Organistablaðið - 02.12.1978, Síða 41

Organistablaðið - 02.12.1978, Síða 41
ISRAEL — iTALÍA FERÐ KIRKJUKÓRS AKRANESS Jól í Landinu helga. 1 huga kristins manns er það aðeins eitt Gyðingaland, sem í dag nefnist Israel. Flestir íslendingar hafa einhvern tíma ævinnar látið sig dreyma um þetta land og hversu gaman væri að koma þangað, þó ekki væri nema einu sinni á ævinni. Fram eftir öldum voru þeir sárafáir, sem gátu látið þann draum rætast, landið langt undan, dýr og erfið ferðalög. En nú er öldin önnur en þegar Rjörn Jórsalafari gerði sína frægu reisu. Nú er ílestum liindr- unum úr vegi rutt, svo er rétt snertispölur að bregða sér þangað. Þetta sólbrennda land i suðri er ekki lengur fjarlægur draum- ur heldur veruleiki. Og nú eru þeir orðnir margir Jórsalafar- arnir frá Islandi. Meðal þeirra erum við, sem lentum á Ren- Guríon flugvellinum snemma morguns 22. des. 1977 í miklu þrumuveðri og einu þvi mesta skýfalli, sem ég man eftir, það var rétt eins og allar flóðgáttir himinsins opnuðust. Hér var kominn kirkjukór Akraness með söngstjóra sinn Hauk Guð- laugsson, söngmálastjóra i fararbroddi. Ennfremur nokkrir til uppfyllingar, þar á meðal læknir, sem sá um likamlega vellíðan hópsins og þrír geistlegir, sem eflaust áttu að gæta andlegrar velferðar ferðalanganna og tókst vonum betur, enda hermenn á hverju strái. Sérstök tilfinning er að vera i Landinu helga um jólin. Þá verða allir staðirnir, sem við sáum á glansmyndum í skini jóla- ljósanna heima á gamla Fróni að veruleika. Betlehem, fæðingar- kirkjan, hellirinn, þar sem fjárhirðarnir dvöldust þessa örlaga- þrungnu nótt, þarna á völlunum hljómaði í fyrsta sinni fagn- aðarboðskapurinn mikli: „Verið óhræddir, því sjá ég boða yð- ur mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum, því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs.“ Hirðarnir fóru til borgar Davíðs, Betlehem, fundu allt eins og engillinn hafði sagt þeim. ORGANISTABLAÐIÐ 41

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.