið honum blessunar í bráð og lengd.
Gunnar Gíslason.
Hljóðfærameistarinn
frægi, Joh. Seb. Bach, var einhvern
sunnudag á ferð í Altenburg, þar
sem Krebs, gamall lærisveinn hans
var organleikari. Bach var að reika
úti skammt frá kirkjunni og sá að
fólkið var að streyma þangað, og kom
honum þá til hugar að fara til kirkj-
unnar líka og heyra einu sinni hvern-
ig Krebs spilaði, en vildi þó ekki
láta bera á sér; fór hann því inn i
mannþröngina og tók sér sæti utar-
lega í kirkjunni og hélt að þar mundi
enginn taka eftir sér. En Krebs þekkti
hann fljótt og þótti ánægja mikil að
sjá þar kennara sinn. Eftir örlitla
stund settist hann við orgelið og lék á
það ,,fúgu" fléttaða saman af nafn-
inu Bach. Að snarræði þessu dáðist
Bach og sagði síðan: ,,í læknum mín-
um er ekki fiskakyn; þar hef ég fund-
ið einn einasta krabba.“
Bach = lækur; Krebs = krabbi.
Hljómlistin 1913.
30 ORGANISTABI.AÐIÐ