Organistablaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 37
KIRKJUKÖRINN
Á
FERÐALAGI
Guðmundur H.
Guðjónsson,
söngstjóri kórsins.
Kirkjukórinn er nýlega kominn heim úr tæplega þriggja vikna
ferðalagi um Rretland, en kórinn tók þar þátt í alþjóðlegri sam-
keppni kóra, sem haldin var i Wales.
Æfingar fyrir þessa ferð hófust á síðasta hausti og voru síðan
stífar æfingar allan veturinn og allt fram til þess er út var farið.
Fyrstu tónleikarnir voru svo haldnir í Wimbeldon, sem er
ein af útborgum Lundúna, hinn 4. júlí og voru það nokkurs
konar upphitunartónleikar fyrir keppnina. Var sungið í stórri
kirkju þar sem hljómburður var með miklum ágætum og kom
margt manna til tónleikanna. Gestir á þessum tónleikum voru
þau Sigríður E. Magnúsdóttir og Símon Vaughan.
Hápunktur ferðarinnar var svo í Wales, en þangað var farið
með lest og dvalið þar um fjögra daga skeið. Árlega er þar
haldið slíkt tónlistarmót, þar sem fjöldi blandaðra kóra ásamt
karlakórum, kvennakórum og barnakórum leiða saman hesta
sína. Að þessu sinni tóku 20 blandaðir kórar þátt i keppninni,
sem fór fram á þann hátt, að allir kórarnir sungu tvö skyldu-
verk, en síðan mátti hver kór flytja eitt frumsamið verk frá
sínu heimalandi. Þarna var sungið í tjaldi, sem var hreint ekk-
ert smásmiði og rúmaði 5000 manns i sæti. Við vorum nr. 8 í
röðinni og notuðum tímann fram að okkar þætti til að hlusta á
ORGANISTABLAÐIÐ 37